Fréttir
Evrópubúar mjög drykkfelldir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vekur í nýrri skýrslu athygli á því hversu margir látast af völdum áfengis eða sjúkdómum tengdum áfengi í Evrópu. Fram kemur að Evrópubúar drekka tvöfalt meira en meðaltalið er í heiminum en árið 2002 létust sex hundruð þúsund manns í Evrópu af völdum áfengis eða sjúkdóma tengdum neyslunni. Erlent 23.10.2005 15:01
Jarðgöng til Bolungarvíkur Ríkisstjórnin samþykkti í gær að ráðist verði þegar í stað í undirbúning jarðgangagerðar undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Innlent 23.10.2005 15:01
Bifhjólaslys í Ártúnsbrekku Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust í umferðarslysi í Ártúnsbrekkunni nú á fjórða tímanum. Bæði voru flutt á slysavarðsstofu. Umferð um Ártúnsbrekkuna tafðist til vesturs á meðan verið var að gera að sárum fólksins og koma því í sjúkrabíl og koma bifhjólinu af veginum. Innlent 23.10.2005 15:01
Bessastaðir orðnir bleikir Bessastaðir voru lýstir upp í bleikum lit í kvöld og munu vera það til mánudagsmorguns. Þetta er gert í tilefni af því að í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi, sjötta árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku.> Innlent 23.10.2005 17:31
Litlar skemmdir í hvassviðri Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöld þegar járnplötur fóru að fjúka úr bunka af plötum sem stóð við Gíslabæ á Hellnum á Snæfellsnesi og dreifðust víða um nágrennið. Annars gekk hvassviðrið, sem spáð var, öllu friðsamar yfir en búist var við. Í Reykjavík stóð það til dæmis ekki í nema um það bil tvær klukustundir um miðnæturbil og olli ekki vandræðum. Vindur fór þó upp í 40 metra á sekúndu í kviðum á Kjalarnesi. Erlent 23.10.2005 15:00
Dæmt til að borga starfsmanni laun Fyrirtækið Norðan heiða á Hvammstanga verður að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Starfsmanninum var sagt upp störfum vorið 2004 og skömmu eftir uppsögnina lét hann af störfum. Hann og yfirmann hans greindi á um hvort starfslokin væru að ósk starfsmannsins eða fyrirtækisins og höfðaði hann mál til að fá greidd laun í uppsagnarfresti. Innlent 23.10.2005 15:01
70 iðnaðarmenn fá niðurgang Um sjötíu iðnaðarmenn á Grundartanga veiktust af matareitrun aðfaranótt fimmtudags eftir að hafa borðað svínagúllas á miðvikudag. Sumir voru svo illa haldnir að þeir treystu sér ekki í vinnuna daginn eftir. "Það kom upp sýking, en það er ekkert komið úr rannsóknum enn hvað þetta var. Áður en við vitum nákvæmlega hvað þetta er getum við ekki fullyrt eitt eða neitt," segir Helgi Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Innlent 23.10.2005 15:01
Afkoma ríkisins batnar milli ára Bráðabirgðatölur fyrir annan ársfjórðung þessa árs benda til þess að afkoma hins opinbera hafi batnað verulega frá því í fyrra að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Útlit er fyrir að heildartekjur ríkissjóðs hafi orðið 87,3 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjur hafi aukist um 30,1 prósent frá sama fjórðungi síðasta árs en gjöld um 16,4 prósent. Viðskipti innlent 23.10.2005 15:01
Senda viðbótarherlið að girðingu Spánverjar og Marokkóbúar hyggjast senda viðbótarherlið til að takast á við hundruð afrískra innflytjenda sem hafa undanfarna daga reynt að komast yfir rammgerðar vírgirðingar á norðuströnd Afríku yfir landamæri Spánar í von um betra líf. Forsætisráðherrar landanna tveggja komust að samkomulagi um þetta í gær eftir að fimm manns höfðu látist við að reyna að komast yfir girðingarnar. Erlent 23.10.2005 15:00
Actavis kaupir ungverskt félag Actavis undirritaði í dag samning um kaup á ungverska lyfjafyrirtækinu Kéri Pharma. Félagið var stofnað árið 1991 og sérhæfir sig í þróun, sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Mið- og Austur-Evrópu. Viðskipti innlent 23.10.2005 15:01
