Fréttir

Fréttamynd

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir unglingi

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Hérðaðsdóms Reykjavíkur um að unglingsstrákur sæti áfram gæsluvarðhaldi þar til mál hans verður tekið fyrir að nýju fyrir Hæstarétti en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað drenginn í gæsluvarðhald fyrir að hafa svipt ungan manni frelsi, flutt hann nauðugan úr vinnu sinni og haft í hótunum við hann.

Innlent
Fréttamynd

Bílsprengja í París

Maður lét lífið og annar særðist þegar bílsprengja sprakk í úthverfi Parísar í dag. Að sögn franskra fjölmiðla hafði maðurinn komist í kast við lögin og lögreglu grunar að um hafi verið að ræða hefndaraðgerð glæpaflokka.

Erlent
Fréttamynd

Yfirheyrður bak við luktar dyr

Dómarar í réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hafa lokað dómssalnum á meðan einræðisherrann fyrrverandi ber vitni í málinu. Vitnaleiðslur yfir Saddam hófust í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Bónus fær Neytendarverðlaunin í ár

Bónus fékk í dag afhent Neytendaverðlaun Neyendasamtakanna og Bylgjunnar árið 2006. Bónus er fyrirtæki ársins að mati neytenda en verðlaunin voru afhend á Hótel Centrum í dag. Þá fengu Atlantsolía og Iceland Express hvatningarverðaun neytenda.

Innlent
Fréttamynd

Lík Milosevic komið til Serbíu

Lík Slobodans Milosevic er komið heimalands hans, Serbíu. Flogið var með jarðneskar leyfar hans frá Hollandi í gær og flugvél sem flutti þær lenti í Belgrad í dag.

Erlent
Fréttamynd

Umræðum um vatnalög senn að ljúka

Annarri umræðu um vatnalögin á Alþingi var frestað klukkan fjögur í dag en hún hefst aftur klukkan sex. Reikna má með að umræðunni ljúki í kvöld og málinu verði þá vísað til þriðju umræðu.

Innlent
Fréttamynd

Þotur og þyrlur farnar í lok september

Orrustuþotur varnarliðsins og björgunarþyrlur þess verða farnar frá Íslandi í síðasta lagi fyrir lok september. Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt ríkisstjórn Íslands að dregið verði stórlega úr starfsemi bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli síðar á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Hráolíuverð lækkaði

Heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 40 sent á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í dag og endaði í 62,70 dollurum á tunnu. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 26 sent í kauphöllinni í Lundúnum og endaði í 63,71 dal á tunnu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Einn og hálfur milljarður til uppbyggingar fyrir geðfatlaða

Einum og hálfum milljarði króna verður varið á næstu fjórum árum til uppbyggingar í búsetu- og stoðþjónustumálum geðfatlaðra. Þeir sem eru án húsnæðis og umönnunar munu njóta forgangs ásamt þeim sem búa hjá ættingjum og þeim sem eru tilbúnir til útskritfar af geðdeild.

Innlent
Fréttamynd

Jón Ásgeir segir skaðabótamál koma til greina

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sagði á Fréttavaktinni eftir hádegi, að sýknudómur Héraðsdóms í baugsmálinu í dag, sýni að málið allt sé mikill áfellisdómur yfir þeim sem stóðu að því og sóttu. Það væri sorglegt að ríkið þyrfti að standa í þeim mikla kostnaði sem fylgdi því að sækja þetta mál, á sama tíma og ekki væru til peningar til að halda björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar á lofti. Jón Ásgeir sagði einnig að til greina kæmi að fara í skaðabótamál við ríkið vegna málaferlanna.

Innlent
Fréttamynd

Segir flokkinn verða að skoða stöðu sína

Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna harmar og hafnar hugmyndum Kristins H. Gunnarssonar í þá veru að huga að sameiningu Framsóknarflokks og Samfylkingar og líkir hugmyndinni við pólitíska hryðjuverkastarfssemi. Kristinn segir sama mann standa að ályktun um að reka hann úr flokknum og boði sérframboð gegn flokknum á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Tölvuþrjótar herja á Ebay

Vírusvarnarfyrirtækið McAfee varaði í dag við tölvuskeytum þar sem fólki er ýmist sagt að það hafi unnið glaðning á uppboðsvefnum Ebay, þurfi að greiða fyrir vöru á uppboðsvefnum og verði að bregðast við. Í póstinum er hlekkur á falsaða útgáfu af uppboðssíðunni á netinu og þarf fólk að gefa þar upp ýmsar persónuupplýsingar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sýknað í öllum ákæruliðum í Baugsmálinu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað alla sakborninga í Baugsmálinu af öllum ákæruliðum. Dómurinn var kveðinn rétt um klukkan þrjú í dag. Settur saksóknari í málinu segir ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar og heldur ekki ákveðið hvort kært verði á ný í þeim 32 ákæruliðum málsins sem Hæstiréttur hefur vísað frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Methagnaði spáð hjá BMW

