Fréttir
Fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum rænt í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu fjórum vestrænum hjálparstarfsmönnum á laugardaginn. Tveir mannanna eru frá Kanada og einn frá Bretlandi. Talið er að sá fjórði sé Bandaríkjamaður, en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 28.11.2005 07:42
Tíu manns létust í jarðskjálfta í Íran Minnst tíu manns létust og hundruðir húsa gjöreyðilögðust þegar jarðskjálfti upp á 5,9 á richter skók suðurhluta Írans í gær. Þá slösuðust sjötíu manns í skjálftanum og nokkrir eru enn í lífshættu. Erlent 28.11.2005 07:36
Fjórir handteknir fyrir vörslu fíkniefna í nótt Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra menn í nótt, eftir að hafa stöðvað bíl þeirra á Sæbraut, en rétt áður en til þess kom, flugu fíkniefnaskammtar út úr bílnum á ferð. Innlent 28.11.2005 07:29
KB banki ætlar að stofna banka í Noregi KB banki ætlar að stofna banka í Noregi undir eigin nafni í náinni framtíð, að því er Hreiðar Már Sigurðsson segir í viðtali við Aftenposten. Hann segir það vænlegri kost en að kaupa einhvern norskan banka til að auka umsvið KB banka í Noregi, því vænleg kauptækifæri liggi ekki fyrir. Innlent 28.11.2005 07:28
Vegagerðin bótaskyld vegna Héðinsfjarðaganga Vegagerðin stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða Íslenskum aðalverktökum og erlendnu verktakafyrirtæki, sem áttu saman lægsta tilboð í Héðinsfjarðargöng, nokkur hundruð milljónir króna í skaðabætur vegna þess að ákveðið var að hætta við verkið. Innlent 28.11.2005 07:27
Enn mikil andstaða við inngöngu í Evrópusambandið í Noregi Um helmingur Norðmanna myndi kjósa gegn inngöngu í Evrópusambandið ef gengið væri til kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum í nýafstaðinni könnun í Noregi. Alls sögðust 50,2% aðspurðra vera mótfallnir inngöngu í Evrópusambandið en 37,7% voru fylgjandi. 12% þátttakanda í könnuninni voru óákveðnir. Erlent 28.11.2005 07:23
Ungur maður finnst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn 17 ára gamall karlmaður fannst myrtur á hótelherbergi í Kaupmannahöfn í nótt. Maðurinn, sem er af afrískum uppruna, var með áverka á höfði en allt bendir til þess að hann hafi verið skotinn. Erlent 28.11.2005 06:58
Búið að finna nafn mannsins Lögreglunni í Reykjavík tókst í gærkvöldi að komast að nafni mannsins, sem stór slasaðist þegar ekið var á hann á Miklubraut í fyrrinótt. Hann er 51 árs og einhleypur. Honum hefur verið haldið sofandi á gjörgæsludeild frá því að slysið varð, en verður væntanlega vakinn í dag. Læknum tókst fljótt að stöðva alvarlegar innvortis blæðingar en ljóst er að hann verður að dvelja á sjúkrahúsi í nokkrar vikur, því hann er meðal annars mjaðmargrindarbrotinn. Innlent 28.11.2005 06:48
Verðskuldaður sigur Manchester United Manchester United hirti öll þrjú stigin gegn West Ham á Upton Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. George Best var minnst við sérstaka athöfn fyrir leikinn, en þegar í leikinn var komið var það hin nýja stjarna Manchester-liðsins, Wayne Rooney, sem skein skærast og leiddi lið sitt til sigurs 2-1. Sport 27.11.2005 19:19