Framkvæmdastjórinn svarar ekki Fréttastofan hefur reynt að ná í framkvæmdastjóra Slippstöðvarinnar á Akureyri í dag, vegna aðgerða starfsmanna sem brugðu á það ráð að loka Slippstöðinni vegna vangoldinna launa, en án árangurs. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hefur hvorki verið óskað eftir aðkomu þeirra að málinu né Sýslumanns. Innlent 23.10.2005 15:01
Þorsteinn ritar sögu þingræðis Forsætisnefnd hefur ráðið Þorstein Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins og síðar sendiherra, til að rita sögu þingræðis á Íslandi. Tilefnið er að um þessar mundir er öld liðin frá því þingræði var tekið upp á Íslandi. Skipuð hefur verið tveggja manna ritnefnd sem í eiga sæti Helgi Skúli Kjartansson, prófessor í sagnfræði, og dr. Ragnhildur Helgadóttir, lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík. Innlent 23.10.2005 15:01
Vinsældir Villepin aukast Forsætisráðherra Frakklands, Dominique de Villepin, mælist nú í fyrsta sinn með meira persónulegt fylgi en innanríkisráðherra landsins, Nicolas Sarkozy, en talið er að þeir muni keppa um forsetaembættið í Frakklandi árið 2007. Innlent 23.10.2005 15:01
Tjáningarfrelsi eða persónuvernd? Sýslumaðurinn í Reykjavík fór inn á skrifstofu Fréttablaðins í dag og lagði hald á tölvupóst Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hafði undir höndum.Lagt var bann við birtingu úr bréfunum að kröfu Jónínu. Dómstólar þurfa nú að kveða upp úr um hvort sé mikilvægara, tjáningarfrelsi fjölmiðla eða persónuvernd. Innlent 23.10.2005 16:58
Arfavitlaus hagstjórn "Hagstjórnin er eins arfavitlaus og hægt er að hugsa sér," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims á Akureyri. Fyrirtæki sem byggja afkomu sína á erlendri mynt líða fyrir hátt gengi krónunnar og hækkandi stýrivexti. Gengi krónunnar styrkist enn og Seðlabankinn hefur tilkynnt um hækkun stýrivaxta á þriðjudag. Innlent 23.10.2005 15:01
Sleppt úr haldi Judith Miller, blaðamaður New York Times, mætti fyrir dóm í gær og freistaði þess að varpa ljósi á þátt Hvíta hússins í að ljóstra upp um nafn leyniþjónustumanns við bandarísku leyniþjónustuna CIA. Miller hafði setið í fangelsi í 85 daga þegar henni var sleppt gegn loforði um að bera vitni í sérstökum réttarhöldum um samræður hennar í júlí 2003 við Lewis Libby, starfsmannastjóra hjá Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna. Erlent 23.10.2005 15:01
Fuglaflensa muni breiðast hratt út Sérfræðingar innan Sameinuðu þjóðanna segja fuglaflensuna muni breiðast hratt út um allan heim og geta orðið allt að 150 milljónum manna að bana, verði ekki gerðar ráðstafanir hið snarasta til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Fuglaflensan hefur nú þegar orðið tugum að bana. Erlent 23.10.2005 15:00
Frelsaði kynlífsþræla í Birmingham Breska lögreglan frelsaði í gærkvöldi nítján konur, flestar frá Austur-Evrópu, sem var haldið nauðugum á nuddstofu í Birmingham, en líklegt er talið að þær hafi verið þvingaðar til að stunda vændi. Konurnar, sem voru meðal annars frá Lettlandi, Tyrklandi, Póllandi, höfðu verið á nuddstofunni um nokkurt skeið. Erlent 23.10.2005 15:01
GSM-sambandslaust fyrir vestan Vegna slitins ljósleiðara í Tungudal á Ísafirði er GSM-símasambandslaust á Suðureyri og Flateyri. Einnig eru neyðarsímar í jarðgöngunum undir Botns- og Breiðadalsheiðar óvirkir. Lögreglan á Ísafirði verður með aukið eftirlit í jarðgöngum meðan á viðgerð stendur. Innlent 23.10.2005 15:01
Lögbann á fréttir úr tölvupósti Sýslumaðurinn í Reykjavík setur lögbann á birtingu tölvupósts Jónínu Benediktsdóttur sem Fréttablaðið hefur haft undir höndum. Aðför að rit- og málfrelsi, segir fréttaritstjóri Fréttablaðsins. Skýrt brot á lögum, segir lögmaður Jónínu. Innlent 23.10.2005 15:01
