Fréttir
Jarðskjálftar á Reykjanesi Tveir snarpir jarpðskjálftar urðu á Reykjanesi í nótt. Annar klukkan rúmlega þrjú aust-norð-austur af Reykjanestá upp á þrjá komma tvo á Richter og hinn klukkan hálf fimm norðaustur af Grindavík upp á þrjá komma einn á Richter. Innlent 10.7.2006 07:55
Miklar umferðartafir inn í höfuðborgina Óvenju miklar umferðartafir urðu bæði á Vesturlandsvegi og Suðrulandsvegi undir kvöld i gær þegar tugir þúsunda ökumanna reyndu í einu að komast til höfuðborgarinnar fyrir úrslitaleikinn í knattspyrnu. Innlent 10.7.2006 07:18
Flugslys í Síberíu Talið er að hemlunarbúnaður hafi bilað þegar flugmenn Airbus A-310 farþegaflugvélar misstu stjórn á vélinni við lendingu í Irkutsk í Síberíu í fyrrinótt. Erlent 10.7.2006 07:28
Velta á Þorlákshafnarvegi Fólksbíll valt á Þorlákshafnarvegi skammt frá hringtorginu við Hveragerði skömmu eftir leikslok í heimsmeistarakeppninni. Ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp lítið meidur, en reyndist ver töluvert ölvaður eftir teiti vegna úrslitaleiksins Innlent 10.7.2006 07:26
Ítalir heimsmeistarar í knattspyrnu Ítalir urðu í gær heimsmeistarar í knattspyrnu í fjórða sinn eftir að hafa lagt Frakka að velli. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni að lokinni framlengingu. Erlent 10.7.2006 07:08
Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik HM í kvöld. Zinedine Zidane kom Frökkum yfir með marki úr vítaspyrnu í upphafi leiksins, en Marco Materazzi jafnaði metin fyrir ítalska liðið skömmu síðar. Liðunum tókst svo ekki að skora í venjulegum leiktíma eða í framlengingu, en taugar Ítala héldu betur í vítakeppninni. Aðeins framherjinn David Trezeguet misnotaði spyrnu sína þegar skot hans hafnaði í slá og Ítalir því heimsmeistarar 2006. Erlent 9.7.2006 20:40
Vilja draga menn til ábyrgðar Avion fyrirtækið viðurkennir að ekki hafi verið fylgt góðum reikningsskilavenjum við bókfærslu á reikningi dótturfyrirtækis þess upp á milljarð króna síðasta sumar. Í yfirýsingu frá Avion segir að stjórnendur dótturfyrirtækisins verði dregnir til ábyrgðar. Innlent 9.7.2006 18:39
Ók ölvaður og án ökuleyfis Lögreglan á Borgarnesi stöðvaði sextán manns fyrir of hraðann akstur um helgina. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur, í öðru tilvikinu ungur piltur sem var að koma frá írskum dögum á Akranesi. Drengurinn var bæði ölvaður og ók án ökuleyfis eftir að hafa verið sviptur fyrir umferðarlagabrot nokkru áður. Innlent 9.7.2006 15:34
Hafna vopnahléi Allt virðist á leiðinni í sama farið á Gaza, eftir að Ísraelsmenn höfnuðu í gær tilboði um vopnahlé frá forsætisráðherra Palestínu. Framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna krefst þess að Ísraelsmenn leyfi hjálparstarfsmönnum að vinna óhindrað á svæðinu. Erlent 9.7.2006 12:08
Hagvöxtur eykst Heimsmeistaramótið í fótbolta eykur hagvöxt í Þýskalandi um núll komma þrjú prósent og tuttugu og fimm þúsund ný störf lifa áfram eftir að keppninni lýkur. Fjöldi áhorfenda er þegar mættur á Olympíuleikvanginn í Berlín, þar sem úrslitaleikurinn fer fram í kvöld. Erlent 9.7.2006 12:02
Ölvun á Goslokahátíð Goslokahátíðin í Vestmannaeyjum fór fram í nótt. Að sögn Lögreglunnar í Vestmannaeyjum sóttu um 2000 manns hátíðina, flestir gamlir Vestmannaeyingar. Talsvert hafi borið á ölvun en engin stórmál komið upp og fangageymslur verið tómar. Innlent 9.7.2006 09:56
Fyllerí á Akranesi Lögreglan á Akranesi segir að ástandið í bænum hafi ekki skánað í nótt. Allt tiltækt lögreglulið stóð vaktina vegna mikillra ólæta nóttina áður. Unglingafyllerí hefur sett svip sinn á hátíðina Írskir dagar sem lýkur í dag. Innlent 9.7.2006 09:29
145 létust í flugslysi í Rússlandi í morgun 145 manns fórust og 55 slösuðust þegar rússnesk Airbus A-310 farþegaflugvél fórst á flugvellinum í Irkutsk í Síberíu í nótt. Vélin rann yfir flugbrautina, skall utan í steinvegg og hafnaði loks á húsi þar sem hún brotnaði. Vélin varð alelda á skömmum tíma en um 50 manns tókst þó að forða sér úr brennanndi flakinu. Erlent 9.7.2006 08:42
Schweinsteiger stal senunni í sigri Þjóðverja Gestgjafarnir Þjóðverjar kórónuðu frábært heimsmeistaramót með því að tryggja sér þriðja sætið í dag þegar þeir lögðu Portúgala að velli 3-1 í Stuttgart í dag. Bastian Schweinsteiger hlaut uppreisn æru þegar hann skoraði tvö af mörkum þýska liðsins og var maðurinn á bak við það þriðja. Nuno Gomez minnkaði muninn fyrir Portúgala skömmu fyrir leikslok, eftir sendingu frá Luis Figo sem var að spila sinn síðasta leik fyrir landsliðið. Fótbolti 8.7.2006 20:34
