Sport

KA úr leik í Evrópu

Jónatan Magnússon fékk rauða spjaldið í Rúmeníu í morgun.
Jónatan Magnússon fékk rauða spjaldið í Rúmeníu í morgun.

KA er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta karla en norðanmenn töpuðu með 10 marka mun gegn Steaua Bucharest, 31-21 í Rúmeníu í morgun. Þetta var í síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum en þeim fyrri lauk með sigri KA á Akureyri, 24-23.

Staðan í hálfleik var 13-9 fyrir Steaua en KA-menn náðu að minnka muninn í síðari hálfleik í 17-15 og 19-17. Jónatan Magnússyni var vikið af velli með rautt spjald á 47. mínútu í stöðunni 20-17 og eftir það skildu leiðir og heimamenn sigldu lengra framúr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×