Auðveldur sigur íslenska liðsins Íslenska landsliðið í handknattleik vann í dag auðveldan sigur á Norðmönnum í þriðja og síðasta vináttuleik liðanna í Kaplakrika í dag 32-26. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið og þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Hólmgeirsson skoruðu 6 hvor. Ísland vann því tvo af þremur leikjum liðanna, en þau skildu jöfn í Mosfellsbæ í gær. Sport 27.11.2005 17:54
Jafnt hjá Boro og West Brom Mark Nígeríumannsins Yakubu kom í veg fyrir að botnlið West Brom nældi sér í mikilvæg þrjú stig á Riverside í dag, þar sem liðið gerði 2-2 jafntefli við Middlesbrough. Mark Viduka kom Boro yfir með góðu skoti, en þeir Nathan Ellington og Kanu komu gestunum yfir. Jöfnunarmark Yakubu kom á 65. mínútu, en hann fór illa með færi sem hefði geta gert út um leikinn í lokin. Sport 27.11.2005 17:30
Fulham sigraði Bolton Tveimur leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fulham vann góðan og verðskuldaðan sigur á Bolton 2-1, þar sem Brian McBride skoraði bæði mörk Lundúnaliðsins en Sylvain Legwinski minnkaði muninn með sjálfsmarki. El Hadji Diuf fékk að líta rauða spjaldið á lokamínútum leiksins. Sport 27.11.2005 16:45
Nafn manns sem ekið var á í nótt á huldu Enn er nafn gangandi vegfaranda sem ekið var á í nótt á huldu. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, liggur mikið slasaður og meðvitundarlaus á gjörgæsludeild Landspítala Háskólasjúkrahúss. Atvikið átti sér stað á Miklubraut um hálf þrjú leytið í nótt. Maðurinn var skilríkjalaus og biður lögreglan þá sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um manninn að hafa samband. Innlent 27.11.2005 16:23
Bresk stjórnvöld rannsaka ofbeldi við þjálfun breskra hermanna Bresk stjórnvöld eru að rannsaka ofbeldi við þjálfun breskra hermanna eftir að dagblað birti myndir úr heldur sérstökum þjálfunarbúðum hersins. Á myndunum sjást landgönguliðar naktir við æfingar. Þarna er líka maður í grænum sloppi sem skyndilega ræðst að einum hermanninum, slær hann og sparkar þannig í höfuð hans að maðurinn liggur kylliflatur. Erlent 27.11.2005 15:20
Vel á annað þúsund manns hafa nú farið gegnum Rafah landamærastöðina Yfir 1500 Palestímumenn hafa nú farið gegnum Rafah landamærastöðina á mótum Gasasvæðisins og Egyptalands að sögn Evrópusambandsins, sem sinnir eftirliti með landamærastöðinni sem opnuð í gær. Erlent 27.11.2005 14:50
Heimilisofbeldi á Spáni Yfir 28.000 menn hafa verið handteknir á Spáni fyrir heimilisofbeldi á árinu. Þá féllu 56 konur fyrir hendi maka sinna í landinu. Ofbeldi innan veggja heimila hefur sætt harðri gagnrýni á Spáni og hefur forsætisráðherra landsins, sett af stað átak gegn ofbeldi af þessu tagi. Erlent 27.11.2005 14:25
BSRB vill að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn BSRB mun beita sér fyrir því að ríkisstjórn Íslands stöðvi GATS samninginn, segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Á fundi Alþjóðlegra samtaka launafólks í almannaþjónustu, PSI, í síðustu viku var rætt um vaxandi áherslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar á einkavæðingu almannaþjónustu. Innlent 27.11.2005 14:14
Þeir eru að reyna að flæma mig í burtu Vandræðagemsinn Laurent Robert hjá Portsmouth segir að verið sé að reyna að flæma sig í burtu frá liði Portsmouth og segir að hann fái allar skammirnar í kjölfar hörmulegs gengis liðsis. Sport 27.11.2005 14:31
Útboð á nýju varðskipi er að hefjast Útboð á nýju varðskipi fyrir Landhelgisgæsluna er að hefjast. Ákveðið hefur verið að útboðið verði lokað. Frestur til að taka þátt í lokuðu útboði er til 12. janúar, en útboðsgögn verða síðan afhent rúmum mánuði síðar. Innlent 27.11.2005 14:07
