Fréttir Lítið eftirlit á gamla lagersvæði Olís Lítið sem ekkert eftirlit er á gamla lagersvæði Olís við Köllunarklettsveg. Undafarnar tvær vikur hafa spilliefni verið geymd þar á planinu vegna flutninga lagersins. Verið er að rýma gamla lagerinn en til stendur að afhenda Faxaflóahöfnum lóðina innan skamms. Innlent 10.7.2006 17:09 Vextir af íbúðalánum hækka Mánaðarleg afborgun af þriggja herbergja íbúð í Reykjavík var meira en helmingi hærri í maí síðastliðnum en fyrir tæpum tveimur árum. Þar ræður almenn hækkun fasteignaverðs mestu. Vextir á íbúðalánum hafa farið hækkandi að undanförnu og eru nú lægstir 4,95 prósent. Þegar samkeppni bankanna á fasteignamarkaðnum hófst hins vegar fyrir tæpum tveimur árum voru vextirnir lægstir 4,15 prósent. Innlent 10.7.2006 17:02 7.5 milljónir til Austur-Tímor Utanríkisráðherra veitir 7.5 milljónum króna til stuðnings við hjálparstarf Matvælaáætlunar Sameinuðu Þjóðanna á Austur-Tímor. Ástandið í landinu hefur versnað vegna vaxandi ólgu undanfarnar vikur og hafa tugir þúsunda manna þurft að yfirgefa heimili sín. Einnig verður 6,2 milljónum króna veitt til stuðnings hjálparstarfs Rauða hálfmánans í Palestínu. Innlent 10.7.2006 16:46 Vöruskiptajöfnuður hagstæður í Kína Viðskipti erlent 10.7.2006 16:26 Góðu fólki og 365 fjölmiðlum stefnt Ríkisútvarpið og auglýsingahönnuður hafa stefnt 365 fjölmiðlum og auglýsingastofunni Góðu fólki fyrir héraðsdóm, fyrir meinta ólöglega notkun á auglýsingu sem hönnuð var fyrir Ríkisútvarpið inni í auglýsingu 365 fjölmiðla. Innlent 10.7.2006 15:41 Ölvaður og réttindalaus ökumaður Aðfaranótt sunnudags var tilkynnt um ölvaðan og réttindalausan ökumann á ferð um Suðureyri, hafði hann þá skömmu áður ekið á aðra bifreið. Ökumaðurinn reyndist réttindalaus í ofanálag en hann er ekki enn kominn á bílprófsaldurinn. Innlent 10.7.2006 15:25 Norræn menningarhátíð heyrnalausra Norræn menningarhátíð heyrnalausra verður sett í Ketilhúsinu á Akureyri í dag kl. 17:00. Menningarhátíð heyrnarlausra er hápunktur norræns samstarfs heyrnarlausra sem hefur staðið á allt frá árinu 1907. Innlent 10.7.2006 15:03 Ræningjans enn leitað Lögreglan í Reykjavík leitar enn að karlmanni, sem rændi verslunina Þingholt við Grundarstíg í gærkvöldi og komst undan. Innlent 10.7.2006 13:21 Jarðborun við Kárahnjúka Ekkert má nú út af bera við borun jarðganga við Kárahnjúka, svo ekki verði tafir á afhendingu raforku til álversins í Reyðarfirði á næsta ári. Innlent 10.7.2006 13:25 Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. Fótbolti 10.7.2006 13:44 Hús hrynur til grunna á Manhattan Hús hrundi til grunna á Manhattan-eyju í New York nú fyrir skemmstu. Lögregla segir líklegast að sprenging sé orsökin en vill þó ekki staðfesta það. Erlent 10.7.2006 13:38 Basajeff ráðinn af dögum Rússneskar hersveitir réðu Shamil Basajeff, leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna, af dögum í morgun. Erlent 10.7.2006 13:32 Skjálftar á Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesi í nótt og mældust sterkustu skjálftarnir 2,5 og 2,7 á Richter. Síðan hafa orðið margir minni eftirskálftar á bilinu einn til einn og hálfur á Richter. Innlent 10.7.2006 13:18 Mikill áhugi á bréfum Standard Life Viðskipti erlent 10.7.2006 13:07 Fjórir menn slösuðust á Íslandsmótinu í ralli Forseti Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna segir öllum öryggisreglum hafa verið framfylgt í Íslandsmótinu í ralli um helgina þar sem fjórir menn slösuðust. Innlent 10.7.2006 13:04 Ársfundur ÖSE-þingsins Ársfundur ÖSE-þingsins var haldinn í Brussel 3.