Fréttir
Tekjuafgangur Akureyrarbæjar 360 milljónir Heildarniðurstaða ársreikninga Akureyrarbæjar fyrir síðasta ár, sem lagðir voru fram í bæjarráði Akureyrar í dag, er mun betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fjárhagurinn er traustur og er rekstrarniðurstaða samstæðunnar jákvæð um ríflega 360 milljónir króna. Áætlun hafði gert ráð fyrir 144,2 milljóna króna hagnaði. Viðskipti innlent 9.3.2006 13:31
Stýrivextir óbreyttir í Bretlandi Bankastjórn Englandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að hækka ekki stýrivexti í Bretlandi. Þeir eru nú 4,5 prósent og hafa haldist óbreyttir síðastliðna sjö mánuði. Stöðugleiki í bresku efnahagslífi og jákvæð breyting á fasteignamarkaði eru talin ástæða þess að bankastjórnin ákvað að halda vöxtunum óbreyttum. Viðskipti erlent 9.3.2006 13:08
Hagnaður PPR dróst saman Hagnaður franska eignarhaldsfélagsins PPR, sem m.a. á ítalska tískufyrirtækið Gucci auk fleiri þekktra vörumerkja, dróst saman um tæpan helming á síðasta ári miðað við árið á undan. Hagnaður fyrirtækisins á árinu nam 535 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 44 milljarða íslenskra króna. Árið 2004 nam hagnaðurinn hins vegar 1.09 milljörðum evra, tæplega 90 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 9.3.2006 12:36
Fengu þau skilaboð að verðið réði öllu Forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hafa boðið umfram gjaldskrá í lóð Urriðaholts í Garðabæ eftir að hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts að verðið réði úrslitum um hver fengi lóðina. Byko bauð ekki umfram gjaldskrá. Innlent 9.3.2006 11:20
Stjörnu-Oddi hlýtur Nýsköpunarverðlaunin í ár Nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs fyrir árið 2006 voru afhent við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í morgun. Að þessu sinni hlaut fyrirtækið Stjörnu-Oddi verðlaunin en það vinnur að þróun og framleiðslu á mælitækjum sem eru það lítil að og handhæg að hægt er að setja þau á fiska. Innlent 9.3.2006 11:16
Bjóða ókeypis notkun milli innlendra heimasíma Og Vodafone býður nú viðskiptavinum sínum, sem nýta sér vildarþjónustuna Og1, að hringja ótakmarkað úr heimasíma sínum í alla innlenda heimasíma án endurgjalds. Þetta er í fyrsta skipti sem boðið er upp á ótakmörkuð ókeypis símtöl milli innlendra heimasíma en viðskiptavinir greiða aðeins óbreytt venjulegt mánaðargjald. Innlent 9.3.2006 09:45
Sektuð fyrir að farða sig undir stýri Það getur verið betra að gefa sér tíma til að hafa sig til áður en maður fer út á morgnana. Þetta fékk bresk kona heldur betur að reyna á dögunum, þegar lögreglumenn sektuðu hana um röskar tuttugu þúsund krónur fyrir að farða sig á meðan hún var að keyra. Erlent 9.3.2006 07:41
Erfiður morgunn Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Garðsvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. Bæði ökumaðurinn og farþegi í bílnum sluppu með skrámur, en voru vistaðir í fangageymslum í nótt. Innlent 9.3.2006 07:39
Lögregla hefur afskipti af hústökufólki Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af svonefndu hústökufólki, sem í stór auknum mæli er farið að hreiðra um sig í auðum húsum, einkum á svæði hundrað og einum. Innlent 9.3.2006 07:36
Mótmælin halda áfram Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær fylktu fjölmargir múslimar liði í indverska hluta Kashmir og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað. Erlent 9.3.2006 07:23
Viðræður hafnar Viðræður eru þegar hafnar um hugsanlegar aðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuþróunar þeirra. Fulltrúar fimm landa sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hittust í gærkvöldi til að fjalla um mögulegar leiðir til að stöðva Írana. Erlent 9.3.2006 06:33
Sólveig gagnrýnd Stjórnarandstöðuþingmenn gripu enn til þess ráðs í gærkvöldi , að lengja mál sitt við aðra umræðu um vatnalagafrumvarp iðnaðarráðherra, til að tefja fyrir framgöngu málsins. Innlent 9.3.2006 07:22
Bíða milli vonar og ótta Hagsmunaaðillar á fjármálamarkaði bíða nú milli vonar og ótta eftir því hvað gerist á markaðnum í dag, eftir að krónan lækkaði um tæp þrjú prósent í gær og úrvalsvísitalan í Kauphöllinni lækkaði um rúm þrjú prósent á einum degi, sem telst til tíðinda þar á bæ. Innlent 9.3.2006 06:31
Ný fuglaflensutilvik í Svíþjóð Fleiri tilvik af fulglaflensu hafa greinst í Svíþjóð. Fjórar endur sem fundust dauðar á strandlengjunni suður af Stokkhólmi og í Karlskrona í síðustu viku voru allar sýktar. Enn er þó ekki ljóst hvort um H5N1 stofninn er að ræða. Erlent 9.3.2006 06:30
