Fréttir
Vatnsleysuströnd verður að bæ Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur. Innlent 7.11.2005 08:52
Stuðningsmennirnir voru frábærir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði að stuðningur áhorfenda hefði gert gæfumuninn fyrir ungt lið sitt í sigrinum gegn Chelsea í gær. Hann hrósaði líka skapgerð ungu leikmannanna í liðinu, en blæs á að hann hafi verið undir pressu með að vinna leikinn. Sport 7.11.2005 02:29
Íbúar snyrti tré sín Akureyringar skulu snyrta þau tré sín sem ná út fyrir lóðamörk þeirra eða eiga á hættu að bæjarstarfsmenn geri það og þá á kostnað íbúanna sjálfra. Innlent 7.11.2005 08:54
Byrjaður að auglýsa Prófkjörsbaráttan er hafin hjá Samfylkingunni í Reykjavík þrátt fyrir að prófkjörið sjálft fari ekki fram fyrr en í febrúar á næsta ári. Stefán Jón Hafstein er með heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem birtast myndir af 46 einstaklingum sem segjast vilja fá Stefán Jón sem næsta borgarstjóra. Innlent 7.11.2005 08:49
Byggja 50 íbúðir á Eskifirði Verktakafyrirtækið Edduborgir hefur samið við bæjarstjórn Fjarðabyggðar um að byggja þrjú fjölbýlishús í miðbæ Eskifjarðar. Húsin verða fjögurra og fimm hæða og í þeim verða rúmlega 50 íbúðir sem verða hannaðar með þarfir fólks yfir 50 ára aldri í huga. Innlent 7.11.2005 08:48
Juventus heldur toppsætinu Efstu liðin á Ítalíu unnu auðvelda sigra í gær og því er staðan á toppnum í A-deildinni óbreytt eftir leiki helgarinnar. Juventus vann Livorno 3-0 og AC Milan tók Udinese í kennslustund 5-1. Sport 7.11.2005 03:07
Woodgate þarf enn að bíða Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate er ekki í enska landsliðshópnum sem mætir Argentínu þann 12. nóvember, en þeir David James, Michael Carrick, Paul Koncheski og Wayne Bridge hafa allir verið kallaðir inn í hópinn. Sport 7.11.2005 02:20
Ríkislögreglustjóri fær ekki að leiðrétta ákæruna Ríkislögreglustjóranum leyfist ekki að leiðrétta ákæru á hendur forsvarsmönnum Frjálsrar fjölmiðlunar; bæði var hann of seinn og leiðréttingin óskýr. Innlent 7.11.2005 19:07
Forstjórar prófaðir í lögum markaðarins Nýir forstjórar og stjórnarmenn í bönkum og verðbréfafyrirtækjum verða eftirleiðis prófaðir í lögum og reglum markaðarins, segir forstjóri Fjármáleftirlitsins. Misbrestur hefur verið á því að fyrirtækin veiti fullnægjandi upplýsingar um þátttöku sína í atvinnurekstri. Innlent 7.11.2005 19:57
Ríkið sýknað af bótakröfu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í morgun af tíu milljóna króna bótakröfu manns sem var ákærður fyrir tryggingabótasvindl fyrir þrettán árum. Innlent 7.11.2005 12:04
Óeirðir víðar en í Frakklandi Það er ekki bara í Frakklandi sem óeirðir geisa: Í Belgíu og Þýskalandi var kveikt í bílum í nótt og stjórnmálamenn í Evrópu óttast að óróinn í Frakklandi breiðist út. En hvernig stendur á því að svona mikil spenna hefur myndast undanfarin ár og jafnvel áratugi? Hver er ástæðan og hvað má læra af mistökum annarra? Erlent 7.11.2005 19:46
Afturelding sigraði í Eyjum Enn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í dag. Afturelding gerði góða ferð til Eyja og sigraði ÍBV 27-20 eftir að hafa verið með fimm marka forystu í hálfleik. Guðmundur Hrafnkelsson var maður leiksins og varði vel í marki Mosfellinga. Sport 6.11.2005 20:32
Ánægður þrátt fyrir tapið Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sagðist stoltur af baráttu sinna manna á Old Trafford í dag, þrátt fyrir að liðið tapaði sínum fyrsta leik í deildarkeppninni í háa herrans tíð. Hann vildi þó ekki gera of mikið úr möguleikum Manchester United í baráttunni um meistaratitilinn. Sport 6.11.2005 20:04
Gríðarleg eyðilegging af völdum hvirfilbylsins Nú er ljóst að 17 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hverfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 6.11.2005 18:33
Benedikt setti heimsmet Kraftlyftingamaðurinn Benedikt Magnússon stóð við stóru orðin þegar hann keppti á Evrópumótinu í Finnlandi í dag og setti glæsilegt heimsmet í réttstöðulyftu, með því að lyfta 440 kílóum. Hann átti svo góða tilraun við 455, en hársbreidd vantaði uppá að sú lyfta færi upp. Sport 6.11.2005 18:14