Sænskur hermaður þungt haldinn eftir árás í Afganistan Sænskur hermaður er enn þungt haldinn eftir árás á friðargæsluliða í Afganistan. Annar hermaður lést í árásinni en tveir til viðbótar, auk tveggja óbreyttra borgara, hlutu minniháttar meiðsl. Aukinn þungi hefur verið að færast í mótspyrnu gegn erlendum herjum í landinu en á sama tíma búa evrópskar sveitir sig undir að taka við hlutverki bandarísku herjanna í landinu. Innlent 27.11.2005 14:10
Blóðugur sigur hjá Ricky Hatton Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton er heimsmeistari hjá IBF og WBC samböndunum eftir öruggan en blóðugan sigur gegn Carlos Maussa í Sheffield í nótt. Þrátt fyrir að hljóta ljóta skurði við bæði augu mjög snemma í bardaganum, var sigur Hatton aldrei í hættu og hann vann á rothöggi í níundu lotu. Sport 27.11.2005 14:05
Sex ungmenni slösuð eftir árekstur í nótt Sex ungmenni á aldrinum fimmtán til átján ára slösuðust þegar fólksbíll keyrði útaf vegi í hálku fyrir ofan Laugavatn í nótt. Þrír voru fluttir beint á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þrír til aðhlynnslu á heilsugæslustöðinni á Selfossi. Ekki er grunur um ölvun og eru farþegarnir ekki taldir í lífshættu. Innlent 27.11.2005 14:41
Að minnsta kosti 17 féllu í Kína Að minnsta kosti 17 manns fórust í jarðskjálfta upp á 5,5 á richter sem reið yfir austurhluta Kína í fyrrinótt. Þá er talið að hundruð manna séu slasaðir eftir skjálftann og misstu að minnsta kosti þrjú þúsund manns heimili sín. Mestar urðu skemmdir í borginni Wuhan í Hubei sýslu. Erlent 27.11.2005 09:40
Ólafur Þór Gunnarsson leiðir listann Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir verður í fyrsta sæti Vinstri Grænna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Innlent 26.11.2005 22:04
Öflugir jarðskjálftar í Kína Fjórtán manns létu lífið í jarðskjálfta í Kína í nótt. Jarðskjálftinn varð rétt fyrir klukkan níu í morgun að staðartíma og mældist hann 5,7 á Richter. Erlent 26.11.2005 21:52
Einfalt að minnka svifryk Með því að þrífa götur borgarinnar oftar væri hægt að koma í veg fyrir að dögum saman sé mengun í Reykjavík langt yfir mörkum, eins og nú er. Innlent 26.11.2005 21:43
Eldri borgarar krefjast betri kjara Eldri borgarar vilja betri kjör, stytta biðlista á hjúkrunarheimili og geta búið lengur heima. Þetta kom fram á fundi sem eldri borgarar héldu í dag þar sem meðal annars fulltrúar allra stjórnmálaflokkanna voru krafðir um framtíðarsýn síns flokks í málefnum eldri borgara. Innlent 26.11.2005 17:23
Blendin afstaða til hjónabanda samkynhneigðra innan kirkjunnar Kirkjunnar menn skiptast í tvö horn í afstöðunni til hjónavígslu samkynhneigðra. Þetta kemur fram í könnun sem guðfræðinemi gerði meðal vígðra presta og djákna. Innlent 26.11.2005 17:18
Níðingsverk Þrír piltar réðust á útigangsmann í Reykjavík, helltu yfir hann vatni og hveiti, og höfðu gaman af. Myndband af árásinni var svo sett á Netið öðrum til skemmtunar - að sögn eins forsprakkanna. Innlent 26.11.2005 21:41
Frumbyggjar í Kanada fá fjárhagsstuðning Stjórnvöld í Kanada og fulltrúar frumbyggja landsins hafa náð samkomulagi um 270 milljarða króna útgjöld til að berjast gegn fátækt meðal frumbyggja á næstu tíu árum. Erlent 26.11.2005 17:16