Fréttir

Fréttamynd

Gazza hættur að þjálfa Kettering

Hinn skrautlegi Paul Gascoigne er hættur störfum sem knattspyrnustjóri utandeildarliðsins Kettering, eftir aðeins rúman mánuð í starfi. Gazza hefur átt í deildum við eiganda félagsins og segist ekki ætla að hætta afskiptum af félaginu. "Ég ætla mér að eignast þetta félag og ég mun ekki gefast upp," sagði Gazza, sem var einn þeirra sem stóðu á bak við yfirtöku á félaginu fyrir nokkru.

Sport
Fréttamynd

Tap hjá Jakob og Loga

Íslensku leikmennirnir í þýska körfuboltanum áttu ekki gott kvöld í gær þegar lið þeirra lágu í valnum. Leverkusen, lið Jakobs Sigurðarsonar, tapaði fyrir Trier 97-95 í úrvalsdeildinni og Logi Gunnarsson og félagar í Bayreuth máttu þola stórtap 97-67 fyrir Ulm í 2. deildinni. Jakob skoraði 9 stig fyrir sitt lið, en Logi var með 11 stig.

Sport
Fréttamynd

Skora á þingmenn að hafna frumvarpinu

Íbúasamtök Laugardals skora á alþingismenn að hafna frumvarpi um ráðstöfun á andvirði Landssímans, þar sem skilyrt er í athugasemdum frumvarpsins að við lagningu Sundabrautar verði farin svokölluð innri leið. Samtökin segja frumvarpið brjóta bæði gegn umhverfismati og úrskurði umhverfisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Danny Mills fótbrotinn

Varnarjaxlinn Danny Mills hjá Manchester City getur ekki leikið með liðinu næstu sex vikurnar eða svo, eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fætinum. Raunar hefur hann spilað með þessi meiðsli í næstum því einn mánuð, rétt eins og Ashley Cole gerði á sínum tíma hjá Arsenal. Útilokað þykir að mills snúi aftur til keppni fyrr en eftir áramót.

Sport
Fréttamynd

Óskhyggja að stefnubreyting felist í vaxtahækkun Seðlabankans

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir það óskhyggju hjá forsætisráðherra og utanríkisráðherra að stefnubreyting felist í tilkynningu Seðlabankans um 25 punkta hækkun á vöxtum í síðustu viku. Hún segir þá reyna að friða útflutningsgreinar og ferðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Sjötti sigur Phoenix í röð

Endurkoma Joe Johnson til Phoenix með nýja liðinu sínu Atlanta varð ekki ferð til fjár því eins og búast mátti við vann Phoenix áreynslulítinn sigur 112-94. Phoenix leiddi lengst af með 30 stiga mun, en gat leyft varamönnunum að spreyta sig í lokaleikhlutanum, þar sem Atlanta náði að klóra aðeins í bakkann og láta lokatölurnar líta betur út á pappírunum.

Sport
Fréttamynd

Páll farinn frá Þrótti

Páll Einarsson hefur komist að samkomulagið við stjórn Þróttar að segja skilið við félagið og hefur verið leystur undan samningi sínum við félagið. Deilur komu upp milli hans og Atla Eðvaldssonar þjálfara og ljóst að annar þeirra þyrfti að víkja. Páll er að eigin sögn sáttur við að málið skuli loksins vera leyst, en kveður félag sitt með söknuði.

Sport
Fréttamynd

Benitez tekur ekki við Real Madrid

Eins og búast mátti við hafa nokkur af stærri nöfnunum úr röðum knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni nú verið orðuð við lausa stöðu stjóra Real Madrid, eftir að Wanderley Luxemburgo var látinn taka pokann sinn í gær. Einn þeirra er Rafa Benitez, stjóri Liverpool, en hann þvertekur fyrir að snúa til heimalandins.