-7. júlí og var yfirskrift fundarins styrking mannöryggis. Innlent 10.7.2006 12:00 Lögræðingar Husseins krefjast fullnægjandi verndar Lögfræðingar Saddams Hussein lýstur því yfir við réttarhöldin yfir honum í morgun að þeir myndu sniðganga dómhaldið þar til kröfum þeirra um vernd yrði fullnægt. Erlent 10.7.2006 11:27 Enginn talinn hafa lifað af Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af. Erlent 10.7.2006 11:19 Ísraelski hermaðurinn enn í haldi Leiðtogi Hamas, Khaled Mashaal, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í Damaskus í Sýrlandi í morgun að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði ekki látinn laus nema að Ísraelar létu sjálfir palestínska fanga úr haldi. Erlent 10.7.2006 11:12 Minnst 124 létust í flugslysinu í Síberíu Flaggað er í hálfa stöng um allt Rússland í dag og viðburðir hafa verið felldir niður til að minnast þeirra sem létust í flugslysinu í Síberíu í fyrrinótt. Erlent 10.7.2006 10:39 Forsetahjónin boðin í Hvíta húsið í kvöld George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Laura Bush forsetafrú hafa boðið íslensku forsetahjónunum til kvöldverðar í Hvíta húsinu í kvöld. Kvöldverðurinn er til heiðurs Special Olympics, íþróttastarfi í þágu fatlaðra. Heiðursgestur kvöldsins verður Eunice Kennedy Shriver, upphafskona Special Olympics og systir John F. Kennedy heitins, en hún varð 85 ára í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief forsetafrú flugu til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Á meðan á heimsókn þeirra í Washington stendur mun Ólafur Ragnar eiga fundi með ýmsum áhrifa- og forystumönnum Special Olympics og þingmönnum á bandaríska þinginu. Innlent 10.7.2006 09:37 Stjórn Sálfræðingafélags Íslands í mál við Samkeppniseftirlitið Stjórn Sálfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að fara í mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá í janúar síðastliðnum. Innlent 10.7.2006 10:09 Allir hálendisvegir opnir Allir hálendisvegir hafa nú verið opnaðir og góð færð er um allt land. Víðast hvar eru þó vegaframkvæmdir í gangi og er mikilvægt að ökumenn taki tillit til þeirra og virði hraðatakmarkanir. Innlent 10.7.2006 09:17 Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum og í síðustu viku var aðeins hundrað tuttugu og einum kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu sem er 27 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Innlent 10.7.2006 08:28 Réttað yfir Saddam Hussein á ný Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust aftur í morgun. Þetta er lokahluti réttarhaldanna yfir Saddam Hussein og sex öðrum. Erlent 10.7.2006 08:58 Fimm særðust í loftárásum Ísraelsmanna í nótt Fimm særðust, þeirra á meðal átta ára stúlka, í loftárásum Ísraelsmanna nærri Gaza borg í nótt. Ísraelski herinn segir að loftárásin hafi verið gerð á bíl sem fluttihermenn Hamas-samtakanna. Erlent 10.7.2006 07:58 Avion dregur Exel til ábyrgðar Stjórnendur Avion Group ætla að draga stjórnendur dótturfélagsins Exel til ábyrgðar fyrir að hafa ekki fylgt góðum reikningsskilavenjum þegar stjórnendur Exel sömdu um þjónustu við Alpha Airports síðastliðið sumar. Innlent 10.7.2006 08:15 Rán í Þingholtunum Karlmaður, sem talinn er vera á þrítugsaldri, rændi verslun í Þingholtunum í gærkvöldi og komst undan. Agreiðslukona var ein í versluninni þegar ræningjann bar að garði, enda stóð úrslitaleikur heimsmesitarakeppninnar í knattspyrnu sem hæst. Innlent 10.7.2006 08:12 Flugvél ferst í Pakistan Flugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. Nýjustu fregnir herma að allir hafi farist. Ekki er vitað hvað olli slysinu og ekki liggur fyrir hvar slysið varð nákvæmlega eða hvernig vél fórst. Erlent 10.7.2006 08:09 Röð bílasprengjuárása í Bagdad Tólf biðu bana og 62 særðust í tveimur bílprengjuárásum í Austur-Bagdad í morgun. Þá létust sautján í tveimur slíkum árásum í höfuðborginni í gær, rétt hjá moskum sjía. Erlent 10.7.2006 07:51 « ‹ ›
