Fréttir
Umfangsmestu aðgerðir frá innrás Stærstu hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna í Írak, síðan herinn réðst inn í landið árið 2003, hófust í gær. Yfir 50 flugvélar og um 1500 bandarískir hermenn taka þátt í aðgerðunum. Talið er að hermennirnir séu búnir að handtaka um 40 manns. Erlent 17.3.2006 12:56
300 handteknir í óeirðum Til óeirða kom í grennd við Sorbonne-háskólann í miðborg Parísar í gærkvöld. Um þrjú hundruð manns voru handteknir þegar námsmenn mótmæltu nýjum atvinnulögum ríkisstjórnarinnar. Erlent 17.3.2006 12:52
Samt hægt að tengjast evrunni Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, telur hægt að tengjast evrunni og grípur til varna fyrir Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra. Innlent 17.3.2006 12:30
Actavis býður í króatískt samheitalyfjafyrirtæki Actavis Group hefur gert óformlegt tilboð í króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Markaðsvirði félagsins er um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna. Viðskipti innlent 17.3.2006 12:35
Stofnandi Opera í Noregi látinn Geir Ivarsøy sem stofnaði Opera Software með Jóni S. von Tetzchner í Noregi árið 1995 lést fyrir um viku síðan eftir langvinna baráttu við krabbamein. Á vef Opera Software í dag er hans minnst, en Geir verður borinn til grafar í dag frá Grefsen kirkju í Osló. Viðskipti erlent 17.3.2006 12:34
Tveggja krónu afsláttur af eldsneyti Atlantsolía og FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, undirrita í dag samning um afslátt af eldsneyti og veitir samningurinn félögum FÍB tveggja krónu afslátt af eldsneyti. Með samningnum skuldbindur Atlantsolía sig til að veita engum öðrum en félögum FÍB jafnmikinn afslátt. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá FÍB þá mun afslátturinn gera það að verkum að félagsmenn geta sparað samanlagt um 80 milljónir króna í eldsneytiskaupum. Athygli vekur að samningurinn er undirritaður nú en í gær hækkuðu stóru olíufélögin bensínverðið hjá sér. Innlent 17.3.2006 12:28
Actavis býður í PLIVA Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA, óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Viðskipti innlent 17.3.2006 11:46
Skoða greiningar með gagnrýnisaugum Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa stigið hægt upp á við í vikunni eftir að hafa fallið um nær 4% á mánudaginn var. Forstjóri Glitnis segir mikilvægt að fjölmiðlar skoði þær greiningar sem fram koma á fjármálamarkaðnum með gagngrýnisaugum. Innlent 17.3.2006 11:09
Nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í gær. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. Innlent 17.3.2006 11:05
Útilokað að taka upp evru án aðildar að ESB Richard Wright, umsjónarmaður samskipta Evrópusambandsins við Ísland, segir útilokað að taka upp evruna án þess að ganga í Evrópusambandið. Hann segir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið virka vel og að hann geti enst eins lengi og aðildarríkin telji hann fullnægjandi. Innlent 17.3.2006 10:50
Stóru olíufélögin hækka bensínverð Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um þremur krónum ódýrari. Innlent 17.3.2006 11:00
Óttast um að maður hafi sýkst af fuglaflensu Óttast er að maður hafi sýkst af fuglaflensu í Ísrael en í morgun var staðfest að hið hættulega H5N1 afbrigði flensunnar hefði greinst þar í landi. Erlent 17.3.2006 10:29