Sport
Fréttamynd

Drengir á landsbyggðinni lakari en stúlkur í stærðfræði

Nánari niðurstöður á PISA rannsókninni frá 2003 hefur leitt í ljós að kynjamunurinn sem fannst á stærðfræðikunnáttu 15 ára barna á Íslandi skrifast nær einvörðungu á dreifbýlið. Ekki fannst marktækur kynjamunur á stærðfræðikunnáttu innan höfuðborgarsvæðisins. Drengir í dreifbýli eru á hinn bóginn mun lakari í stærðfræði en stúlkur.

Innlent
Fréttamynd

Raikkonen ökumaður ársins

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen hefur verið útnefndur besti atvinnuökumaður heimsins á árinu 2005 af tímaritinu Autosport. Raikkonen hlýtur heiður þennan þó hann hafi orðið í öðru sæti í keppni ökumanna í formúlu 1 á árinu, en hann þótti sýna góðan akstur þó bíll hans væri ekki alltaf nógu öruggur.

Sport
Fréttamynd

Íbúðalánakerfið nánast úrelt á augabragði

Húsnæðislánakerfi hins opinbera varð nánast úrelt á augabragði þegar bankarnir hófu að veita íbúðalán af miklum krafti á síðasta ári. Því er óeðlilegt að Íbúðalánasjóður keppi við bankana án þess að þurfa að hlíta sömu reglum og þeim segir Davíð Oddsson Seðlabankastjóri.

Innlent
Fréttamynd

Öflugur skjálfti í Afríku

Jarðskjálfti upp á 6,8 á Richter reið yfir Austur-Afríku fyrir rétt um klukkutíma síðan. Upptök skjálftans voru um fimmtíu og fimm kílómetra frá Kongó en ekki er enn vitað hvort mannfall hafi orðið eða miklar skemmdir á mannvirkjum.

Erlent
Fréttamynd

76 þúsund rjúpur skotnar samkvæmt Skotvís

Sjötíu og sex þúsund rjúpur voru veiddar á veiðitímabilinu í haust samkvæmt könnun Skotveiðifélags Íslands. Einn þátttakenda í könnuninni veiddi 62 rjúpur en meðalfjöldi rjúpna á veiðimann var rúmlega tíu.

Innlent
Fréttamynd

Vaxtahækkunin er ekki of lág

25 punkta vaxtahækkun í framhaldi af 75 punkta hækkun er ekki lítil hækkun sagði Davíð Oddsson Seðlabankastjóri þegar hann svaraði gagnrýni greiningardeilda á vaxtahækkun bankans fyrir helgi. Forstöðumenn greiningardeildanna greinir á um hvort vaxtahækkunin hafi verið nægjanleg.

Innlent
Fréttamynd

Frönskum verkfræðingi rænt í Bagdad

Uppreisnarmenn í Írak rændu í morgun frönskum verkfræðingi í Bagdad. Að sögn vitna var maðurinn á leiðinni inn í íbúð sína þegar sjö vopnaðir menn stormuðu út úr tveim bílum og handsömuðu manninn. Undanfarna tíu daga hafa uppreisnarmenn í Írak rænt fimm vesturlandabúum og allir eru þeir enn í haldi.

Erlent
Fréttamynd

Enn á gjörgæslu eftir harðan árekstur

Farþegi í fólksbíl, sem slasaðist alvarlega í hörðum árekstri jeppa og fólksbíls á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í gærkvöldi, er enn á gjörgæsludeild og verður líklega í allan dag, að sögn vakthafandi læknis á deildinni. Ástand hans er stöðugt og hann er ekki talinn í lífshættu.