Lítið eftirlit á gamla lagersvæði Olís Lítið sem ekkert eftirlit er á gamla lagersvæði Olís við Köllunarklettsveg. Undafarnar tvær vikur hafa spilliefni verið geymd þar á planinu vegna flutninga lagersins. Verið er að rýma gamla lagerinn en til stendur að afhenda Faxaflóahöfnum lóðina innan skamms. Innlent 10.7.2006 17:09
Vextir af íbúðalánum hækka Mánaðarleg afborgun af þriggja herbergja íbúð í Reykjavík var meira en helmingi hærri í maí síðastliðnum en fyrir tæpum tveimur árum. Þar ræður almenn hækkun fasteignaverðs mestu. Vextir á íbúðalánum hafa farið hækkandi að undanförnu og eru nú lægstir 4,95 prósent. Þegar samkeppni bankanna á fasteignamarkaðnum hófst hins vegar fyrir tæpum tveimur árum voru vextirnir lægstir 4,15 prósent. Innlent 10.7.2006 17:02
7.5 milljónir til Austur-Tímor Utanríkisráðherra veitir 7.5 milljónum króna til stuðnings við hjálparstarf Matvælaáætlunar Sameinuðu Þjóðanna á Austur-Tímor. Ástandið í landinu hefur versnað vegna vaxandi ólgu undanfarnar vikur og hafa tugir þúsunda manna þurft að yfirgefa heimili sín. Einnig verður 6,2 milljónum króna veitt til stuðnings hjálparstarfs Rauða hálfmánans í Palestínu. Innlent 10.7.2006 16:46
Góðu fólki og 365 fjölmiðlum stefnt Ríkisútvarpið og auglýsingahönnuður hafa stefnt 365 fjölmiðlum og auglýsingastofunni Góðu fólki fyrir héraðsdóm, fyrir meinta ólöglega notkun á auglýsingu sem hönnuð var fyrir Ríkisútvarpið inni í auglýsingu 365 fjölmiðla. Innlent 10.7.2006 15:41
Ölvaður og réttindalaus ökumaður Aðfaranótt sunnudags var tilkynnt um ölvaðan og réttindalausan ökumann á ferð um Suðureyri, hafði hann þá skömmu áður ekið á aðra bifreið. Ökumaðurinn reyndist réttindalaus í ofanálag en hann er ekki enn kominn á bílprófsaldurinn. Innlent 10.7.2006 15:25
Norræn menningarhátíð heyrnalausra Norræn menningarhátíð heyrnalausra verður sett í Ketilhúsinu á Akureyri í dag kl. 17:00. Menningarhátíð heyrnarlausra er hápunktur norræns samstarfs heyrnarlausra sem hefur staðið á allt frá árinu 1907. Innlent 10.7.2006 15:03
Ræningjans enn leitað Lögreglan í Reykjavík leitar enn að karlmanni, sem rændi verslunina Þingholt við Grundarstíg í gærkvöldi og komst undan. Innlent 10.7.2006 13:21
Jarðborun við Kárahnjúka Ekkert má nú út af bera við borun jarðganga við Kárahnjúka, svo ekki verði tafir á afhendingu raforku til álversins í Reyðarfirði á næsta ári. Innlent 10.7.2006 13:25
Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. Fótbolti 10.7.2006 13:44
Hús hrynur til grunna á Manhattan Hús hrundi til grunna á Manhattan-eyju í New York nú fyrir skemmstu. Lögregla segir líklegast að sprenging sé orsökin en vill þó ekki staðfesta það. Erlent 10.7.2006 13:38
Basajeff ráðinn af dögum Rússneskar hersveitir réðu Shamil Basajeff, leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna, af dögum í morgun. Erlent 10.7.2006 13:32
Skjálftar á Reykjanesi Jarðskjálftahrina hófst á Reykjanesi í nótt og mældust sterkustu skjálftarnir 2,5 og 2,7 á Richter. Síðan hafa orðið margir minni eftirskálftar á bilinu einn til einn og hálfur á Richter. Innlent 10.7.2006 13:18
Fjórir menn slösuðust á Íslandsmótinu í ralli Forseti Landssambands íslenskra akstursíþróttamanna segir öllum öryggisreglum hafa verið framfylgt í Íslandsmótinu í ralli um helgina þar sem fjórir menn slösuðust. Innlent 10.7.2006 13:04
