Fréttir
Reykjavíkurborg tekur þátt í herferð gegn dauðarefsingum Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að taka þátt í baráttunni gegn dauðarefsingum með því að gerast aðili að herferðinni "Lífsborg -gegn dauðarefsingum". Tæplega 400 borgir víða um heim hafa gerst aðilar að herferðinni. Reykjavíkurborg vill leggja baráttunni gegn dauðarefsingum lið, þar sem um mikilvæga mannréttindabaráttu sé að ræða. Innlent 20.12.2005 15:47
Aðeins einn umsækjandi um stöðu sóknarprests í Hallgrímskirkju Annar umsækjenda um embætti sóknarprests í Hallgrímskirkjuprestakalli dró umsókn sína til baka í morgun. Tveir umsækjendur sóttu upphaflega um stöðuna en sr. Jón Dalbú Hróbjartsson er því eini umsækjandinn um stöðuna. Innlent 20.12.2005 15:17
Þrefalt meiri líkur á veltu eða útaf akstri í jeppa en fólksbíl Þrefalt meiri líkur eru á að ökumaður velti eða keyri jeppa út af en fólksbíl samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem Landsbjörg gerði. Innlent 20.12.2005 15:09
Dr. Þorsteinn Magnússon skipaður í ritnefnd í stað Þorsteins Pálssonar Forseti Alþingis hefur ákveðið að dr. Þorsteinn Magnússon stjórnmálafræðingur, forstöðumaður á skrifstofu Alþingis, verði skipaður í ritnefnd til að skrifa sögu þingræðisins á Íslandi. Innlent 20.12.2005 15:01
Palestínskir byssumenn hertóku ráðhúsið í Betlehem Meira en tuttugu palestínskir byssumenn hertóku ráðhúsið í Betlehem á Vesturbakkanum fyrir hádegið í dag. Mennirnir óðu inn í húsið hlaðnir vopnum, skipuðu starfsfólki að drífa sig út og læstu svo hurðum ráðhússins. Erlent 20.12.2005 14:59
Hamborgarhryggur á Suðurnesjum en hangikjöt á Ströndum Suðurnesjamenn vilja hamborgarhrygg í jólamatinn en líta nánast ekki við rjúpu á sama tíma og rjúpan hefur ýtt hamborgarhryggnum út af jólaborði Mývetninga eftir að veiðibanninu lauk og hangikjöt heldur velli norður á Ströndum. Innlent 20.12.2005 12:35
Örnólfur Thorsson skipaður forsetaritari Örnólfur Thorsson hefur verið skipaður í starf forsetaritara í stað Stefáns Lárusar Stefánssonar sem lætur af störfum um áramót og hverfur á ný til starfa á vettvangi utanríkisráðuneytisins. Örnólfur var ráðinn sérfræðingur á skrifstofu forseta Íslands árið 1999 og hefur verið skrifstofustjóri frá 2003. Innlent 20.12.2005 12:25
Útlit fyrir að hægi á vexti einkaneyslunnar Þrátt fyrir talsvert meiri veltu í dagvöruverslun í síðasta mánuði en í sama mánuði í fyrra, eru vísbendingar um að farið sé að hægja á vexti einkaneyslunnar, samkvæmt mælingum Rannsóknaseturs verslunarinnar. Innlent 20.12.2005 12:21
Viðbúnaður á Kastrup vegna lendingar vélar frá Iceland Express Viðbúnaður var við lendingu vélar Iceland Express á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn laust fyrir hádegi í dag. Ástæðan var sú að merki í stjórnborði vélarinnar gaf til að nefhjól vélarinn hefði ekki farið niður. Flugmenn vélarinnar settu því hjólið handvirkt niður og gekk það vandræðalaust. Farþegar vélarinnar fengu upplýsingar um gang mála jafnóðum og að lendingu lokinni var þeim boðin aðstoð eftir þörfum. Tæknimenn SAS eru að fara yfir búnað vélarinnar. Engin seinkun varð á lendingunni en búist er við einhverri töf á brottför frá Kaupmannahöfn í dag þar sem kalla þarf inn nýja vél. Innlent 20.12.2005 12:54
Magnús kaupir P. Samúelsson í dag Toyota-umboðið á Íslandi skipti um eigendur í dag. Magnús Kristinsson útgerðarmaður kaupir P. Samúelsson hf. og var skrifað undir samninga nú fyrir hádegi. Innlent 20.12.2005 10:35