Innlent
Fréttamynd

Töluvert tjón í eldi í Ofnasmiðjunni

Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í húsnæði Ofnasmiðjunnar í Keflavík í morgun, en þó var það lán í óláni að eldurinn náði ekki að teygja sig í mikinn eldsmat sem er í húsinu. Slökkvilið var kallað á vettvang og gekk vel að slökkva eldinn en töluvert tjón varð af reyk og sóti og ekki síst af miklum hita, sem myndaðist í húsnæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Réttað yfir hryðjuverkahópi í Hollandi

Réttarhöld hófust í dag yfir fjórtán mönnum í Hollandi sem sakaðir eru um að tilheyra róttæku íslömsku hryðjuverkaneti, svokölluðum Hofstad-hópi sem hefur aðsetur í Haag. Meðal hinna ákærðu er Mohammed Bouyeri sem þegar afplánar lífstíðardóm fyrir morðið á hollenska kvikmyndagerðarmanninum Theo van Gogh.

Erlent
Fréttamynd

Samið við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg í gærkvöldi í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Fram kemur á heimasíðu BSRB að nú verði hafist handa við að kynna samninginn fyrir félagsmönnum og undirbúa skriflega allsherjaratkvæðagreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmenn mótmæli í Hong Kong

250.000 mótmælendur streymdu um götur Hong Kong í gær og kröfðust aukinna lýðræðislegra réttinda. Fjöldahreyfing, sem krefst aukinna lýðræðislegra réttinda, getur skapað mikil vandræði fyrir kínversk yfirvöld, sem hafa sagt það ólöglegt að jafnvel spyrjast fyrir um hvenær lýðræðislegar kosningar munu eiga sér stað.

Erlent
Fréttamynd

Dómar hertir í Grænlandi

Maður var dæmdur í 10 ára fangelsi af grænlenska undirréttinum í Upernavik fyrir að drepa 26 ára gamla konu og 6 ára dóttur hennar. Dómurinn þykir til marks um aukna hörku af hálfu dómsvaldsins.

Innlent
Fréttamynd

Gistinóttum á hótelum fjölgar í október

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tvö komma fimm prósent í október miðað við sama mánuð í fyrr. Alls voru gistinæturnar 86.100 í þarsíðasta mánuði en en voru 84 þúsund í október í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórnin hefði mátt hugsa sinn gang betur

Það er auðvelt að færa sæmileg rök fyrir því að ríkisstjórnin hefði mátt hugsa sinn gang betur áður en ráðist var í breytingar á húsnæðisstefnunni í byrjun uppsveiflunnar árið 2003, sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs um hagstjórnarvandann í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Réðust gegn lögreglu eftir öluvunarakstur

Ölvaður ökumaður, sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt í átaki sínu gegn ölvunarakstri nú á aðventunni, brást hinn versti við og sýndi lögreglumönnum mótþróa. Þeir náðu að yfirbuga hann en þá réðst sambýliskona hans á lögreglumennina, til að reyna að frelsa bóndann, sem lauk með því að hún var líka handtekin og gista þau fangageymslur.

Innlent
Fréttamynd

Verjendur Saddams gengu út

Verjendur Saddams Hússein gengu fyrir stundu út úr réttarsalnum í mótmælaskyni. Réttarhöldin voru rétt að hefjast þegar lögfræðingarnir gengu út.

Erlent
Fréttamynd

Hyggjast herða innflytjendalöggjöf í Danmörku enn frekar

Dönsk stjórnvöld hyggjast gera innflytjendalöggjöf sína enn strangari til þess að draga frekar úr straumi innflytjenda til landsins. Þetta hefur danska blaðið Politiken eftir atvinnumálaráðherra landsins sem hefur lagt til að innflytjendum frá löndum eins og Sómalíu, Írak og Palestínu verði fækkað þar sem þeim gengur illa að fá vinnu í Danmörku og verða því byrði á samfélaginu.

Erlent
Fréttamynd

Íranar aðeins örfáum mánuðum frá því að búa til kjarnavopn

Aðeins örfáir mánuðir eru í að Íranar komi sér upp kjarnavopnum. Þetta segir Mohammad ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Ef Íranar haldi áfram að auðga úran í nokkrum kjarnorkuverum taki það þá aðeins nokkra mánuði til viðbótar að koma sér upp kjarnavopnum.

Erlent