Fréttir

Fréttamynd

Tugþúsundir manna sýna Gotovina stuðning

Tugþúsundir manna hafa safnast saman á götum úti í Króatíu til þess að sína meinta stríðsglæpamanninum Ante Gotovina stuðning. Hann var í gærmorgun fluttur með spænskri herflugvél áleiðis til stríðsglæpadómstólsins í Haag.

Erlent
Fréttamynd

Jafnt hjá Man Utd og Everton

Man Utd mistókst að endurheimta 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu nú undir kvöldið þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Everton á Old Trafford. Stuðningsmenn Man Utd bauluðu á sína leikmenn þegar dómarinn flautaði til leiksloka.

Sport
Fréttamynd

Stefán skoraði fyrir Lyn

Stefán Gíslason skoraði eitt mark norska liðsins Lyn sem vann sænska liðið Gautaborg, 3-1 Royal League eða skandinavísku meistaradeildinni í fótbolta í dag. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn í liði Start sem gerði 3-3 jafntelfi við Vålerenga í sömu keppni.

Sport
Fréttamynd

Andi jólanna í hættu

Andi jólanna er í hættu vegna gegndarlausrar efnishyggju víða um heim. Þetta sagði Benedikt páfi í vikulegri blessum sinni á Péturstorginu í Róm. Páfinn sagði að jólin liðu fyrir auglýsingaeitrun, sem tröllriði öllu í hinum vestræna heimi á þessum árstíma.

Erlent
Fréttamynd

Frábær endurkoma Els

Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els vann sigur á Dunhill meistaramótinu í golfi í Evrópumótaröðinni í Suður Afríku í dag með þriggja högga forystu. Els átti frábæran lokadag í dag og lék á 68 höggum. Hann fékk 5 fugla og einn skolla og lauk keppni á samtals 274 höggum eða samtals 14 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

1-1 í hálfleik hjá Man Utd og Everton

Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en Manchester United og Everton eigast við á Old Trafford. Þar er nýbúið að flauta til hálfleiks og er staðan 1-1. Everton komst yfir strax á 7. mínútu með marki James McFadden en Ryan Giggs jafnaði metin fyrir heimamenn á 15. mínútu eftir sendingu frá Paul Scholes.

Sport
Fréttamynd

Juventus í 10 stiga forystu

Juventus náði í dag 10 stiga forystu á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta þegar liðið valtaði yfir Cagliari, 4-0. David Trezeguet skoraði tvö mörk fyrir Juve og Pavel Nedved eitt en fjórða markið var sjálfsmark. 7 leikjum er lokið í Serie A í dag.

Sport
Fréttamynd

Steingrímur talar mest

Þrátt fyrir að þing sé nú einungis hálfnað hefur sá þingmanna sem lengst hefur staðið í ræðustól, talað í rúman hálfan sólarhring. Það kemur ef til vill fáum á óvart að formaður Vinstri Grænna, Steingrímur J Sigfússon, skuli fara þar fremstur í flokki. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, talaði hins vegar minnst.

Innlent
Fréttamynd

Öflugur skjálfti á Nýju Gíneu

Jarðskjálfti upp á sex komma átta á Richter skók Nýju Gíneu á þriðja tímanum í dag. Skjálftinn varð í þeim hluta landsins sem liggur norður af Ástralíu og austur af Indónesíu. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í skjálftanum.

Erlent
Fréttamynd

Pryor látinn

Grínleikarinn frægi Richard Pryor lést í gærkveldi. Hjartaáfall varð honum að fjörtjóni að sögn eftirlifandi eiginkonu hans. Richard Pryor var sextíu og fimm ára að aldri og hafði glímt við MS sjúkdóminn í um tvo áratugi.

Erlent
Fréttamynd

Keane og Wenger til Real?

Nú virðist fara að draga til tíðinda hjá Real Madrid sem er í þjálfaraleit. Fréttir frá Spáni herma nú að Madridarfélagið ætli að bjóða Arsene Wenger, stjóra Arsenal, 15 milljónir punda fyrir að taka við liðinu. Þá herma fregnir einnig að Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Man Utd hafi gengist undir læknisskoðum hjá Real Madrid í gær og gengið verði frá samningi við hann eftir helgina.

Sport
Fréttamynd

Flugöryggi gagnrýnt

Flugöryggi í Nígeríu er nú harðlega gagnrýnt eftir enn eitt stóra flugslysið í landinu í gær, þar sem yfir eitt hundrað manns fórust.

Erlent
Fréttamynd

Fótbolta eða júdó?

Knattspyrnustjóri Arsenal, Arsene Wenger segir að Alan Shearer, fyrirliði Newcastle komist upp með meira en aðrir leikmenn. Wenger er ósáttur við frammistöðu dómarans Dermot Gallagher þegar Arsenal tapaði 1-0 fyrir Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í gær en Arsenal lék manni færri eftir að Gilberto fékk rauða spjaldið eftir 57 mínútna leik liðanna á St James Park.