Búist er við methagnaði í sögu þýska bílaframleiðandans BMW á þessu ári. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta á síðasta ári nam 3,28 milljörðum evrum, jafnvirði 277 milljarða íslenskra króna, en það er 8,3 prósentum minna en árið á undan.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Dóms að vænta í Baugsmálinu

Dómur verður kveðinn upp í Baugsmálinu klukkan korter í þrjú í dag. NFS mun sýna beint frá héraðsdómi í dag og hefst útsendingin skömmu áður en dómurinn verður kveðinn upp.

Innlent
Fréttamynd

Hagræðing hafin hjá British Airways

Willie Walsh, framkvæmdastjóri breska flugfélagsins British Airways, er byrjaður að sveifla niðurskurðarhnífnum og ætlar að segja upp 400 manns hjá flugfélaginu í hagræðingarskyni. Störfin sem lögð verða niður eru hjá símsvörunarþjónustu fyrirtækisins í Belfast á Írlandi sem tók við bókunum í flug á vegum félagsins. Ástæðan fyrir þessu er sögð sú, að bókunum á netinu hefur fjölgað mikið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Forsetahjón til Hornafjarðar í lok apríl

Forsetahjónin eru væntanleg í opinbera heimsókn til Hornafjarðar í síðustu viku apríl. Frá þessu greinir á Hornafjörður.is. Þar segir að forsetinn hafi óskað eftir að koma þangað í opinbera heimsókn og var þeim óskum vel tekið. Áætlað er að forsetinn og fylgdarlið hans komi með flugvél til Hornafjarðar 27. apríl og fari til baka 28. apríl.

Innlent
Fréttamynd

Segir Morgunblaðið spinna pólitískan lopa á kostnað framsóknarmanna

Morgunblaðið er farið að spinna pólitískan lopa til að reyna að koma að fulltrúa frjálslyndra í borgarstjórn á kostnað framsóknarmanna og tryggja þannig sjálfstæðismönnum öll völd í málefnum Reykvíkinga. Þetta segir Björn Ingi Hrafnsson, oddviti framsóknarmanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor, á heimasíðu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Mesta atvinnuleysi í þrjú ár

Atvinnulausum fjölgaði um 14.600 í Bretlandi á milli mánaða í febrúar en það er mesta fjölgun atvinnulausra frá árinu 1992. Í lok síðasta árs voru 1,53 milljónir manna án atvinnu í Bretlandi en fleiri hafa ekki verið atvinnulausir síðastliðin þrjú ár.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Neytendaverðlaunin veitt í dag

Neytendaverðlaun Bylgjunnar og Neytendasamtakanna fyrir árið 2006 verða veitt í dag klukkan fjögur í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar. Það voru neytendur sjálfir sem völdu fyrirtæki ársins með netkosningu á vegum Bylgjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingum ekki fjölgað meira í um hálfa öld

Íbúum á Íslandi fjölgaði meira í fyrra en mörg undanfarin ár og reyndar hefur þeim ekki fjölgað jafnmikið á einu ári í hátt í hálfa öld. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofan birti í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þungatakmarkanir á öllum hringveginum

Þungatakmarkanir eru nú á öllum hringveginum og ýmsum leiðum út frá honum og eru það óvenju víðtækar takmarkanir af hálfu Vegagerðarinnar. Gripið er til þessa þar sem klaki er að fara úr jörðu og þá verður undirlag veganna veikt.

Innlent
Fréttamynd

Fuglaflensa komin upp í Danmörku

Fuglaflensan er komin upp í Danmörku. Yfirvöld þar í landi tilkynntu í morgun að veira af H5 stofni hefði fundist í dauðum villtum fugli. Ekki er ljóst hvort veiran er af stofninum H5N1, sem getur borist í menn, en boðað hefur verið til blaðamannafundar síðar í dag þar sem frekari upplýsingar verða gefnar.

Erlent
Fréttamynd

Hefur áhyggjur af fjárlagahalla Bandaríkjanna

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur látið í ljósi áhyggjur sínar vegna aukins fjárlagahalla Bandaríkjanna, en búist er við metfjárlagahalla á þessu ári. Bernanke segir að koma verði í veg fyrir viðvarandi fjárlagahalla og benti sérstaklega á að fjölgun ellilífeyrisþega geti orðið birgði á hinu opinbera á næstu árum.

Viðskipti erlent