Kúrdísk sjónvarpsstöð í rannsókn lögreglu í Danmörku Danska lögreglan rannsakar nú sjónvarpsstöðina ROJ TV sem er með útsendingar í Danmörku en tyrknesk stjórnvöld vilja meina að sjónvarpsstöðin sé hliðholl Kúrdum og ali á hatri gagnvart tyrkenskum stjórnvöldum Erlent 6.11.2005 18:03
Manchester United sigraði Chelsea Chelsea tapaði í fyrsta sinn í fjörutíu leikjum í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið sótti Manchester United heim á Old Trafford. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark United með laglegum skalla í fyrri hálfleik. Sport 6.11.2005 17:55
Norski krónprinsinn í opinberi heimsókn í Danmörku Hákon krónprins er nú í opinberi heimsókn í Danmörku í tilefni þess að Noregur fagnar um þessar mundir 100 ára afmæli sínu sem sjálfstætt ríki. Erlent 6.11.2005 17:29
Flugeldur sprakk nærri áhorfendum á flugeldasýningu Sjö börn og fjórir fullorðnir voru fluttir á spítala til aðhlynningar vegna brunasára sem þau hlutu þegar flugeldur sprakk nærri þeim á flugeldasýningu í skemmtigarði á Englandi í gærkvöldi. Erlent 6.11.2005 17:08
Tala látinna hækkar Nú er ljóst að 18 manns fórust og um rúmlega hundruð manns eru slasaðir eftir að öflugur hvirfilbylur fór yfir suðvesturhluta Indiana fylkis og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Innlent 6.11.2005 17:04
Árni Gautur besti markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur verið útnefndur besti markvörðurinn í norska boltanum á yfirstaðinni leiktíð, en hann var í dag sæmdur Kniksen-verðlaununum svokölluðu, þar sem dómarar, leikmenn og þjálfarar velja bestu leikmenn ársins. Árni varð sem kunnugt er meistari með liði sínu Valerenga á dögunum. Sport 6.11.2005 17:05
Fletcher kemur United yfir Darren Fletcher var rétt í þessu að koma Manchester United í 1-0 gegn Chelsea á Old Trafford með laglegu skallamarki eftir um hálftíma leik, sem fer mjög fjörlega af stað. Sport 6.11.2005 16:33
Mikilvægur sigur Everton Everton krækti í þrjú dýrmæt stig í botnbaráttunni í dag þegar liðið lagði Middlesbrough 1-0 á heimavelli sínum. Það var James Beattie sem skoraði sigurmarkið með skalla í fyrri hálfleik. Sport 6.11.2005 16:28
Eiður á varamannabekknum gegn United Eiður Smári Guðjohnsen verður á varamannabekk Chelsea þegar liðið tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar sem er að hefjast núna klukkan 16:00. Sport 6.11.2005 15:56
Kosningar í Aserbædjan í dag Íbúar Aserbædjan ganga til þingkosninga í dag. Ekki er reiknað með neinum breytingum, enda er stjórnarandstöðunni ekki leyft að starfa nema að afar takmörkuðu leyti. Kosningastjóra stærstu stjórnarandstöðuhreyfingarinnar var þó sleppt úr fangelsi í dag. Erlent 6.11.2005 15:18
Kínverjar lóga fiðurfénaði Öllum fiðurfénaði í norðausturhluta Kína verður lógað fyrir mánudag til að hindra útbreiðslu fuglaflensu. Sautján hundruð embættismenn hafa verið sendir á staðinn með her- og lögregluvernd, til að lóga fuglunum, en þeir eru allt að ein milljón talsins. Erlent 6.11.2005 15:16
Sprengja sprakk í Mógadishu Þrír létust og minnst tuttugu særðust þegar öflug sprengja sprakk í Mógadishu, höfuðborg Sómalíu í dag. Allt útlit er fyrir að um árás hafi verið að ræða og að ætlunin hafi verið að ráða forsætisráðherrann Mohammad Al Gedi af dögum. Erlent 6.11.2005 15:09
Íranar falast eftir viðræðum um kjarnorkumál Yfirmaður samninganefndar Írana um kjarnorkumál hefur falast eftir viðræðum við Frakka Breta og Þjóðverja vegna kjarnorkuáætlunar Írana. Innlent 6.11.2005 15:06
Engin fríverslunarsamningur Tveggja daga leiðtogafundi Ameríkuríkja lauk í gær án nokkurs samkomulags um fríverslun milli álfanna. Andstaða fimm ríkja undir forystu Hugos Chavez, forseta Venesúela réði þar úrslitum. Erlent 6.11.2005 13:25
Gríðarleg eyðilegging vegna hvirfilbyls í Indiana og Kentucky 11 manns fórust og yfir hundrað manns slösuðust í miklum hverfilbyl sem fór yfir suðurhluta Indiana fylki og hluta Kentucky fylkis í Bandaríkjunum í nótt. Erlent 6.11.2005 14:52