Fréttir
Bin Laden sagður besta skinn Osama bin Laden er kurteis, hógvær og feiminn maður. Þetta segir ástralskur maður sem var í gær dæmdur fyrir að þiggja styrki frá al-Qaida. Hann starfaði undir handleiðslu bin Laden aðeins nokkrum mánuðum áður en al-Qaida gerðu hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum 11. september 2001. Erlent 28.2.2006 07:16
Bjargaði aldraðri konu úr þjónustuíbúð sem kviknað hafði í Kona á vakt í þjónustuíbúðum aldraðra á Selfossi kom aldraðri konu til bjargar eftir að eldur kviknaði í íbúð hennar laust fyrir miðnætti og kom henni út í tæka tíð. Báðar voru fluttar á sjúkrahúsið á Selfossi vegna snerts af reykeitrun og dvöldu þar í nótt, en báðar eru að jafna sig. Innlent 28.2.2006 07:07
Sprengja sprakk við legstein föður Husseins Níu sundurskotin lík fundust á víðavangi nærri borginni Bakúba í Írak í morgun. Ekki liggur fyrir hve langt er síðan fólkið var skotið, en líklega var það myrt í óöldinni í Írak í síðustu viku þegar meira en tvö hundruð manns féllu í landinu eftir sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía. Og nú í morgunsárið sprakk svo sprengja við legstein föður Saddams Hussein í borginni Tíkrit. Erlent 28.2.2006 07:01
Banaslys á Sæbrautinni í nótt Banaslys varð á Sæbraut, við gatnamótin að Kringlumýrarbraut, um klukkan hálfeitt í nótt. 19 ára stúlka, sem var ein í bíl sínum á austurleið eftir Sæbraut, missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann fór út af akbrautinni og braut niður tvo ljósastaura uns hann staðnæmdist á þeim þriðja. Innlent 28.2.2006 06:54
Úrvalsvísitalan heldur áfram að lækka Úrvalsvísitalan hefur því lækkað um rúm 3% á þeirri viku sem liðin er frá því að Fitch Ratings breytti horfum í lánshæfismati ríkissjóðs Ísland úr stöðugu í neikvætt. Mest lækkuðu hlutabréf í FL-Group í dag eða um tæp 3% en bréf í Straumi lækkuðu um 1,5% prósent. Gengi krónunnar styrktist í dag um 0,5%. Innlent 27.2.2006 23:06
Fyrsta nethappdrættinu á Íslandi hleypt af stokkunum Fyrsta rafræna happdrættinu hér á landi var hleypt af stokkunum í dag hjá Kiwanisklúbbnum Setbergi. Forsvarsmaður klúbbsins segir þetta tímamót í fjáröflun á Íslandi. Innlent 27.2.2006 22:18
Kópavogur brátt bær turnanna Framkvæmdir eru hafnar við hæsta hús á Íslandi á Smáratorgi. Búið er að samþykkja annað verslunarháhýsi hinu megin við götuna og umsókn fyrir það þriðja liggur fyrir. Oddviti minnihlutans í Kópavogi telur gatnakerfi Kópavogs engan veginn í stakk búið til að taka við þeirri umferð sem fylgir háhýsunum. Innlent 27.2.2006 22:10
Breyta þarf um takt í vistunarmálum aldraðra Breyta þarf um takt í vistunarmálum aldraðra segir heilbrigðisráðherra. Hann vill að meiri áhersla verði lögð á uppbyggingu léttari þjónusturýma. Innlent 27.2.2006 19:36
Enginn árangur af sáttafundi Sáttafundi slökkviliðsmanna og viðsemjenda þeirra hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs nú undir kvöldið. Annar fundur hefur verið boðaður í hádeginu á morgun en samkvæmt heimildum NFS er enn nokkuð langt í land með að samkomulag náist. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu í síðustu viku heimild til boðun verkfalls um allt land. Innlent 27.2.2006 19:26