Fulltrúar sýslumanns á Fréttablaði Fulltrúar frá Sýslumanninum í Reykjavík komu á ritstjórnarskrifstofu Fréttablaðsins skömmu fyrir hádegi og lögðu fram lögbann á birtingu gagna að beiðni Jónínu Benediktsdóttur. Lagt var hald á birt og óbirt gögn í tengslum við fréttir blaðsins af samskiptum Jónínu Benediktsdóttur við Styrmi Gunnarsson og fleiri í tenglum við málareksturinn gegn Baugi. Innlent 23.10.2005 15:01
Samkomulag um að sækja tækin Landsvirkjun hafði náð samkomulagi við stjórnendur Slippstöðvarinnar á Akureyri um að sækja tæki sem nota átti við Kárahnjúka og fengið fyrirtæki til að sækja þau, segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar á Kárahnjúkum. Innlent 23.10.2005 15:01
Mannskætt rútuslys í Kasmír 44 eru látnir og svipað margir slasaðir eftir að rúta fór út af fjallvegi í inverska hluta Kasmír-héraðs í gær. Svo virðist sem bílstjórinn hafi misst stjórn á rútunni en vegir á svæðinu þar sem slysið varð munu vera mjög þröngir og brattir. Fregnir herma að hátt í 90 manns hafi verið í rútunni sem tók aðeins 40 farþega og voru fjölmargir á þaki rútunnar þegar hún valt niður bratta hlíð. Erlent 23.10.2005 15:00
Hafnaði kröfum beggja aðila Hæstiréttur hefur sýknað Samskip af sjö milljóna króna skaðabótakröfu útgerðarkonu í Ólafsvík og útgerðarkonuna af þriggja milljóna kröfu Samskipa. Samskip fluttu hundrað tonn af frosnum sandsílum til landsins fyrir konuna árið 1999. Deilt var um hvort flytja ætti sílin alla leið til Ólafsvíkur eða aðeins til Reykjavíkur þar sem þau urðu innlyksa á gámasvæði Samskipa næstu þrjú árin. Innlent 23.10.2005 15:01
Fundu sundurbútað lík stúlku Lögreglumenn í Lundúnum hafa fundið lík fimmtán ára stúlku sem saknað hafði verið síðan á mánudag. Lík stúlkunnar fannst sundurbútað í Catford í suðurhluta Lundúna eftir að lögregla var kölluð á staðinn í kjölfar tilkynningar um að maður hefði skorið sjálfan sig. Hann og kona hans voru bæði handtekin og sæta nú yfirheyrslum um morðið á stúlkunni. Erlent 23.10.2005 15:00
Ráðist í jarðgöng undir Óshlíð Ríkisstórnin ákvað á fundi sínum í morgun að ráðast nú þegar í gerð jarðganga undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, en Óshlíðarvegurinn er eina tenging Bolvíkinga við umheiminn landleiðina. Þar hefur grjóthrun færst í vöxt og hvað eftir annað legið við slysum. Ráðgert er að göngin verði 120 metra löng og leysi af hólmi hættulegasta kafla Óshlíðarvegar. Innlent 23.10.2005 15:01
Alvarlegt umferðarslys í Póllandi Að minnsta kosti ellefu eru látnir og tugir slasaðir eftir að skólabíll með hátt í 60 menntaskólanemum skall á vöruflutningabíl í austurhluta Póllands í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir slökkviliði á vettvangi að skólabíllinn hafi lent beint framan á vöruflutningabílnum, snúist á veginum og kjölfarið hafi kviknað í honum. Ungmenninn náðu mörg hver að forða sér úr rútunni en mörg þeirra brenndust illa. Erlent 23.10.2005 15:00
Pólskir pílagrímar dóu í slysi Að minnsta kosti þrettán pólskir unglingar létust í hörðum árekstri rútu og vöruflutningabíls í sunnanverðu Póllandi í gær. Erlent 23.10.2005 15:01
Komu í veg fyrir bruna í Skútuvogi Lögreglu- og slökkviliðsmönnum tókst með snaræði að koma í veg fyrir eldsvoða í lyftarageymslu við Skútuvog í nótt þar sem ofhitnun hafði orðið í rafgeymum. Með því að aftengja allt og kæla geymana var komið í veg fyrir að verr færi. Ekki er vitað hvers vegna geymarnir ofhitnuðu. Innlent 23.10.2005 15:00
25 manns sagt upp í Stykkishólmi Tuttugu og fimm manns hefur verið sagt upp störfum hjá rækjuvinnslu Sigurðar Ágústssonar ehf. í Stykkishólmi. Fyrirtækið mun hætta rækjuvinnslu sinni frá og með næstu áramótum. Ástæða lokunarinnar er, samkvæmt fréttatilkynningu, langvarandi óhagstæð ytri skilyrði í rækjuvinnslu. Innlent 23.10.2005 15:01