Ferðalög

Ferðalög

Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Fréttamynd

Sótti kvittunina í ruslið og vann drauma­ferð til Ástralíu

Það munaði litlu að kvittunin sem átti eftir að koma Guðnýju Axelsdóttur og Páli Friðrikssyni alla leið til Ástralíu endaði einfaldlega í endurvinnslunni. Guðný hafði keypt sér Bondi Sands-vörur fyrir sumarferð, hent miðanum og hugsað ekkert meira um málið. Nokkrum dögum síðar sá hún auglýsingu um leik þar sem í boði var draumaferð fyrir tvo til Ástralíu.

Lífið samstarf

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum

Raunveruleikaþáttastjarnan Dani Bowman er stödd á Íslandi ásamt kærasta sínum Henry Andrade. Bowman gerði garðinn frægan sem þátttakandi í þáttunum Love on the Spectrum þar sem fólk á einhverfurófinu leitar að ástinni.

Lífið
Fréttamynd

Vaktin: Verk­falls­að­gerðum flug­virkja af­lýst

Verkfall flugvirkja stóð í um ellefu klukkustundir en var aflýst rétt fyrir hádegi. Icelandair aflýsti fjölda flugferða áður en Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair komust að samkomulagi. Fylgst var með gangi mála í vaktinni á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Beint flug til Portó

Ferðaskrifstofan Aventura býður upp á fjölbreytt úrval ferða allt árið um kring og þar skipa borgarferðir til spennandi áfangastaða í Evrópu stóran sess. Úrval borgarferða Aventura hefur verið í stöðugri þróun undanfarin ár og í haust hefur úrvalið verið aukið enn frekar.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu

Óvenju mörg tilfelli þar sem fólk hefur smitast af malaríu hafa komið upp á einum stærsta flugvelli Þýskalands og þegar hafa í það minnsta tveir látist. Talið er að malarían hafi borist með moskítóflugu um borð í flugvél en það hefur fengist staðfest að sex flugvallarstarfsmenn, karlmenn í mismunandi stöðum og á mismunandi svæðum vallarins, hafi smitast.

Erlent
Fréttamynd

Orðin háð því að vera „enginn“

Sóley Vera Helgadóttir var 17 ára þegar hún fór ein til Brasilíu í árs skiptinám sem hún hafði sjálf safnað fyrir. Eftir það var ekki aftur snúið. Síðan hefur hún búið, stundað nám, unnið og ferðast víða erlendis og fundið leiðir til að laga hversdagslífið að því að vera stöðugt á hreyfingu. Ferðalögin eru enda fyrir löngu hætt að vera tímabundið ævintýri eða frí. Þau eru einfaldlega lífsstíll.

Lífið
Fréttamynd

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent
Fréttamynd

Ferða­menn koma til að spyrja eftir hundinum

Hundur á sveitabæ einum í Húnaþingi er orðinn stjarna á netinu. Hann liggur gjarnan á áningarstað við Vatnsdalshóla og bíður eftir ferðamönnum sem streyma að til að fá að klappa honum.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar á fyrsta far­rými

Icelandair kynnir í dag fyrsta skrefið í breytingum á Saga Premium. Í tilkynningu segir að það sé betra farrými fremst í flugvélum félagsins. Nú er þá hægt að velja sér um fimm fargjaldaflokka ætli maður að fljúga með Icelandair.

Neytendur
Fréttamynd

„Svo­lítið eins og að vera á annarri plánetu“

Á sumrin huga margir Íslendingar að útlandaferðum. Sumir leggja leið sína til Tenerife, aðrir Alicante og ófáir gera sér borgarferð til Kaupmannahafnar. En fjórir tvítugir menn að norðan gerðust djarfari en margir og skelltu sér í reiðtúr um fjöll Kirgistan.

Ferðalög
Fréttamynd

Frá jólamörkuðum Evrópu til ævin­týra í Asíu og Af­ríku

Sérferðir Úrvals Útsýnar bjóða fjölbreytt úrval ferðalaga fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað einstakt, gista á góðum hótelum, njóta góðrar þjónustu og vandaðrar fararstjórnar í leiðinni. Næsta vetur er úr mörgu að velja, allt frá heillandi jóla- og aðventuferðum til evrópskra borga og aðventusiglinga milli spennandi áfangastaða yfir í ævintýraferð til Kína og Hong Kong og ógleymanlega safarí- og strandferð um Kenía.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Sankað að sér milljónum fylgj­enda á tíu ára ferli

Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir hefur skapað sér nafn fyrir stórbrotnar ljósmyndir úr íslenskri náttúru og sankað að sér meira en tveimur milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Ása var viðmælandi í nýjasta þætti Íslands í dag og veitti þar innsýn inn í líf og störf eins áhrifamesta kynningarafls íslenskrar ferðaþjónustu.

Lífið