Sorg á Akureyri Ungu mennirnir tveir úr Eyjafirði, sem voru í för með mönnunum sem hröpuðu niður í jökulsprungu á Hofsjökli um helgina með þeim afleiðingum að annar lést, eru miður sín eftir atburðina. Innlent 27.2.2006 19:10
Báðir mennirnir enn á gjörgæslu Líðan mannsins sem féll af þaki við Lyngás í Garðabæ í síðustu viku er stöðug. Hann er alvarlega slasaður en hann er í öndunarvél og er honum haldið sofandi á gjörgæslu Landspítalans-háskólasjúkrahúss. Maðurinn sem var í bíl sem fór ofan í sprungu upp á Hofsjökli um helgina er enn á gjörgæslu en ástand hans er stöðugt. Hann er alvarlega slasaður en með meðvitund. Innlent 27.2.2006 16:42
Töluverðar annir hjá lögreglunni í Hafnarfirði Talsvert mikið var að gera í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði þessa helgi. Margar tilkynningar og kvaranir bárust vegna ölvunar, bæði unglinga og hinna eldri. Þá bárust einnig allmargar kvartanir vegna hávaða frá samkvæmum í heimahúsum. Innlent 27.2.2006 14:38
ESB bjargar Palestínumönnum frá gjaldþroti Evrópusambandið ætlar að bjarga Palestínumönnum frá gjaldþroti. Framkvæmdastjórn sambandsins samþykkti í morgun að styrkja heimastjórnina um tæpa tíu milljarða króna. Erlent 27.2.2006 14:05
Bono og Geldof tilnefndir til friðarverðlauna Nóbels Rokksöngvararnir eru Bono og Bob Geldof eru meðal þeirra sem tilnefndir eru til friðarverðlauna Nóbels í ár. Þeir eru í hópi 191 einstaklings og hóps sem tilnefndir eru en báðir hafa látið sig málefni þriðja heimsins varða. Erlent 27.2.2006 13:55
Segir skýr merki um að hækkanir á fasteignum séu í rénun Fjármálaráðuneytið telur að þess séu nokkuð skýr merki að þær verðhækkanir sem einkenndu fasteignamarkaðinn í upphafi síðasta árs séu í rénun. Á heimasíðu ráðuneytisins kemur fram að fasteignaverð hafi staðið í stað á undanförnum mánuðum sem komi fram í því að hratt dragi úr mánaðarlegum hækkunum. Innlent 27.2.2006 13:30
Málaferli vegna Da Vinci lykilsins hefjast í Lundúnum Tveir breskir rithöfundar saka höfund bókarinnar Da Vinci lykillinn um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni. Kvikmynd sem byggð er á bókinni gæti seinkað vegna málaferla. Erlent 27.2.2006 12:27
Bolla, bolla, bolla! Bolludagurinn er í dag. Að gæða sér á bollum og öðru góðgæti á þessum mánudegi í föstuinngangi er siður sem barst hingað til lands seint á nítjándu öld frá Danmörku og hefur haldist hér æ síðan. Nafnið á deginum er þó alíslenskt og er fyrst notað rétt eftir aldarmótin nítjánhundruð. Langflestir Íslendingar gæða sér á bollum í dag og nú er úrvalið orðið meira en áður og bollutegundirnar sem bakarar bjóða uppá og mikið er að gera hjá þeim á þessum góðgætisdegi Innlent 27.2.2006 12:25
Tilboði í íbúðir þriðjungur af brunabótamati Byggðaráð Dalabyggðar hefur hafnað tilboðum í sjö félagslegar íbúðir í Búðardal þar sem þau voru alltof lág. Einn og sami fjárfestirinn bauð í þær allar samtals 33 milljónir króna eða innan við fimm milljónir í hverja íbúð að meðaltali. Innlent 27.2.2006 12:24
Telur samstarf við sjálfstæðismenn ólíklegt eftir kosningar Þingflokksformaður Vinstri - grænna telur afar litlar líkur á meirihlutasamtarfi flokksins og Sjálfstæðisflokksins að loknum borgarstjórnarkosningum í vor. Þá telur hann að Svandís Svavarsdóttir ætti að verða borgarstjóri ef Samfylkingin og Vinstri - grænir vinna áfram saman. Innlent 27.2.2006 12:21