Fatah ekki með Fatah-samtök Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, hafa ákveðið að taka ekki þátt í myndun ríkisstjórnar með Hamas-liðum, sem unnu meirihluta á þingi heimastjórnar Palestínumanna í kosningum í janúar. Þetta er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni innan Fatah. Erlent 17.3.2006 09:55
Fuglaflensa í Ísrael Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í kalkúnahræjum sem fundust á dögunum í Suður-Ísrael. Talsmaður ísraelska landbúnaðarráðuneytisins staðfesti þetta í morgun. Erlent 17.3.2006 09:38
FTSE yfir 6000 stig FTSE, enska hlutabréfavísitalan fór yfir 6000 stig þegar Kauphöllin í Lundúnum opnaði í morgun. Það er í fyrsta sinn í 5 ár. Erlent 17.3.2006 09:03
Samræmd vísitala neysluverðs 100,8 stig Samræmd vísitala neysluverð í EES-ríkjunum var 100,9 stig í febrúar og hækkaði um 0,3 prósent frá fyrri mánuði. Vísitalan fyrir Ísland var 100,8 stig og lækkaði hún um 0,2 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu var mest í Lettlandi. Viðskipti innlent 17.3.2006 09:32
Málverk eftir Van Gogh endurheimt Lögreglan í Hollandi hefur endurheimt málverk eftir Van Gogh, eitt það síðasta sem hann málaði í Hollandi, en því var stolið fyrir sjö árum. Verkið, sem er óskemmt, var málað árið 1885 og er nú í eigu Van Lanschot-bankans þar í landi. Tveir menn 25 og 33 ára hafa verið handteknir vegna málsins en rannsókn þess stendur þó enn yfir. Erlent 17.3.2006 07:52
Reyndu að stinga lögreglu af Tveir karlmenn á ósksráðum fjórhjólum reyndu í gærkvöldi að stinga lögregluna af þegar hún sá til þeirra suður í Sandgerði. Annar hvarf á fullri ferð út í náttmyrkrið en hinn náði ekki fullu valdi á hjólinu eftir að hafa farið í loftköstum yfir hraðahindrun, og náði lögreglan að króa hann af. Grunur leikur á hver hinn er, og verður rætt við hann í dag. Innlent 17.3.2006 07:44
Bjóða Hamasmönnum til Strassborgar Evrópuráðið hefur boðið palenstínskum þingmönnum úr röðum Hamas-samtakanna til Strassborgar í þeirri von að koma megi á viðræðum þeirra og ísraelskra þingmanna. Ísraelska utanríkisráðuneytið fordæmir hugmyndir um að bjóða Hamas á fund Evrópuráðsins þar sem þeir segja Hamas ekkert annað en hryðjuverkasamtök. Hamas sigruðu hins vegar í þingkosningum Palestínumanna fyrir skömmu og munu því fá að mynda næstu heimastjórn. Erlent 17.3.2006 07:39
Sýktur ránfugl finnst í Danmörku Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að fuglaflensuveira af gerðinni H5N1 hafi verið greind í dauðum ránfugli, sem fannst sunnan við Kaupmannahöfn fyrr í vikunni. H5N1 er hættulegasta afbrigði fuglaflensuveirunnar og hafa yfirvöld þar í landi lofað að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir útbreiðslu. Danmörk er 21. Evrópulandið þar sem fuglaflensa greinist. Erlent 17.3.2006 07:30
Íransstjórn ræðir málefni Íraks Íranstjórn hefur fallist á beiðni Bandaríkjastjórnar um viðræður um ástand mála í Írak. Yfirmaður Þjóðaröryggisráðs Írans, segir að tilboði um viðræður hafi verið tekið eftir að Aziz al-Hakim, leiðtogi shita í Írak, skoraði á Íranstjórn að hefja viðræður við stjórnvöld í Washington á ný. Engin dagsetning er komin en viðræðunefnd verður skipuð á næstunni. Bréf Bandaríkjamanna hefur verið birt í fjölmiðlum í Íran þar sem fram kemur að menn hafi áhyggjur af meintum tengslum Írana við herskáa hópa í Írak. Erlent 17.3.2006 07:33
Hækka verð á bensíni Stóru olíufélögin og flest dótturfélaga þeirra hækkuðu bensínverð í gær og er algengt verð á sjálfsafgreiðslustöðvum tæpar 115 krónur. Orkan og Atlantsolía hækkuðu ekki og er lítrinn þar um það bil þremur krónum ódýrari. Hækkunin er meðal annars rakin til þess að krónan hefur lækkað og dollarinn hækkað á móti, en olíuvörur eru keyptar í dollurum. Innlent 17.3.2006 07:29
