Fréttir

Fréttamynd

Tengsl foreldra og barna í hættu

Það tekur sýslumann Reykjavíkur níu mánuði að meðaltali að fella úrskurð í umgengnismáli, og dóms- og kirkjumálaráðuneytið tekur sér enn rýmri tíma til þess sama. Þetta kemur fram í kandidatsritgerð Helga Áss Grétarssonar, sem hann varði við lagadeild Háskóla Íslands á föstudag. Helgi skoðaði 302 umgengnismál hjá sýslumanninum í Reykjavík og 41 mál á sama tímabili hjá ráðuneytinu á árunum 2002 til 2003.

Innlent
Fréttamynd

Hrottaleg líkamsárás

Átján ára piltur liggur alvarlega slasaður á Landspítalanum eftir hrottalega líkamsárás í Garðabæ í nótt. Áverkarnir gefa til kynna að árásarmennirnir hafi verið með stóran hníf eða sveðju.

Innlent
Fréttamynd

Einfaldari teikning

Leiðarkerfi strætisvagna hefur tekið á sig mynd neðanjarðarlestarkerfis á teikningu landfræðings. Hann segir teikningarnar miklu einfaldari og skiljanlegri en það kerfi sem notast er við núna. Forsvarsmenn Strætós og borgarstjóri eru þó ekki sannfærðir um það.

Innlent
Fréttamynd

Undrast ákvörðun forsætisnefndar

"Okkur þykir það afar undarlegt að forsætisnefnd Alþingis skuli ekki hafa fundið einn einasta sagnfræðing til að vinna þetta verk," segir Guðni Thorlacius Jóhannesson, formaður Sagnfræðingafélags Íslands, um þá ákvörðun nefndarinnar að fela Þorsteini Pálssyni umsjón með ritun sögu þingræðis á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert lát á vanda í rækjuvinnslu

"Fyrir einu og hálfu ári voru átján rækjuframleiðendur hér á landi en nú eru þeir eitthvað um tíu," segir Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands. "Þetta hefur verið erfitt lengi og ég sé ekki fram á að ástandið eigi eftir að batna neitt á næstunni svo það er við því að búast að fleiri hætti," bætir hann við.

Innlent
Fréttamynd

Nei takkinn gerður óvirkur fyrir kjör þingforseta

Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gerir kosningu forseta Alþingis við þingsetningu í gær að umtalsefni á heimasíðu sinni. Magnús kallar atkvæðagreiðsluna skrípaleik. Við atkvæðagreiðlsuna, hafði NEI takkinn verið gerður óvirkur hjá þingmönnum, þannig að bara var hægt að velja JÁ, eða takkann sem gefur til kynna að þingmaður greiði ekki atkvæði, heldur sitji hjá. Þannig hafi ekki komið fram við kosninguna hve margir voru hreinlega og alfarið á móti því að Sólveig Pétursdóttir yrði forseti.

Innlent
Fréttamynd

Tyrkir bjartsýnir

Stjórnvöld í Tyrklandi eru bjartsýn á aðildarviðræðurnar sem hefjast formlega við Evrópusambandið í Brussel á morgun, þrátt fyrir að mikil andstaða sé við aðildina innan sumra ESB-ríkja.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á tvo menn með hnífi

Tveir menn voru fluttir á slysadeild í nótt, eftir að ráðist var á þá með stórum hnífi eða sveðju í Garðabæ. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er annar þeirra alvarlega slasaður, höfuðkúpubrotinn, með stórt sár á höfði og sár á höndum. 

Innlent
Fréttamynd

Hugmyndum slegið á frest

Sjálfstæðismenn vilja lagfæra sautján leiksvæði, opin svæði, íþróttasvæði og skólalóðir í Breiðholti. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi lagði fram tillögu þess efnis á síðasta fundi framkvæmdaráðs Reykjavíkurborgar. Að Kjartans sögn hafa Breiðhyltingar tekið að kvarta undan ástandi svæðanna og viðhaldi á skólalóðum og vilja að hlúð sé að hlutum svo sem girðingum, netum í mörkum og malbiki. Afgreiðslu tillögunnar var frestað að ósk fulltrúa R-listans, en hún verður tekin fyrir í næstu viku.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmenni við opnun

Fjölmenni var við opnun kosningaskrifstofu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í dag. Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi og eiginkona Geirs H. Haarde sem sterklega er orðaður við formannssæti Sjálfstæðisflokksins, lýsti yfir stuðningi við Vilhjálm.

Innlent
Fréttamynd

Greinir á

Lögmenn 365 miðla og Jónínu Benediktsdóttur greinir verulega á um það hvort lögbann, sem sýslumaður setti á gögn í fórum blaðamanna Fréttablaðsins, hafi verið lögmætt.  Lögmaður Jónínu Benediktsdóttur telur að lögbannið sé fyllilega eðlilegt.

Innlent
Fréttamynd

Tveir Malasíumenn grunaðir um ódæðið á Balí í gær

Yfirvöld á Balí á Indónesíu segja ljóst að sprengingarnar sem urðu á Kúta-strönd á Balí í gær, hafi verið sjálfsmorðssprengingar og eru tveir hryðjuverkamenn frá Malasíu grunaðir um verknaðinn. Að minnsta kosti tuttugu og sex menn létu lífið í árásunum, þar af margir ferðamenn, og um hundrað og tuttugu særðust, margir lífshættulega.

Erlent
Fréttamynd

Þýsku kosningunum lýkur í dag

Kosið er til þýska sambandsþingsins í borginni Dresden í austurhluta Þýskalands í dag, en kosningum þar var frestað fyrir tveimur vikum vegna dauðsfalls eins frambjóðanda frá borginni. Vonir eru bundnar við að úrslitin í Dresden muni leysa þá stjórnmálakreppu sem ríkt hefur í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Gýs í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec, sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvadors, byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í um hundrað ár. Hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Svandís efst í forvali VG

Svandís Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, varð hlutskörpust í forvali flokksins í Reykjavík sem haldið var í gær og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor.

Innlent
Fréttamynd

Komum standandi úr prófkjöri

"Þetta var frekar afgerandi niðurstaða. Ég er fyrst og fremst ánægð með að við skulum hafa komið standandi frá okkar fyrsta prófkjöri," segir Svandís Svavarsdóttir sem var kosin til þess að leiða lista vinstri grænna í komandi borgarstjórnarkosningum.

Innlent
Fréttamynd

Viðskila við gönguhóp

Lögreglan á Hvollsvellli var í dag ræst út til leitar að konu sem hafði orðið viðskila við gönguhóp.

Innlent
Fréttamynd

Nýr lyfjagagnagrunnur landlæknis

Landlæknisembættið hefur komist að því að allt að tíu læknar hafi ávísað vanabindandi lyfjum til eins og sama fíkils, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis.

Innlent
Fréttamynd

Dreginn aflvana til hafnar

Línubáturinn Gefjun varð vélarvana tæpum tuttugu sjómílum utan við Skagaströnd um klukkan hálf ellefu í fyrrakvöld. Björgunarbáturinn Húnabjörg lagði af stað frá Skagaströnd um miðnætti og kom með línubátinn í togi til hafnar um klukkan fimm.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin vill fækka ráðuneytum

Fækkun ráðuneyta úr þrettán í níu og lög um óháðar rannsóknarnefndir eru meðal stefnumála Samfylkingarinnar í vetur en þau voru kynnt í dag. Málin sem Samfylkingin leggur fram á Alþingi eru undir yfirskriftinni Stöðugleiki - Jafnræði - Stjórnfesta.

Innlent
Fréttamynd

Átök á Gaza

Til skotbardaga kom milli palestínskra lögreglumanna og meðlima samtaka Hamas á Gaza í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem til átaka kemur síðan að Ísraelar létu Gaza í hendur Palestínumanna í síðasta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Tveir skornir með sveðju

Fjórir átján ára piltar eru í haldi lögreglu eftir að hafa ráðist á tvo menn á tvítugsaldri með sveðju eða hnífi í Garðabænum í nótt. Annar mannanna er alvarlega slasaður.

Innlent
Fréttamynd

Brotið á rétti foreldra

Ríkið hefur oftsinnis brotið á rétti foreldra í umgengismálum að mati kandidats við lagadeild Háskóla Íslands. Dæmi eru um að vel á fjórða ár hafi liðið án þess að faðir hafi fengið að sjá barnið sitt, þrátt fyrir að fólk eigi rétt á skjótri meðferð hins opinbera í umgengnismálum.

Innlent
Fréttamynd

Ein og yfirgefin

Fjögurra ára gömul stúlka fannst ein og yfirgefin á náttfötunum úti á götu um miðja nótt í úthverfi New York í Bandaríkjunum. Það var kona sem tók eftir henni út um gluggann hjá sér, og veitti því strax athygli að ekki væri allt með felldu.

Erlent
Fréttamynd

Færri ráðuneyti

Það kom fram á fréttamannafundi sem haldinn var í gær að þingflokkur Samfylkingarinnar vill fækka ráðuneytunum þrettán í níu. Flokkurinn vill að skilið verði milli heilbrigðis- og tryggingamála, og að stofnað verði sérstakt innanríkisráðuneyti. Önnur áherslumál þingflokksins eru aukið framboð á menntun fyrir fólk á vinnumarkaðnum, leiðrétting kjaraskerðingar lífeyrisþega og að afkomutryggingu verði komið á fyrir þá.

Innlent
Fréttamynd

Eldgos í El Salvador

Eldfjallið Ilamatepec sem er skammt frá borginni Santa Ana í vesturhluta El Salvador byrjaði að gjósa í nótt eftir að hafa legið í dvala í áratugi. Mikið hraun flæðir nú frá fjallinu og reykmökkur hefur náð rúmlega fimmtán kílómetra hæð.

Erlent
Fréttamynd

Mikill viðbúnaður

Mikill viðbúnaður er í höfuðborg Indónesíu, Djakarta, vegna sprengjutilræðanna á Kúta-ströndinni á Balí, í gær. Þrjátíu manns létu lífið í árásunum og um hundrað og tuttugu eru slasaðir, margir lífshættulega.

Erlent
Fréttamynd

Aðildarviðræður í uppnámi

Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í gær vegna aðildarviðræðna sambandsins við Tyrkland sem hefjast eiga í dag. Vegna andstöðu nokkurra aðildarlanda ESB er ekki ljóst hvort viðræðurnar geti hafist.

Erlent
Fréttamynd

Njósnað um Benedikt páfa

Austur-þýska leyniþjónustan sáluga, Stasi, áleit Joseph Ratzinger kardinála, sem nú er Benedikt páfi sextándi, einn hættulegasta gagnrýnanda kommúnisma og njósnaði um hann frá árinu 1974. Þetta kemur fram í þýska tímaritinu Bild am Sonntag sem birti nýlega gögn sem sýna að Stasi fylgdist náið með Ratzinger í mörg ár.

Erlent
Fréttamynd

Gefjun KE vélarvana í Húnaflóa

Vélarbilun varð í bátnum Gefjunni KE-9 í utanverðum Húnaflóa á milli klukkan tíu og ellefu í gærkvöld. Tveir menn voru um borð og sakaði þá ekki. Björgunarbáturinn Húnabjörg frá Skagaströnd fór að Gefjuninni og kom með hana að landi, í togi, rétt fyrir klukkan fimm í morgun.

Innlent