Sport
Fréttamynd

Titillinn vekur heimsathygli

Allir helstu norrænu fjölmiðlarnir og fleiri til fjalla um sigur Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur í Miss World fegurðarsamkeppninni.

Lífið
Fréttamynd

Hræddur við Ástrala

Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga í fótbolta segist vera guðs lifandi feginn því að hafa ekki dregist í riðil með Áströlum á HM sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Hann segist óttast Ástrala sérstaklega vegna þess hve mikill rígur er á milli þjóðanna í íþróttagreinum.

Sport
Fréttamynd

Íslendingarnir úr leik

Íslenska sundfólkið, Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir eru úr leik á Evrópumeistaramótinu í Trieste á Ítalíu en þau luku keppni í morgun. Jakob hafnaði í 19. sæti af 34 keppendum í undanrásum í 200 metra bringusundi en hann synti á 2 mín og 12.45 sek í morgun. Ragnheiður varð í 24. sæti af 41 keppanda í undanrásum í 50 metra skriðsundi en hún synti á 25.93 sek.

Sport
Fréttamynd

KA úr leik í Evrópu

KA er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta karla en norðanmenn töpuðu með 10 marka mun gegn Steaua Bucharest, 31-21 í Rúmeníu í morgun. Þetta var í síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum en þeim fyrri lauk með sigri KA á Akureyri.

Sport
Fréttamynd

LeBron með 52 stig

Það urðu heldur betur óvænt úrslit í NBA körfuboltanum í nótt þegar Atlanta Hawks unnu meistarana í San Antonio Spurs, 94-84 eftir sjö tapleiki í röð. Hinn tvítugi LeBron James gerði sér lítið fyrir og skoraði 52 stig fyrir Cleveland Cavaliers sem tapaði fyrir Milwaukee.

Sport
Fréttamynd

Opið í Hlíðarfjalli í dag

Hlíðarfjall er opið í dag og skíða- og brettafæri er mjög gott. Það voru margir sem mættu snemma til að nýta sér færið þrátt fyrir óspennandi veðurspá. Allar helstu lyftur eru í gangi og opið verður í Hlíðarfjalli til klukkan fimm í dag.

Innlent
Fréttamynd

Róleg nótt hjá lögreglu víða um land

Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni víða um land. Brotist var inn í bensínstöðina í Garðinum og nokkrum sígarettupökkum stolið. Lögreglan hafði afskipti af tveimur unglingspiltum síðar um nóttina sem viðurkenndu að hafa brotist inn ásamt þremur öðrum strákum.

Innlent
Fréttamynd

Árekstur á Suðurlandsvegi

Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítala Háskólasjúkrahús eftir harðan fimm bíla árekstur á Suðurlandsveginum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fengu á sig mark á lokamínútunni

Notts County, lið Guðjóns Þórðarson í ensku 2. deildinni missti naumlega af mikilvægum sigri í dag þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Wrexham á útivelli. County komst yfir þegar 6 mínútur voru til leiksloka en heimamenn jöfnuðu á 90. mínútu. Notts County er í 13. sæti deildarinnar en er þó aðeins 5 stigum frá sjöunda sætinu sem gefur rétt til umspils.

Sport
Fréttamynd

Magdeburg og Århus úr leik

16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta lauk í dag þar sem Íslendingaliðin Magdeburg og Århus féllu úr keppni. Sturla Ásgeirsson var hins vegar markahæstur danska liðsins Århus GF sem féll úr keppni með tapi fyrir ungverska liðinu Veszprém, 28-31. Sturla gerði 7 mörk í dag.

Sport
Fréttamynd

Reading enn efst eftir stórsigur

Reading stefnir hraðbyri upp í ensku úrvalsdeildina í fótbolta en liðið valtaði yfir Brighton, 5-1 í 1. deild í dag. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn í vörn Reading og Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á af varamannabekknum á 73. mínútu en þetta er í fyrsta sinn sem hann leikur með Reading í talsverðan tíma eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Sport
Fréttamynd

Chelsea heldur áfram að vinna

Chelsea endurheimti 12 stiga forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 1-0 heimasigri á Wigan en 6 leikjum var að ljúka í deildinni rétt í þessu. John Terry skoraði eina mark leiksins á 67. mínútu. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 30 mínúturnar með Chelsea.

Sport
Fréttamynd

Jólagleði Kramhússins í Borgarleikhúsinu í kvöld

Það verður sannkölluð fjömenningarveisla á Jólagleði Kramhússins sem haldin er í Borgarleikhúsinu í kvöld. Þar munu um 160 þátttakenur stíga á stokk og sýna listir sínar en óhætt er að segja að þar leynist margir snillingar.

Innlent
Fréttamynd

Grétar og Viktor framlengja hjá Víkingi

Víkingur sem leikur í Landsbankadeild karla í fótbolta á næsta tímabili sendi í dag frá sér fréttatilkynningu sem í segir að félagið hafi gert nýja samninga við leikmennina Viktor Bjarka Arnarsson og Grétar Sigfinn Sigurðsson.

Sport