Þrefalt meiri líkur eru á að ökumaður velti eða keyri jeppa út af en fólksbíl. Þrefalt meiri líkur eru á að ökumaður velti eða keyri jeppa út af en fólksbíl. Innlent 20.12.2005 12:36
Þorsteinn hættir við að rita sögu þingræðis Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi sendiherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur hætt við að rita sögu þingræðisins. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu. Innlent 20.12.2005 12:32
Handtekinn vegna aðildar að misheppnuðum árásum Breska lögreglan hefur handtekið tuttugu og þriggja ára gamlan mann sem talinn er hafa átt þátt í misheppnuðum hryðjuverkaárásum á London þann 21. júlí. Maðurinn var handsamaður þegar hann kom til Bretlands með flugvél frá Eþíópíu nýlega. Erlent 20.12.2005 12:07
Ríkisstjórnin skipar nýja fjölmiðlanefnd Ríkisstjórnin ákvað í morgun að skipa nýja fjölmiðlanefnd til að leggja grunninn að nýju frumvarpi um íslenska fjölmiðla. Nefndin verður skipuð sjö manneskjum úr öllum stjórnmálaflokkum. Innlent 20.12.2005 12:09
Sjálfstæðiflokkurinn með mikinn meirihluta samkvæmt könnun Sjálfstæðisflokkurinn er með mikinn meirihluta í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá Gallup. Framsóknarflokkurinn næði ekki inn manni en um þrjátíu prósent borgarbúa treysta Birni Inga Hrafnssyni, sem stefnir á efsta sæti á lista framsóknarmanna, til að gegna starfi borgarstjóra. Innlent 20.12.2005 12:05
Verslunarstjórar sakfelldir fyrir mútuþægni Átján verslunarstjórar í áfengisverslunum ríkisins í Svíþjóð voru í gær sakfelldir fyrir að hafa tekið við mútum frá birgi sem vildi koma vöru sinni á framfæri. Verslunarstjórarnir þurfa að greiða dagsektir ásamt andvirði mútanna til ríkissjóðs. Erlent 20.12.2005 07:46
Varð vitni að því þegar málverk skiptu um hendur Norsk lögregla varð vitni að því í fyrra þegar málverkin Ópið og Madonna eftir Edvard Munch skiptu um hendur í fyrrahaust en gerði ekkert í því. Þetta kemur fram á heimasíðu norska ríkisútvarpsins. Erlent 20.12.2005 07:43
Bannar vestræna tónlist Forseti Írans hefur ákveðið að banna vestræna tónlist á útvarps- og sjónvarpsstöðvum landsins. Sem forseti Írans er Mahmoud Ahmedinajad líka yfirmaður menningarráðs landsins, sem hefur sent frá sér tilkynningu þessa efnis. Erlent 20.12.2005 11:14
Sambönd iðnaðarmanna á Norðurlöndum sameinast Eitt norrænt iðnaðarmannasamband verður til um áramótin en þá sameinast Samband málmiðnaðarmanna og Samband starfsfólks í efna-, pappírs- og textíliðnaði. Samkvæmt frétt á heimasíðu Samiðnar verða félagsmenn yfir 1,2 milljónir í 22 samböndum. Innlent 20.12.2005 10:47
Rasmussen hefði átt að ræða við sendiherra Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefði átt að ræða við sendiherra íslamskra ríkja í landinu eins og þeir fóru fram á vegna teikninga af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum. Þetta segja 22 fyrrverandi sendiherrar Danmerkur í grein í Politiken. Erlent 20.12.2005 07:41
Sharon útskrifaður af sjúkrahúsi Nú fyrir hádegið var Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, útskrifaður af spítalanum í Jerúsalem sem hann hefur legið á síðan í fyrradag. Að sögn lækna hlaut hann ekki varanlegan skaða af völdum heilablóðfallsins. Erlent 20.12.2005 10:38
