
Bretland

Leyniherbergin í Buckinghamhöll
Buckinghamhöll í London er aðsetur Elísabetar II Bretadrottningar.

Brasilískt afbrigði veirunnar veldur auknum áhyggjum
Yfirvöld í Bretlandi hafa auknar áhyggjur af nýju afbrigði kórónuveirunnar sem á uppruna sinn í Brasilíu og virðist vera meira smitandi en það sem kom faraldrinum af stað, líkt og tvö önnur afbrigði sem hafa greinst og eru rakin annars vegar til Bretlands og Suður-Afríku.

Farþegar til Englands þurfa að framvísa neikvæðu vottorði
Farþegar sem hyggjast ferðast í gegnum England þurfa að framvísa neikvæðu Covid-vottorði til að fá inngöngu í landið frá og með næsta mánudegi, 18. janúar. Vottorðið má ekki vera eldra en þriggja daga.

Breski fjölmiðlamógúllinn David Barclay er látinn
Breski auðjöfurinn og fjölmiðlamógúllinn Sir David Barclay er látinn, 86 ára að aldri.

Taka skinkusamlokur af bílstjórum eftir Brexit
Vegna nýs viðskiptasamnings Evrópusambandsins og Bretlands eftir Brexit er innflutningur einstaklinga á ýmsum vörum óheimill, til dæmis þeim sem innihalda kjöt eða mjólkurvörur. Þessum reglum hafa bílstjórar sem ferðast á milli fengið að finna fyrir.

Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa.

Árásarmaðurinn í Forbury Gardens hlaut lífstíðardóm
Khairi Saadallah, árásarmaðurinn sem stakk þrjá menn til bana í Forbury Gardens í Bretlandi í fyrra, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Þá játaði Saadallah fyrir dómi að hafa reynt að myrða þrjá aðra menn sem voru einnig staddir í garðinum.

Setja aukinn kraft í bólusetningar
Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks.

Yfir áttatíu þúsund hafa látist í Bretlandi
Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst í Bretlandi hafa rúmlega áttatíu þúsund látist af völdum veirunnar. Undanfarnar vikur hafa um þúsund manns látist á hverjum sólarhring, en faraldurinn hefur verið í miklum vexti í landinu.

Búið að bólusetja Elísabetu og Filippus
Elísabet II Bretadrottning og Filippus prins, hertogi af Edinborg voru í dag bólusett við Covid-19. Bættast hjónin þar með í hóp um 1,5 milljón Breta sem hafa allavega fengið fyrri skammtinn af bóluefni.

Breyttar ferðatakmarkanir í Bretlandi og Danmörku
Breyttar ferðatakmarkanir eru í Bretlandi og Danmörku vegna faraldurs kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Neyðarástandi lýst yfir í London
Ráðamenn í London hafa lýst yfir neyðarástandi af ótta við að sjúkrahús í borginni ráði ekki við þá fjölgun sjúklinga sem tengd er við nýtt afbrigði nýju kórónuveirunnar. Á rúmri viku hefur sjúklingum í London sem þurft hafa í öndunarvél fjölgað úr 640 í 908 eða um 42 prósent.

Óttast að heilbrigðisstarfsfólk þurfi að velja hverjir fái læknisaðstoð
Rúmlega þrjátíu þúsund liggja nú á sjúkrahúsi í Bretlandi með Covid-19 en fjöldinn hefur aldrei verið meiri. Þegar mest var í fyrstu bylgju faraldursins lágu tæplega 22 þúsund inni.

Assange ekki sleppt gegn tryggingu
Julian Assange, stofnanda Wikileaks, verður ekki sleppt úr fangelsi gegn tryggingu að svo stöddu. Þetta var ákvörðun dómara í London eftir að verjendur Assange höfðu krafist þess að honum yrði sleppt.

Sextíu þúsund greindust á einum degi í Bretlandi
Fjöldi nýrra smita fór yfir sextíu þúsund í fyrsta sinn í Bretlandi í dag. Daglegur fjöldi greindra smita hefur verið yfir fimmtíu þúsund frá 29. desember síðastliðnum, en samhliða þessari fjölgun hefur álag á sjúkrahús landsins aukist til muna.

Rannsaka „óábyrga“ auglýsingaherferð Ryanair
Auglýsingamálastofnun Bretlands hafa borist kvartanir vegna auglýsinga flugfélagsins Ryanair, þar sem fólk er hvatt til ferðalaga í ljósi bólusetninga þar í landi. Flestir þeir sem kvarta telja auglýsingarnar villandi og „óábyrgar“ og að þær geri lítið úr áhrifum faraldursins. Stofnunin hefur ákveðið að hefja formlega rannsókn.

