Fréttir
Portsmouth fær leyfi til að ræða við Warnock Forráðamenn Sheffield United hafa nú gefið kollegum sínum hjá Portsmouth tregablandið leyfi til að ræða við knattspyrnustjórann Neil Warnock með samning í huga. Warnock hefur verið efstur á óskalista forráðamanna Portsmouth allar götur síðan Alain Perrin var rekinn á dögunum, en Warnock hefur náð frábærum árangri með Sheffield United í vetur. Sport 30.11.2005 19:00
Þrír tilnefndir Þrír leikmenn hafa verið tilnefndir fyrir kjörið á knattspyrnumanni ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Þetta eru þeir Frank Lampard hjá Chelsea og Ronaldinho og Samuel Eto´o hjá Barcelona. Tilkynnt verður um hver hreppir titilinn í Sviss þann 19. desember við sérstaka athöfn. Sport 30.11.2005 18:47
Lögreglan lýsir eftir konu Lögreglan lýsir eftir Guðnýju Heiðu Magnúsdóttur. Guðný er 164 sm á hæð, með axlarsítt svart hár. Hún var klædd í bláar gallabuxur, svartan Metallica-bol og græna hettuúlpu síðast þegar hún sást en hún fór heiman frá sér laust eftir miðnætti í fyrradag. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar vinsamlegast látið lögregluna í Reykjavík vita í síma 444-1000. Innlent 30.11.2005 18:31
Grunur um sprengju á lestarstöðinni í Hróarskeldu Öll umferð um lestarstöðina í Hróarskeldu í Danmörku var stöðvuð um tíma í dag vegna grunsamlegs poka sem skilinn hafði verið eftir á stöðinni. Lögregla var kölluð á vettvang vegna gruns um að sprengja leyndist í pokanum. Erlent 30.11.2005 18:23
Varð fyrir hraðlest í Svíþjóð 15 ára gömul stúlka lést í gærkvöld þegar hún gekk ásamt tveimur jafnöldrum sínum í veg fyrir hraðlest skammt frá Gautaborg í Svíþjóð. Stúlkurnar fóru fram hjá hindrunum sem stöðva eiga umferð yfir járnbrautarteinana eftir að tvær lestir höfðu farið hjá og náðu tvær stúlknanna yfir sporin áður en hraðlestin hafnaði á þeirri þriðju. Erlent 30.11.2005 18:07
Vill spila meira eða ekki neitt Vandræðagemlingurinn Ruben Patterson hjá Portland Trailblazers á í harðvítugum deilum við þjálfara sinn og forráðamenn félagsins þessa dagana. Nate McMillan, þjálfari liðsins, gróf Patterson á varamannabekk liðsins í byrjun tímabils, sem varð til þess að leikmaðurinn bölvaði honum í sand og ösku og var settur í bann í kjölfarið. Sport 30.11.2005 17:24
Spilaði fótbrotinn í sex vikur Varnarmaðurinn Ashley Cole hjá Arsenal og enska landsliðinu segir að hann hafi óvitandi spilað brákaður á fæti í sex vikur í haust og segir að þess vegna hafi meiðsli hans verið jafn alvarleg og raun ber vitni. Sport 30.11.2005 16:49
Dæmdur fyrir að falsa sjúkraskýrslur og læknisvottorð Karlmaður var fundinn sekur í Héraðsdómi Reykjaness í dag um að hafa falsað sjúkraskýrslur, læknisvottorð og reikninga frá erlendum sjúkrahúsum fyrir fjórtán árum. Málið hafði áður fyrnst hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 30.11.2005 16:53
Gengishækkanir éta upp tekjurnar Fjórða til fimmta hver króna sem Hjartavernd hefur fengið í styrki og greiðslur frá útlöndum síðustu ár hefur tapast vegna þess hversu dýr krónan er orðin. Þetta er ástæðan fyrir því að segja þarf upp um það bil helmingi starfsmanna segir Vilmundur Guðnason forstöðulæknir. Innlent 30.11.2005 16:47