Engin svartsýni þrátt fyrir rýra vertíð Þau fáu loðnuskip sem enn eru að veiðum á þessari óvenju rýru vertíð, þar sem aðeins mátti veiða um 170 þúsund tonn, eru um það bil að slá botninn í hana. Nokkur eru búin með kvóta sína og hafa lagst við bryggju, önnur eru á landleið úr síðustu veiðiferð en nokkur eru enn að veiðum, sem ganga vel þegar bjart er af degi. Innlent 27.2.2006 12:13
Fólk enn hrætt í Bagdad þrátt fyrir kyrrð í morgun Þriggja daga samfelldu útgöngubanni var aflétt í Bagdad í morgun. Hræðsla er þó enn ofarlega í huga fólks og margir óttast að kyrrðin í morgun sé bara lognið á undan storminum. Erlent 27.2.2006 12:08
Fiskútflytjendur búa sig undir aukna eftirspurn Fiskútflytjendur búa sig allt eins undir stóraukna eftirspurn eftir fiski á Evrópumörkuðum, eftir að fuglaflensa greindist í alifuglabúi í Frakklandi um helgina. Innlent 27.2.2006 12:04
Fáklæddur á flókatöflum á Suðurlandsvegi Í mörgu var að snúast hjá lögreglumönnum í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í liðinni viku og segir í dagbók lögreglunnar þar að sumir ökumenn hafi hagað akstri sínum líkt og kýr sem sleppt er út í fyrsta skipti á góðum vordegi. Þá óku lögreglumenn fram á fáklæddan karlmann á flókatöflum á Suðurlandsvegi. Innlent 27.2.2006 10:47
Niðurgreiðslur vegna barna í einkareknum leikskólum hækkaðar Seltjarnarnesbær hefur ákveðið að hækka niðurgreiðslur vegna barna einstæðra foreldra, barna námsmanna og systkina í einkareknum leikskólum og gildir breytingin frá áramótum Innlent 27.2.2006 10:33
LSS og LN funda eftir hádegi Fundur hefur verið boðaður klukkan eitt hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaganna. Innlent 27.2.2006 10:23
Annir hjá lögreglunni á Akranesi í liðinni viku Töluverðar annir voru hjá lögreglunni á Akranesi í liðinni viku en 110 mál komu til kasta hennar. 34 voru kærðir fyrir að keyra of hratt og óku þeir á 112-130 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 og 93 - 100 í Hvalfjarðargöngum þar sem hámarkshraði er 70. Innlent 27.2.2006 10:01
Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu Danir skipta oftast Evrópuþjóða um vinnu samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá þessu er greint á fréttavef danska ríkisútvarpsns. Erlent 27.2.2006 07:49
Sjá sóknarfæri vegna fuglaflensu Norskir laxeldismenn sjá mikið sóknarfæri inn á Evrópumarkaðinn vegna fuglaflensunnar. Intra Fish greinir til dæmis frá því að kjúklinganeysla hafi dregist saman um 70 prósent á Ítalíu vegna ótta fólks við flensusmit úr alifuglum og þess í stað aukist meðal annars fiskneysla. Erlent 27.2.2006 07:47
Húsnæðisverð langhæst í Kaupmannahöfn Húsnæðisverð í Kapmannahöfn er orðið hið langhæsta á Norðurlöndum og er meðalverð á fermetra komið upp í um það bil 300 þúsund íslenskar krónur. Það er því orðið hærra en í Stokkhólmi sem lengi hefur státað af titlinum dýrasta borg í Skandinavíu. Erlent 27.2.2006 07:44
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda eykst um 11% á 15 árum Útstreymi gróðurhúsalofttegunda jókst um ellefu prósent á árabilinu 1990-2004 samkvæmt nýjum tölum sem birtar eru á vef Hagstofunni. Aukninguna má fyrst og fremst rekja til aukins útstreymis koldíoxíðs en sú lofttegund er langþýðingarmest af þeim lofttegundum sem valda gróðurhúsaáhrifum. Innlent 27.2.2006 09:51