Fréttir

Fréttamynd

Ekki hægt að sjá hver sendi gögn

Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri <em>Fréttablaðsins</em>, segir ekki hægt að sjá af tölvupóstum, sem fulltrúar Sýslumannsins í Reykjavík lögðu hald á í hádeginu, hver hefði látið <em>Fréttablaðið</em> hafa þá. Ef svo væri hefði blaðið eytt þeim frekar en að afhenda þá segir Sigurjón. Tölvupóstarnir sem um ræðir eru þeir sem <em>Fréttablaðið</em> hefur byggt fréttir sínar af aðdraganda Baugsrannsóknarinnar á.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar samþykktar í Alsír

Langstærstur hluti kjósenda í Alsír samþykkti í gær breytingar á stjórnarskrá landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu sem miðaði að því veita hundruðum íslamskra uppreisnarmanna sakaruppgjöf að hluta til, og binda þannig enda á áratugarlanga borgarastyrjöld í landinu. Rúmlega 97 prósent kjósenda samþykktu breytingarnar, en nærri 80 prósent af kosningabærum mönnum greiddu atkvæði.

Erlent
Fréttamynd

Þurfti að draga skipið til hafnar

Akureyrin EA, áður Guðbjörg ÍS, festi trollið í skrúfunni á Vestfjarðamiðum í morgun í vonskuveðri og draga þurfti skipið til hafnar. Baldvin Þorsteinsson EA kom á vettvang og sá um að draga Akureyrina inn í Skutulsfjörðinn og svo kom fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson og dró Akureyrina síðasta spölinn inn í Ísafjarðarhöfn.

Innlent
Fréttamynd

200 leigubílar niðri á bryggju

Nær allur leigubílafloti Reykjavíkur var kallaður út í eitt og sama verkefnið í dag þegar tvö þúsund og fjögur hundruð manna skemmtiferðaskip lagði að bryggju í Reykjavík. Hátt í tvö hundruð leigubílar voru sendir á kajann, auk fjölda langferðabíla, til að ferja fólkið í landi.

Innlent
Fréttamynd

Hvernig mat fá börnin okkar?

Hvernig matur er í boði fyrir börnin okkar í mötuneytum grunnskólanna? Lýðheilsustöð kannar nú málið. Menn telja þó enga þörf á að banna óhollustu eins og gert hefur verið í Bretlandi.

Innlent
Fréttamynd

Hundruð flýja vegna skógarelda

Yfir 300 slökkviliðsmenn berjast nú við skógarelda sem breiðst hafa út um tæplega 7000 hektara svæði í úthverfum Los Angeles borgar að undanförnu. Mörg hundruð manns hafa orðið að flýja heimili sín og hefur eldurinn eyðilagt að minnsta kosti eitt hús og valdið stórskemmdum á fleirum, en óttast er að talan muni hækka mikið á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Kjarasamningar felldir í Kópavogi

Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs felldu kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Þetta er í annað skipti á rúmum tveimur mánuðum sem félagar fella kjarasamning sem lagður er fyrir þá.

Innlent
Fréttamynd

Morgublaðið brýtur eigin reglu

Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins í gær segir að það sé brot á lögum að birta tölvupóstssamskipti einstaklinga. Morgunblaðið hefur þó að minnsta kosti tvívegis birt einkapóst einstaklinga án þeirra samþykkis.

Innlent
Fréttamynd

Borunarkostnaður gæti hækkað mikið

Kostnaður Landsvirkjunar af borun ganga fyrir Kárahnjúkavirkjun gæti hækkað um milljarða króna frá því sem samningur fyrirtækisins við Impregilo hljóðaði upp á.<em> Fréttablaðið</em> segir frá þessu í dag og segir vatn og misgengi í jarðlögum vera ástæðuna. Við þetta er því að bæta að einn boranna þriggja hefur ekki verið í notkun svo vikum skiptir. Það er vegna þess að verið er að snúa honum við eftir að hann gat ekki lokið sínum áfanga vegna aðstæðna. Þeim kafla verður lokið með eldri aðferðum.