Moldóvi dæmdur í farbann Hæstiréttur hefur dæmt Moldóva í farbann til 7. desember næst komandi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu hjá lögreglu 15. nóvember eftir að í ljós kom að hann ferðaðist hingað frá Færeyjum á fölsuðu grísku vegabréfi. Innlent 30.11.2005 16:42
Björgólfur hættir Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, lætur af starfi framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað um áramót. Aðalsteinn Helgason hefur verið ráðinn í hans stað en hann er nú framkvæmdastjóri þróunarsviðs Samherja. Innlent 30.11.2005 16:30
SPH býður vildarþjónusta fyrir fyrirtæki Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH) býður fyrirtækjum upp á vildarþjónustu sem sniðin er að þörfum fyrirtækja. Vildarþjónusta hefur verið í boði fyrir einstaklinga og fengið afar góðar viðtökur. Markaðsstjóri SPH segir þetta þjónustu sem hafi vantað á fyrirtækjamarkaði. Viðskipti innlent 30.11.2005 17:26
Fjórfalt dýrara þar sem mestu munar Bankaþjónusta er allt að fjórfalt dýrari í einni bankastofnun en annarri samkvæmt verðkönnun Neytendasamtakanna og SFR. Mesti hlutfallslegi munurinn er á veðbókarvottorðum. Þau kosta 400 krónur hjá Íslandsbanka en 1.600 krónur hjá SPRON. Innlent 30.11.2005 16:20
Flestir skiluðu auðu Hið fyrsta af þremur samræmdum stúdentsprófum var lagt fyrir nemendur í framhaldsskólum landsins í morgun en undirtektir nemenda voru dræmar. Tveir af hverjum þremur nemendum sem tóku prófið í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi skiluðu auðum prófblöðum. Innlent 30.11.2005 16:14
Dæmdur í þriggja leikja bann Varnarmaðurinn Celestine Babayaro hjá Newcastle hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann í úrvalsdeildinni fyrir að kljást við Tim Cahill hjá Everton í leik liðanna um helgina. Babayaro gekkst strax við banninu og tekur það því gildi nú þegar, sem þýðir að hann mun missa af leik Newcastle og Wigan í bikarnum í kvöld. Sport 30.11.2005 16:34
Manchester United - WBA í beinni á Sýn Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Botnlið Sunderland tekur á móti Liverpool á leikvangi ljósanna. Þá eru nokkrir leikir í enska deildarbikarnum, þar sem lið úr úrvalsdeildinni verða í eldlínunni. Leikur Manchester United og West Brom verður sýndur í beinni á Sýn og hefst útsending klukkan 19:35. Sport 30.11.2005 15:40
Svör ráðherra ekki fullnægjandi Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ekki gefið fullnægjandi svör við því hvort Byggðastofnun haldi áfram starfsemi, segir formaður Frjálslynda flokksins. Innlent 30.11.2005 15:10
Útlitið er dökkt Framtíð norska framherjans Óla Gunnars Sólskjær hjá Manchester United virðist nú vera frekar vonlaus, því læknar hafa gefið það út að hann sýni lítil batamerki af erfiðum hnémeiðslum sem hafa haldið honum frá keppni í tvö ár. Sport 30.11.2005 14:44
Reyndu að smygla hálfu tonni kjöts Fjórtán skipverjar á tveimur íslenskum fiskiskipum sem voru að koma frá Færeyjum hafa viðurkennt að eiga rúmlega hálft tonn af fugla-, nauta- og svínakjöti sem lögregla og tollverðir fundu við komu skipanna til Eskifjarðar. Innlent 30.11.2005 14:35
McGrady sneri aftur og færði Houston sigur Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady sneri aftur með liði Houston Rockets, sem hafði tapað sjö leikjum í röð og það var ekki að sökum að spyrja, liðið vann stórsigur á Atlanta Hawks. Sport 30.11.2005 14:13