Kæra rekstur fríhafnarinnar Samtök verslunar og þjónusta hyggjast kæra starfsemi komuverslunarinnar í Leifstöð til Eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingar samtakanna eru að ganga frá kærunni og vonast er til að hægt verði að leggja hana fram í næstu viku. Að sögn Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra samtakanna eru þau orðin langþreytt á ástandinu. Innlent 8.3.2006 22:14
Baráttufundur kvenna á Dubliners Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og af því tilefni efndi Feministafélagið Bríet til baráttufundar á Döbbliners í kvöld. Á fundinum sveif andi fyrri tíma yfir með viðeigandi veggspjöldum og slagorðum. Minnst var upphafs kvennabaráttunnar meðal annars með því að lesa úr ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur frá árinu 1887 og nútímafeministar ræddu um það sem stendur þeim næst. Innlent 8.3.2006 22:18
Ræða ekki mál Jónasar Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hyggst ekki taka mál Jónasar Garðarssonar, formanns félagsins, til umræðu á fundi stjórnarinnar en Jónas er ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna sjóslyss. Jónas er ákærður fyrir brot á hegningarlögum og siglingalögum vegna slyssins sem varð aðfaranótt laugardagsins tíunda september síðastliðinn. Þau Friðrik Ásgeir Hermannsson og Matthildur Harðardóttir létu lífið í slysinu. Innlent 8.3.2006 22:12
Magnus Carlsen efstur Norðmaðurinn Magnus Carlsen er efstur á Reykjavíkurskákmótinu sem stendur. Hann er með þrjá vinninga þegar flestum skákum þriðju umferðar er lokið en Þröstur Þórhallsson sem vann tvær fyrstu skákir sínar situr enn að tafli gegn franska stórmeistaranum Igor-Alexander Nataf. Innlent 8.3.2006 21:47
Mjög hefur dregið úr fasteignasölu Sala á íbúðum í fjölbýli hefur dregist saman um 26 prósent milli ára að því er fram kemur í tölum frá Fasteignamati ríkisins. Á sama tíma hefur sala á einbýlishúsum aukist um fimmtán prósent. Innlent 8.3.2006 21:17
Bakarar mótmæla raforkuverði Bakarameistarar eru afar ósáttir við miklar verðhækkanir á raforku síðan ný orkulög tóku gildi. Fyrri samningi þeirra um lágt raforkuverð að næturlagi var rift og við það hækkaði rafmagnsverð til bakaría um allt að 50 prósent. Innlent 8.3.2006 20:49
Stefnum að hvalveiðum í atvinnuskyni Íslendingar stefna að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Enn á eftir að ákveða hvenær veiðar hefjast sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, á Alþingi í dag. Innlent 8.3.2006 19:07
Valgerður vill evru! Ísland gæti hæglega tekið upp evruna og gengið í myntbandalag Evrópu, án þess að ganga í Evrópusambandið, segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra í pistli á heimasíðu sinni. Óraunhæft, segir Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður Hagfræðistofnunnar Háskóla Íslands. Innlent 8.3.2006 18:37
Þrír færeyskir drengir dóu í bruna Færeyingar eru harmi slegnir eftir að þrír piltar á aldrinum sex til tíu ára létust í eldsvoða í gærkvöldi. Eldsupptök eru ennþá ókunn en danskir sérfræðingar vinna að rannsókn málsins. Erlent 8.3.2006 18:14
Öryggisráðið fjallar um mál Írana Stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar ákvað á fundi sínum í dag að vísa máli Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Erlent 8.3.2006 18:27
Aftökur í Írak Ekkert lát er á ofbeldinu í Írak því að í morgun fundust í Bagdad lík átján manna sem teknir höfðu verið af lífi. Erlent 8.3.2006 18:24
Mótmæltu kvöldfundi um vatnalög Stjórnarandstæðingar mótmæltu því við upphaf þingfundar klukkan sex að haldinn væri kvöldfundur til að fjalla um vatnalög, eitt umdeildasta frumvarpið sem liggur fyrir Alþingi. Innlent 8.3.2006 18:05
Tilkynn um eld á Meistaravöllum Tilkynnt var um eld í íbúð á Meistaravöllum nú rétt eftir klukkan fimm og var allt lið slökkviliðsins sent á staðinn. Reyndist einungis um pott á eldavélahellu að ræða og því var öllum bílunum snúið við nema einum dælubíl sem er enn að störfum við reykræstingu. Innlent 8.3.2006 17:57
Vélstjórar ræða kjarasamning við LÍÚ Forystumenn Vélstjórafélags Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna ræddu nýjan kjarasamning á fundi í dag. Vélstjórar hafa verið samningslausir frá áramótum. Innlent 8.3.2006 17:08
Gíslar teknir í höfuðstöðvum öryggisfyrirtækis Vopnaðir menn í lögreglubúningum höfðu á brott með sér starfsfólk úr höfuðstöðvum öryggisgæslufyrirtækis í Bagdad í dag eftir að hafa ruðst inn í fyrirtækið. Talið er að allt að 50 starfsmenn hafi verið teknir í gíslingu. Erlent 8.3.2006 17:02
Úrvalsvísitalan lækkaði um þrjú prósent Hlutabréf í Kauphöll Íslands tóku dýfu í morgun, einkum bréf bankanna og hefur Úrvalsvísitalan lækkað um yfir þrjú prósent í dag. Innlent 8.3.2006 16:59