Ríflega helmingur Suðurnesjamanna hefur hamborgarhrygg Rösklega helmingur Suðurnesjamanna, eða 55 prósent, ætlar að hafa hamborgarhrygg í jólamatinn, samkvæmt skoðanakönnun Víkurfrétta. Næst kemur kalkún, en fimm prósent ætla að hafa hann, fjögur prósent rjúpu, tvö prósent önd en rúmlega þirðjungur er enn óákveðinn. Innlent 20.12.2005 07:52
Dæmdur til dauða fyrir heróínsmygl Ástrali af víetnömskum uppruna hefur verið dæmdur til dauða í Víetnam fyrir að smygla heróíni til landsins. Maðurinn var handtekinn fyrir ári ásamt þremur öðrum og þeir ákærðir fyrir að reyna að smygla hátt í tveimur kílóum af heróíni. Hann er þriðji Ástralinn af víetnömskum uppruna sem dæmdur er til dauða í Víetnam fyrir eiturlyfjasmygl á árinu. Erlent 20.12.2005 08:04
Bandarísk tollyfirvöld vara við ólöglegum Tamiflu innflutningi Bandarísk yfirvöld lögðu í gær hald á póstsendingu sem innihélt fimmtíu ólöglega skammta af flensulyfinu Tamiflu. Lyfið er einkaleyfisskylt og framleitt af lyfjarisanum Roche og því ólöglegt að framleiða og selja lyfið. Ólöglegur innflutningur Tamiflu, sem talið er lækna fuglaflensu, er sístækkandi vandamál í Bandaríkjunum. Bandarísk tollayfirvöld segja lyfið vera pantað í gegnum internetið frá Asíu og að oftast sé aðeins um lyfleysu að ræða. Yfirvöld segja þessa hömstrun hættulega og vara við kaupum á lyfinu í gegnum internetið. Innlent 20.12.2005 07:47
Hærra gjald fyrir reykingafólk í dönskum lestum Reykingafólk sóðar út segir danska járnbrautafyrirtækið DSB. Af þeim sökum hafa fargjöld reykingafólks verið hækkuð um helming á við það sem reyklausir borga. Einnig mun reyksætum fækka í lestunum og sumar lestir verða alveg reyklfríar. Er þetta gert vegna þess að þrif eftir reykingafólk kostar milljónir króna á ári hverju og einnig af tillitssemi við reyklausa. Gjaldhækkunin tekur gildi um áramót. Innlent 20.12.2005 07:40
Launavísitala hækkaði um 0,6 prósent í nóvember Launavísitala var 272,3 stig í síðasta mánuði og hækkaði um 0,6 prósent frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,3 prósent. Innlent 20.12.2005 09:28
Dökkt súkkulaði meinhollt fyrir hjartað Nú geta súkkulaðifíklar tekið gleði sína því svissneskir vísindamenn hafa fært sönnur fyrir því að súkkulaðiát geti komið í veg hjartaáfall. Vísindamenn í Zurich rannsökuðu hóp reykingamanna með stíflaðar kransæðar. Innlent 20.12.2005 07:32
Grjóthrun á þjóðveginn í Hvalnesskriðum Grjót hrundi niður á þjóðveginn í Hvalnesskriðum á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs á fjórða tímanum í nótt og áttu flutningabílar í erfiðleikum með að komast leiðar sinnar. Vegurinn var þó jeppafær. Innlent 20.12.2005 07:38
Fartölvum stolið á tveimur stöðum Þjófar brutust inn í íbúð við Hringbraut í Reykjavík í gærkvöldi og stálu þaðan meðal annars nýrri fartölvu. Þá barst tilkynning um innbrot í tölvuverslun við Suðurlandsbraut á fimmta tímanum í nótt. Þar náðu þjófar að stela þremur nýjum fartölvum og komast undan áður en lögregla kom á vettvang. Innlent 20.12.2005 07:31
Verkfall hafið í New York Verkfall hófst í morgun hjá starfsmönnum almenningssamgangna í New York. Ekki náðist saman um nýjan kjarasamning í gærkvöldi og því hófst verkfallið í morgun. Talið er að það kosti borgaryfirvöld allt að fjögur hundruð milljónir dollara á hverjum degi. Þá verða milljónir manna að finna sér aðrar leiðir til að komast í og úr vinnu. Erlent 20.12.2005 08:44