Íslenskir togarar mæta hörku norsku strandgæslunnar Rússar virðast ætla að komast upp með að hylja nöfn og númer á togurum sínum í Barentshafi, svo að norska strandgæslan beri ekki kennsl á þá, og hún virðist ekkert ætla að aðhafast. Samtímis hóta Noðrmenn íslenskum skipum fullri hörku og íslensk stjórnvöld draga enn á langinn að kæra Norðmenn til Alþjóðadómstólsins fyrir að taka sér einhliða yfirráð á Svalbarðasvæðinu, og hygla einum en hóta öðrum. Innlent 30.11.2005 12:03
Stefnt að því að kalla um 20.000 bandaríska hermenn heim frá Írak Bandaríkjastjórn stefnir að því að kalla tuttugu þúsund hermenn heim frá Írak eftir þingkosningar í landinu um miðjan desember. Bush forseti segir að vilji Íraka muni ráða því hvort bandarískum hermönnum í landinu verði fækkað eða fjölgað á næstu mánuðum. Innlent 30.11.2005 11:58
Sjö hundruð á sjúkrahús vegna kuldanna Sjö hundruð manns hafa verið fluttir fárveikir á sjúkrahús á veturbörðum hamfarasvæðunum í Pakistan. Átta manns hafa þegar fallið af völdum vetrarkuldanna við Himalaja-fjallgarðinn. Erlent 30.11.2005 11:57
Fellybylir hafa aldrei valdið jafn mikilli eyðileggingu og árið 2005 Fellibylir gætu valdið jafnmiklum eða meiri óskunda á næsta ári en þessu að mati sérfræðinga. Fellibyljatímabilinu lýkur formlega á morgun og aldrei í sögunni hafa fellibylir valdið jafnmikilli eyðileggingu og árið 2005. Erlent 30.11.2005 11:56
Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs íslenskra barna verða afhent í fyrsta sinn á morgun Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs íslenskra barna verða afhent í fyrsta sinn á morgun, 1. desember. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar en það er Kári Stefánsson, forstóri Íslenskrar erfðagreiningar, sem afhendir verðlaunin. Innlent 30.11.2005 11:54
Síminn gefur eina milljón króna í framkvæmdasjóð BUGL Síminn hefur ákveðið að gefa eina milljón kórna í framkvæmdasjóð til Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans, BUGL. Innlent 30.11.2005 10:13
Þrír handteknir vegna fíkniefnamisferlis á Ísafirði Þrír voru handteknir á Ísafirði í morgun vegna vörslu fíkniefna og tækja til neyslu. Efnin, 18 grömm af ætluðum kannabisefnum, fundust eftir að lögreglan stöðvaði bifreið karlmanns og konu sem voru að koma frá Reykjavík. Þriðji aðilinn var handtekinn eftir húsleit í tveimur íbúðum á Bolungarvík. Innlent 30.11.2005 10:05
Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið á áætlun Framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Hlíð á Akureyri ganga samkvæmt áætlun. Uppsteypu er nú lokið og er unnið við að loka þaki en áætlað er að byggingin verði útibyrgð fyrir áramót. Í Innlent 30.11.2005 07:35
Tvö ný samheitalyf hjá Actavis Dótturfélag Actavis Group í Bandaríkjunum, Amide Pharmaceutical Inc., hefur fengið markaðsleyfi fyrir tvö ný samheitalyf í landinu. Bandaríska Matvæla- og lyfjastofnunin hefur samþykkt að félagið fái að markaðssetja tvö lyf, annars vegar er um að ræða verkjastillandi lyf og lyf sem er notað til meðhöndlunar á krampa. Viðskipti innlent 29.11.2005 19:07
Tveir fórust í eldsvoða í Færeyjum Kona á níræðisaldri og sonur hennar á sjötugsaldri, fórust í eldsvoða í Suðurvogi í Færeyjum í gærkvöldi, sennilega vegna reykeitrunar. Ekki var um mikinn eld að ræða en talið er að eldsupptök hafi verið í kjallara hússins. Mæðginin voru ein í húsinu þegar eldurinn kom upp. Erlent 30.11.2005 07:53