Slasaðist í rallý Ökumaður í rallaksturskeppni í Skagafirði slasaðist í dag þegar hann ók út af sérleið. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, og er hugsanlega hryggbrotinn. Tuttugu mínútum eftir slysið slasaðist annar rallökumaður þegar bíll hans flaug yfir hæð og lenti harkalega á veginum. Innlent 8.7.2006 18:56
Boðar bjarta framtíð Stefán Eiríksson nýskipaður lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins boðar betri löggæslu með sameiningu embætta. Innlent 8.7.2006 18:53
Skipulögð glæpastarfsemi Sprenging hefur orðið í innflutningi á amfetamíní ef marka má tölur um magnið sem yfirvöld hafa lagt hald á undanfarið. Frá áramótum hefur lögregla og tollgæsla tekið 60 kíló af amfetamíni í nokkrum stórum málum - en til samanburðar fundust 16 kíló allt árið í fyrra. Löggæsluyfirvöld telja engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi. Innlent 8.7.2006 18:47
Sex ára stúlka lætur lífið í loftárás Sex ára palestínsk stúlka lést í loftárás Ísraelshers nú undir kvöld. Það glittir þó í ljós í myrkrinu á Gasa-svæðinu, eftir að Ísraelsher dró liðsafla sinn á norðurhluta Gasa til baka í morgun. Erlent 8.7.2006 17:41
Ódýr leiga Stefán Kjærnested, eigandi 80 fermetra íbúðar, sem sjö pólskir starfsmenn Atlantsskipa greiddu 245 þúsund króna mánaðarleigu fyrir, segir það ódýra leigu. Innlent 8.7.2006 18:37
Sjötug mamma Sextíu og tveggja ára kona varð í vikunni sú elsta til að eignast barn í sögu Bretlands. Konan hefur verið gagnrýnd harkalega í Bretlandi fyrir að ákveða að eignast barn á sjötugsaldri. Erlent 8.7.2006 17:29
Slagsmál á Írskum dögum Ólæti, ofbeldi og ölvun setti svip sinn á Írska daga á Akranesi í gærnótt. Fjöldi unglinga eru í bænum og ætlar lögreglan að herða eftirlit fyrir kvöldið. Innlent 8.7.2006 13:22
Kallar eftir friði Forsætisráðherra Palestínu kallaði í morgun eftir friði á Gaza svæðinu. Þá hefur Ísraelsher dregið liðsafla sinn á norðurhluta Gaza til baka yfir landamæri Ísraels. Svæðið hefur gjörsamlega logað í óeirðum undanfarna daga og enn sauð uppúr í morgun. Erlent 8.7.2006 12:21
Skemmdarverk í miðbænum Þrír menn gengu berserksgang á Skólavörðustíg í nótt og brutu rúður í átta bílum. Eigandi eins bílsins segir ófremdarástand ríkja í bænum um helgar og vill fá eftirlitsmyndavélar í götuna. Innlent 8.7.2006 12:18
Enginn viðræðufundur í varnarmálum á morgun Viðræðunefndir Bandaríkjamanna og Íslendinga um varnarmálin hafa setið á fundi í allan dag. Fundinum lauk á sjöunda tímanum í kvöld. Enginn fundur verður á morgun eins jafnvel stóð til. Innlent 7.7.2006 18:57
Avion sagt hafa hagrætt bókhaldi Dótturfyrirtæki Avion í Bretlandi, Excel Airways, er sakað um að hafa hagrætt bókhaldi sínu á síðasta ári þannig að milliuppgjör sýndi milljarði króna betri stöðu en raunin var. Milliuppgjörið var lagt til grundvallar í hlutafjárútboði Avion undir lok síðasta árs. Avion hefur nú leiðrétt ársuppgjör dótturfyrirtækisins. Innlent 7.7.2006 18:52
Tilboð í flugleiðir innanlands opnuð Tilboð í ríkisstyrkt áætlunarflug voru opnuð í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboð í tvær flugleiðanna, Sauðárkrók og Hornafjörð. Flugfélagið Ernir átti lægsta tilboð í flug á Bíldudal og Gjögur og Flugfélag Íslands átti lægsta tilboð í Norðursvæði, það er Vopnafjörð, Þórshöfn og Grímsey. Innlent 7.7.2006 18:04
Vilja endurráðningu án skilyrða Læknafélag Íslands býður Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi, að leggja sitt að mörkum við að semja um starfsskyldur tveggja lækna sem sagt hefur verið upp störfum, ef spítalinn endurræður þá án skilyrða. Innlent 7.7.2006 17:59
Fá ekki greiðslur frá tryggingarfélögum Foreldrar barna sem greinast með langvinna sjúkdóma fá ekki greiddar greiðslur frá tryggingarfélögum ef börnin greinast fyrir þriggja mánaða aldur. Margrét Össurardóttir móðir, tíu mánaða langveikrar stúlku fær engar launagreiðslur í veikindum barnsins vegna þess að það greindist með sjúkdóms sinni tveimur mánuðum áður en nýtt frumvarp um launagreiðslur foreldrar í veikindum barna tók gildi. Innlent 7.7.2006 17:53
Komu í veg fyrir hryðjuverk Bandaríska Alríkislögreglan, FBI, tilkynnti í dag að starfsmönnum þeirra hefið tekist að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir á samgöngukerfi New York borgar. Hópur erlendra hryðjuverkamanna hafði unnið að skipulagningu hryðjuverkanna um nokkurt skeið. Erlent 7.7.2006 17:52
Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis. Innlent 7.7.2006 16:57