Fyrrum enskur landsliðsmaður látinn
Fyrrum enski landsliðsmaðurinn og leikmaður Manchester City, Colin Bell, er látinn 74 ára að aldri eftir stutta baráttu við veikindi.

Segir Íslendinga á Bretlandseyjum sýna hertum aðgerðum skilning
Nú er skollið á útgöngubann í Bretlandi sem mun gilda að minnsta kosti út miðjan febrúar. Boris Johnson, forsætisráðherra, sagði í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar að ljóst væri að næstu vikur framundan yrðu erfiðar.

Kristinn um úrskurðinn í máli Assange: „Ákvörðunin var rétt en á röngum forsendum“
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, segist finna fyrir miklum stuðningi við málstað Julians Assange, stofnanda Wikileaks. Í dag úrskurðaði dómari í dómsmáli gegn þeim síðarnefnda, um að hann skyldi ekki framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna.

Útgöngubann á Englandi
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í kvöld um útgöngubann vegna kórónuveirufaraldursins í Englandi. Í ávarpi sem hann flutti í kvöld sagði hann útbreiðslu nýs afbrigðis veirunnar, sem herjað hefur á Bretlandseyjar og er talið 50 til 70 prósent meira smitandi en flest önnur afbrigði, vera áhyggjuefni.

Boris Johnson kynnir hertar aðgerðir
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun klukkan átta kynna hertar aðgerðir vegna versnandi kórónuveirufaraldursins á Bretlandi. Búist er við að hann tilkynni um útgöngubann líkt og það sem var sett á í Skotlandi í dag.

Þau sem greinast með breska afbrigðið eru „undir smásjá“
Sóttvarnalæknir segir að aukið eftirlit sé haft með ferðalöngum frá Bretlandi á landamærum vegna hins svokallaða breska afbrigðis kórónuveirunnar. Mjög vel sé fylgst með þeim sem greinast með afbrigðið hér á landi.

Assange ekki framseldur til Bandaríkjanna
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verður ekki framseldur frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Þessi úrskurður bresks dómara var opinberaður fyrir skömmu. Assange, sem er 49 ára gamall, á allt að 175 ára fangelsi yfir höfði sér í Bandaríkjunum.

Landlægt útgöngubann kemur til greina í Englandi
Enn þarf að herða sóttvarnaraðgerðir í Englandi til að hægja á og stöðva dreifingu nýs afbrigðis nýju kórónuveirunnar þar í landi. Þetta sagði Matt Hancock, heilbrigðisráðherra landsins, í morgun en í gær voru tilkynnt tæplega 55 þúsund ný tilfelli og hafa rúmlega 75 þúsund manns dáið vegna faraldursins.

Bretar hefja bólusetningar með bóluefni AstraZeneca
Bólusetningar með bóluefni Oxford-AstraZeneca hefjast í dag og ætla Bretar að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi til að reyna að stemma stigu við hraðri útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi.

Íslendingum ráðið frá því að ferðast í gegnum Bretland
Utanríkisráðuneytið hefur birt orðsendingu á Facebook-síðu sinni þar sem fólki sem ferðast frá Íslandi er ráðlagt að forðast ferðalög í gegnum Bretland.

Gerry úr Gerry and the Pacemakers er látinn
Tónlistarmaðurinn Gerry Marsden, sem gerði garðinn frægan með ensku hljómsveitinni Gerry and the Pacemakers, er látinn. Hann var 78 ára gamall.

Svæðisbundnar aðgerðir verði líklega hertar í Bretlandi
Svæðisbundnar reglur í Bretlandi, til að hefta útbreiðslu covid-19, verða að öllum líkindum hertar að sögn Boris Johnson forsætisráðherra.

Bretar formlega gengnir úr Evrópusambandinu
Bretland hefur formlega segið skilið við Evrópusambandið en Bretar yfirgáfu innri markað sambandsins og tollabandalagið klukkan ellefu í gærkvöldi. Þetta markar nýtt tímabil í sögu Bretlands en það hefur verið aðili að Evrópusambandinu, og þar áður Evrópubandalaginu, frá 1. janúar 1973.

Lewis Hamilton heiðraður á nýju ári
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, verður Sir Lewis Hamilton á nýju ári.