Sport

Naumur sigur á Pólverjum

Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk
Ólafur Stefánsson var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk Pedromyndir/Þórhallur

Íslenska landsliðið lagði Pólverja 38-37 í vináttuleik ytra nú áðan, en leikurinn er liður í fjögurra liða æfingamóti sem fram fer þar í landi. Staðan í hálfleik var 18-17 fyrir Ísland og Ólafur Stefánsson var markahæstur íslenska liðsins með 10 mörk, en Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með 7 mörk.

Danir og Norðmenn skildu jafnir í kvöld á þessu sama móti 28-28, en íslenska liðið leikur við Dani á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×