Reyndu að smygla inn kjöti, tóbaki og áfengi Smygl fannst um borð í Dettifossi í Grundartangahöfn í fyrrinótt og hafa nokkrir skipverjar viðurkennt að hafa átt það. Þeir ætluðu að smygla áfengi, munntóbaki og nautakjöti. Þetta er í annað skiptið á fjórum mánuðum sem smygl finnst í Dettifossi í Grundartangahöfn og fyrir nokkrum dögum fannst töluvert af áfengi og sígarettum í öðru flutningaskipi þar. Innlent 17.3.2006 07:26
Aðgerðir gegn andspyrnumönnum í Írak Bandaríkjaher hóf í gær umfangsmestu hernaðaraðgerðir í Írak frá því ráðist var inn í landið árið 2003. Yfir fimmtán hundruð bandarískir hermenn taka þátt í aðgerðunum sem beinast að meintum andspyrnu- og hryðjuverkamönnum nálægt borginni Samarra, um 80 km norður af Bagdad höfuðborg landsins. Talið er að aðgerðirnar muni standa yfir í nokkra daga samkvæmt bandarískum yfirvöldum. Erlent 17.3.2006 07:23
Aurbleyta á malarvegum Aurbleyta er nú sumstaðar orðin á malarvegum vegna hlýinda og þungatakmaraknir eru víðasthvar á hringveginum og ýmsum útvegum. Í hlákunni í gær hrundi smávegis af grjóti niður á Óshlíðarveginn til Bolungarvíkur en olli ekki tjóni og snjóflóð lokaði veginum yfir Dynjandisheiði í gærmorgun, en það er líka rakið til hlýindanna. Innlent 17.3.2006 07:55
Miklar óeirðir í París Til óeirða kom í miðborg Parísar í gærkvöld. Nokkur hundruð námsmenn köstuðu steinum, flöskum og stólum af nærliggjandi kaffihúsum að lögreglu sem svaraði með því að dreifa táragasi á æstan lýðinn. Þá handtók lögreglan um eitt hundrað og fimmtíu manns. Mótmælin, sem staðið hafa undanfarna daga, beinast gegn nýjum lögum ríkisstjórnarinnar sem fjalla um starfssamninga fólks undir 26 ára aldri Erlent 17.3.2006 07:20
Lögðu hald á 4 kíló af hassi Fimm manns voru úrskurðaðir í gærluvarðhald í gærkvöldi eftir víðtæka og sameiginlega aðgerð lögreglunnar í Kópavogi, Hafnarfirði, fíkniefnalögreglunnar í Reykjavík, tollgæslunnar og sérsveitar Ríkislögregustjóra, á höfuðborgarsvæðinu í gær. Gerð var húsleit í fjórum íbúðum og tveimur iðnaðarhúsum vegna gruns um stórfellt fíkniefnamisferli og var lagt hald á rösklega fjögur kíló af hassi og hátt í hálft kíló af anfetamíni. Alls voru tólf handteknir en sjö voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Innlent 17.3.2006 07:15
Vantar upp á umfjöllun fjölmiðla um fjármálaheiminn Hlutabréf í Kauphöll Íslands hafa stigið hægt upp á við í vikunni eftir að hafa fallið um nær fjögur prósent á mánudaginn var. Forstjóri Glitnis segir mikilvægt að fjölmiðlar skoði þær greiningar sem fram koma á fjármálamarkaðnum með gagngrýnisaugum. Innlent 17.3.2006 00:23
Norræn samkeppni í stað samvinnu Norræn samvinna vék fyrir norrænni samkeppni í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld þar sem Magnus Carlsen tryggði sér sigur á Glitnismótinu í hraðskák. Norska undrabarnið lagði Hannes Hlífar Stefánsson í úrslitum. Innlent 16.3.2006 23:35
Stórsýning byggingariðnaðar í sýningarhöll Helstu nýjungar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og kynning á skipulagsmálum sveitarfélaga er meðal þess sem sjá má á sýningunni Verk og vit 2006 sem opnuð var í nýju sýningarhöllinni í dag. Sýningin er sú stærsta sinnar tegundar sem haldin hefur verið hér á landi. Innlent 16.3.2006 23:31
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent