Fréttir Sjö Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraela Sjö Palestínumenn létust og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. Erlent 28.10.2005 07:18 Einstaklingar tvöfalda lántökur Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent. Innlent 28.10.2005 07:26 Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú. Innlent 28.10.2005 07:16 Bandaríkjamenn kaupa flensulyf Bandaríkjamenn eru farnir að vera uggandi vegna fuglaflensunnar, líkt og Evrópubúar. Erlent 27.10.2005 21:45 Grunaðir um að skipuleggja árás í Danmörku Fjórir múslímar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær ætluðu að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Mennirnir fjórir eru á aldrinum sextán til tuttugu og ára og eru allir danskir ríkisborgarar. Erlent 28.10.2005 07:11 Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir. Innlent 27.10.2005 21:15 McDonalds merkja matinn Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. Erlent 27.10.2005 21:47 Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló. Erlent 27.10.2005 21:53 Sjimpansar ekki vinir í raun Sjimpansar eru ekki vinir í raun. Þetta er í stuttu máli niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum. Athugað var hvort sjimpansar, sem afhentur væri matur, deildu honum með öðrum sjimpönsum sem ekki fengju mat. Erlent 27.10.2005 21:52 Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. Innlent 27.10.2005 21:42 Suðurnesjaliðin taplaus Grindavík og Njarðvík eru enn taplaus eftir leiki kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Grindavík valtaði yfir Hamar/Selfoss 114-84 og Njarðvík vann nauman sigur á Haukum í Njarðvík 78-74. Sport 27.10.2005 21:16 Haukar töpuðu stórt í Frakklandi Kvennalið Hauka tapaði stórt fyrir franska liðinu Pays D´Aix í Evrópukeppni kvenna í körfuknattleik í kvöld 99-59. Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 25 stig og 11 fráköst, en Helena Sverrisdóttir kom næst með 17 stig. Sport 27.10.2005 20:19 Yngsti lifrarþegi landsins Innlent 27.10.2005 17:34 Naumur sigur á Pólverjum Íslenska landsliðið lagði Pólverja 38-37 í vináttuleik ytra nú áðan, en leikurinn er liður í fjögurra liða æfingamóti sem fram fer þar í landi. Staðan í hálfleik var 18-17 fyrir Ísland og Ólafur Stefánsson var markahæstur íslenska liðsins með 10 mörk, en Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með 7 mörk. Sport 27.10.2005 19:28 Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. Innlent 27.10.2005 19:26 Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. Innlent 27.10.2005 19:26 Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. Erlent 27.10.2005 19:22 Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. Innlent 27.10.2005 19:19 Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. Innlent 27.10.2005 19:14 Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:13 Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:07 Íhugar að stofna eigið flugfélag Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu. Innlent 27.10.2005 17:50 Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur. Innlent 27.10.2005 17:34 Wenger fær ekki háar summur í janúar Keith Edelman, yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, segir að þó bráðlega verði farið að selja Highbury undir framtíðar íbúðir, muni Arsene Wenger ekki geta vænst þess að fá peninga til leikmannakaupa strax og segir þá fjámuni sem koma muni inn á næstunni alla fara í nýja leikvanginn, Ashburton Grove. Sport 27.10.2005 17:25 Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til. Innlent 27.10.2005 17:50 Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. Innlent 27.10.2005 17:43 Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. Innlent 27.10.2005 17:37 Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. Innlent 27.10.2005 17:26 Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. Erlent 27.10.2005 17:18 Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. Innlent 27.10.2005 17:14 « ‹ ›
Sjö Palestínumenn drepnir í loftárásum Ísraela Sjö Palestínumenn létust og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðið í gær. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. Erlent 28.10.2005 07:18
Einstaklingar tvöfalda lántökur Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent. Innlent 28.10.2005 07:26
Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú. Innlent 28.10.2005 07:16
Bandaríkjamenn kaupa flensulyf Bandaríkjamenn eru farnir að vera uggandi vegna fuglaflensunnar, líkt og Evrópubúar. Erlent 27.10.2005 21:45
Grunaðir um að skipuleggja árás í Danmörku Fjórir múslímar sem voru handteknir í Kaupmannahöfn í gær ætluðu að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu, að öllum líkindum i Danmörku. Mennirnir fjórir eru á aldrinum sextán til tuttugu og ára og eru allir danskir ríkisborgarar. Erlent 28.10.2005 07:11
Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir. Innlent 27.10.2005 21:15
McDonalds merkja matinn Vegna óska margra viðskiptavina sinna hefur McDonalds-hamborgarakeðjan ákveðið að gefa upp næringarupplýsingar um vörur sínar á neytendaumbúðunum. Erlent 27.10.2005 21:47
Fyrsta gervitungli Norðmanna skotið á loft Fysta gervitungli Norðmanna var skotið á loft í gær og heppnaðist geimskotið vel. Yfir áttatíu norskir nemendur tóku þátt í að hanna og smíða gervitunglið. Vefútgáfa norska dagblaðsins Aftenposten segir frá þessu en gervitunglið vegur um eitt kíló. Erlent 27.10.2005 21:53
Sjimpansar ekki vinir í raun Sjimpansar eru ekki vinir í raun. Þetta er í stuttu máli niðurstaða rannsóknar vísindamanna við Kaliforníuháskóla í Bandaríkjunum. Athugað var hvort sjimpansar, sem afhentur væri matur, deildu honum með öðrum sjimpönsum sem ekki fengju mat. Erlent 27.10.2005 21:52
Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. Innlent 27.10.2005 21:42
Suðurnesjaliðin taplaus Grindavík og Njarðvík eru enn taplaus eftir leiki kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Grindavík valtaði yfir Hamar/Selfoss 114-84 og Njarðvík vann nauman sigur á Haukum í Njarðvík 78-74. Sport 27.10.2005 21:16
Haukar töpuðu stórt í Frakklandi Kvennalið Hauka tapaði stórt fyrir franska liðinu Pays D´Aix í Evrópukeppni kvenna í körfuknattleik í kvöld 99-59. Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 25 stig og 11 fráköst, en Helena Sverrisdóttir kom næst með 17 stig. Sport 27.10.2005 20:19
Naumur sigur á Pólverjum Íslenska landsliðið lagði Pólverja 38-37 í vináttuleik ytra nú áðan, en leikurinn er liður í fjögurra liða æfingamóti sem fram fer þar í landi. Staðan í hálfleik var 18-17 fyrir Ísland og Ólafur Stefánsson var markahæstur íslenska liðsins með 10 mörk, en Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með 7 mörk. Sport 27.10.2005 19:28
Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. Innlent 27.10.2005 19:26
Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. Innlent 27.10.2005 19:26
Vilja Íran úr SÞ Ísraelsk stjórnvöld krefjast þess að Írönum verði vísað úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að þurrka ætti Ísrael út af landakortinu. Ummælin hafa víða verið fordæmd. Erlent 27.10.2005 19:22
Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. Innlent 27.10.2005 19:19
Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. Innlent 27.10.2005 19:14
Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:13
Hagkerfið komið að þolmörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:07
Íhugar að stofna eigið flugfélag Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu. Innlent 27.10.2005 17:50
Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur. Innlent 27.10.2005 17:34
Wenger fær ekki háar summur í janúar Keith Edelman, yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, segir að þó bráðlega verði farið að selja Highbury undir framtíðar íbúðir, muni Arsene Wenger ekki geta vænst þess að fá peninga til leikmannakaupa strax og segir þá fjámuni sem koma muni inn á næstunni alla fara í nýja leikvanginn, Ashburton Grove. Sport 27.10.2005 17:25
Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til. Innlent 27.10.2005 17:50
Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara. Innlent 27.10.2005 17:43
Óánægja vegna uppsagna Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð. Innlent 27.10.2005 17:37
Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. Innlent 27.10.2005 17:26
Merkel er bjartsýn Angela Merkel, verðandi kanslari Þýskalands, lýsti því yfir í dag að hún væri mjög bjartsýn á að stjórnamyndunaviðræður milli Kristilegra demókrata og Jafnaðarmanna mundu bera árangur. Erlent 27.10.2005 17:18
Áreitti nemendur sína Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð. Innlent 27.10.2005 17:14