Innlent
Fréttamynd

Sameiginlegt framboð í Garðabæ

Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Garðabæ hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor. Efnt verður til sameiginlegs opins prófkjörs um efstu sæti framboðslistans fyrir janúarlok og verður það bindandi fyrir þrjú efstu sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Harma umræðu um manneklu

Trúnaðarmenn leikskólakennara í Reykjavík taka undir yfirlýsingu stjórnar Félags leikskólakennara og telja miður í hvaða farveg umræðan um manneklu í leikskólum hefur farið. Í ályktun fundar trúnaðarmanna segir að leikskólar hafi haldið deildum og faglegu starfi skólanna gangandi eins lengi og mögulegt sé áður en gripið hefur verið til þeirra örþrifaráða að loka deildum eða senda börn heim.

Innlent
Fréttamynd

Geta misst allt að 2 mánuði úr

Hjartveik börn geta misst allt að tveimur mánuðum á ári úr skóla án þess að þeim sé bætt það upp. Margrét Ragnars, formaður Neistans, segir að það fari eftir skólum hvort börnin fái aukakennslu eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Sprengjuárás í Hillah

Um 200 manns hafa fallið í hryðjuverkaárásum í Írak undanfarna daga. Ljóst þykir að uppreisnarmenn ætla að kynda undir ófriðarbálinu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrög síðar í mánuðinum.

Erlent
Fréttamynd

Umferðarslys í Ártúnsbrekkunni

Umferðarslys varð í Ártúnsbrekkunni fyrir skemmstu og umferð um brekkuna er því stífluð til vesturs að öðru leyti en því að ein akrein er opin. Því má búast við einhverjum töfum á umferð næstu mínúturnar eða jafnvel lengur og því ráðlagt fyrir ökumenn að velja aðra leið ef mögulegt er.

Innlent
Fréttamynd

Innflutningurinn hefur tvöfaldast

Innflutningur á dýrum sem notuð eru við tilraunir hefur snaraukist á síðustu árum. Ólíkt því sem gerist í nágrannalöndunum hafa dýraverndunarsinnar ekki beint spjótum sínum að íslenskum tilraunastofum enda gilda mjög strangar reglur um meðferð dýranna.

Innlent
Fréttamynd

Evrópubúar mjög drykkfelldir

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vekur í nýrri skýrslu athygli á því hversu margir látast af völdum áfengis eða sjúkdómum tengdum áfengi í Evrópu. Fram kemur að Evrópubúar drekka tvöfalt meira en meðaltalið er í heiminum en árið 2002 létust sex hundruð þúsund manns í Evrópu af völdum áfengis eða sjúkdóma tengdum neyslunni.

Erlent
Fréttamynd

Jarðgöng til Bolungarvíkur

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að ráðist verði þegar í stað í undirbúning jarðgangagerðar undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Bifhjólaslys í Ártúnsbrekku

Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust í umferðarslysi í Ártúnsbrekkunni nú á fjórða tímanum. Bæði voru flutt á slysavarðsstofu. Umferð um Ártúnsbrekkuna tafðist til vesturs á meðan verið var að gera að sárum fólksins og koma því í sjúkrabíl og koma bifhjólinu af veginum.

Innlent
Fréttamynd

Bessastaðir orðnir bleikir

Bessastaðir voru lýstir upp í bleikum lit í kvöld og munu vera það til mánudagsmorguns. Þetta er gert í tilefni af því að í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi, sjötta árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku.>

Innlent
Fréttamynd

Litlar skemmdir í hvassviðri

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöld þegar járnplötur fóru að fjúka úr bunka af plötum sem stóð við Gíslabæ á Hellnum á Snæfellsnesi og dreifðust víða um nágrennið. Annars gekk hvassviðrið, sem spáð var, öllu friðsamar yfir en búist var við. Í Reykjavík stóð það til dæmis ekki í nema um það bil tvær klukustundir um miðnæturbil og olli ekki vandræðum. Vindur fór þó upp í 40 metra á sekúndu í kviðum á Kjalarnesi.

Erlent
Fréttamynd

Dæmt til að borga starfsmanni laun

Fyrirtækið Norðan heiða á Hvammstanga verður að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Starfsmanninum var sagt upp störfum vorið 2004 og skömmu eftir uppsögnina lét hann af störfum. Hann og yfirmann hans greindi á um hvort starfslokin væru að ósk starfsmannsins eða fyrirtækisins og höfðaði hann mál til að fá greidd laun í uppsagnarfresti.

Innlent
Fréttamynd

Fatlaðir lyfta á Lækjartorgi

Heimsmeistaramótið í aflraunum fatlaðra hefst á Lækjartorgi í dag. Tíu keppendur reyna með sér en íranskir aflraunamenn geta ekki tekið þátt þar sem þeir fengu ekki vegabréfsáritun í tæka tíð. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Fóstur í póstsendingu

Lögreglumönnum rann kalt vatn milli skinns og hörunds þegar þrjú fóstur fundust í póstsendingu á leið til Miami í gær. </font />

Erlent
Fréttamynd

Opið daglega eftir áramót

"Sögusagnir um að loka eigi Fjarskiptasafninu við Suðurgötu eru ekki sannar," segir Margrét Hallgrímsdóttir, þjóðminjavörður.

Innlent
Fréttamynd

Innkalla ákveðnar gerðir af Saab

Saab-bílaverksmiðjurnar hafa ákveðið að innkalla 300 þúsund bifreiðar af gerðinni Saab 9-3s og 9-5s af árgerð 2000 til og með 2002 vegna galla í kveikjukerfi þar sem kerfið hefur tilhneigingu til að yfirhitna. Við innköllun verður skipt um kveikjukerfi í bílunum. Innköllunin er á heimsvísu svo að íslenskir eigendur þessara bíla geta átt von á því að samband verði haft við þá á komandi mánuðum og skipt um kveikjukerfið.

Erlent
Fréttamynd

Fundur hafi skilað miklum árangri

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, sögðu að fundur þeirra í gær hefði skilað miklum árangri þótt ekki lægi enn fyrir hver yrði næsti kanslari landsins. Hvorki jafnaðarmenn né kristilegir demókratar náðu nægu fylgi í kosningunum 18. september til að geta myndað stjórn með samstarfsflokkum sínum og því hafa flokkarnir neyðst til að leita á náðir hvor annars með stjórnarmyndun.

Erlent
Fréttamynd

Vill þjóðskrána til Ísafjarðar

"Þetta smellpassar við stefnu ríkisstjórnarinnar," segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sem vill að Hagstofan flytji starfsemi sína til Ísafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Samkeppnishæfi Íslands eykst

Ísland er nú í sjöunda sæti í samanburði Alþjóðlegu efnahagsstofnunarinnar á samkeppnishæfi þjóða og hefur hækkað um þrjú sæti frá árinu 2004. Athyglisvert er að í 10 efstu sætunum eru allar Norðurlandaþjóðirnar. Við mat á samkeppnishæfi er litið annars vegar á forsendur framtíðarhagvaxtar og hins vegar núverandi grundvöll verðmætasköpunar.

Innlent
Fréttamynd

Brjótast milli heimsálfa

Í það minnsta tveir létust þegar um sex hundruð manns reyndu að brjóta sér leið til Spánar yfir landamæri Marokkós.

Erlent
Fréttamynd

Tókst ekki að semja um kolmunna

Samningamenn Rússa, Íslendinga, Færeyinga, Norðmanna og Evrópusambandslandanna náðu ekki samkomulagi um skiptingu kolmunnakvótans á milli ríkjanna á fundi sem lauk í Reykjavík í gær. Enn krefjast þjóðirnar samanlagt yfir hundrað prósenta af því magni sem vísindamenn telja ráðlegt að veiða úr stofninum árlega.

Innlent