Ársfundur ÖSE-þingsins Ársfundur ÖSE-þingsins var haldinn í Brussel 3.-7. júlí og var yfirskrift fundarins styrking mannöryggis. Innlent 10.7.2006 12:00
Lögræðingar Husseins krefjast fullnægjandi verndar Lögfræðingar Saddams Hussein lýstur því yfir við réttarhöldin yfir honum í morgun að þeir myndu sniðganga dómhaldið þar til kröfum þeirra um vernd yrði fullnægt. Erlent 10.7.2006 11:27
Enginn talinn hafa lifað af Farþegaflugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. 41 farþegi og fjögurra manna áhöfn eru talin af. Erlent 10.7.2006 11:19
Ísraelski hermaðurinn enn í haldi Leiðtogi Hamas, Khaled Mashaal, sagði á blaðamannafundi sem hann hélt í Damaskus í Sýrlandi í morgun að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit yrði ekki látinn laus nema að Ísraelar létu sjálfir palestínska fanga úr haldi. Erlent 10.7.2006 11:12
Minnst 124 létust í flugslysinu í Síberíu Flaggað er í hálfa stöng um allt Rússland í dag og viðburðir hafa verið felldir niður til að minnast þeirra sem létust í flugslysinu í Síberíu í fyrrinótt. Erlent 10.7.2006 10:39
Forsetahjónin boðin í Hvíta húsið í kvöld George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Laura Bush forsetafrú hafa boðið íslensku forsetahjónunum til kvöldverðar í Hvíta húsinu í kvöld. Kvöldverðurinn er til heiðurs Special Olympics, íþróttastarfi í þágu fatlaðra. Heiðursgestur kvöldsins verður Eunice Kennedy Shriver, upphafskona Special Olympics og systir John F. Kennedy heitins, en hún varð 85 ára í dag. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaief forsetafrú flugu til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Á meðan á heimsókn þeirra í Washington stendur mun Ólafur Ragnar eiga fundi með ýmsum áhrifa- og forystumönnum Special Olympics og þingmönnum á bandaríska þinginu. Innlent 10.7.2006 09:37
Stjórn Sálfræðingafélags Íslands í mál við Samkeppniseftirlitið Stjórn Sálfræðingafélags Íslands hefur ákveðið að fara í mál vegna úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá í janúar síðastliðnum. Innlent 10.7.2006 10:09
Allir hálendisvegir opnir Allir hálendisvegir hafa nú verið opnaðir og góð færð er um allt land. Víðast hvar eru þó vegaframkvæmdir í gangi og er mikilvægt að ökumenn taki tillit til þeirra og virði hraðatakmarkanir. Innlent 10.7.2006 09:17
Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum Kólnun heldur áfram á fasteignamarkaðnum og í síðustu viku var aðeins hundrað tuttugu og einum kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu sem er 27 samningum undir meðaltali síðustu tólf vikna. Innlent 10.7.2006 08:28
Réttað yfir Saddam Hussein á ný Réttarhöld yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, hófust aftur í morgun. Þetta er lokahluti réttarhaldanna yfir Saddam Hussein og sex öðrum. Erlent 10.7.2006 08:58
Fimm særðust í loftárásum Ísraelsmanna í nótt Fimm særðust, þeirra á meðal átta ára stúlka, í loftárásum Ísraelsmanna nærri Gaza borg í nótt. Ísraelski herinn segir að loftárásin hafi verið gerð á bíl sem fluttihermenn Hamas-samtakanna. Erlent 10.7.2006 07:58
Avion dregur Exel til ábyrgðar Stjórnendur Avion Group ætla að draga stjórnendur dótturfélagsins Exel til ábyrgðar fyrir að hafa ekki fylgt góðum reikningsskilavenjum þegar stjórnendur Exel sömdu um þjónustu við Alpha Airports síðastliðið sumar. Innlent 10.7.2006 08:15
Rán í Þingholtunum Karlmaður, sem talinn er vera á þrítugsaldri, rændi verslun í Þingholtunum í gærkvöldi og komst undan. Agreiðslukona var ein í versluninni þegar ræningjann bar að garði, enda stóð úrslitaleikur heimsmesitarakeppninnar í knattspyrnu sem hæst. Innlent 10.7.2006 08:12
Flugvél ferst í Pakistan Flugvél með 45 manns um borð fórst í Pakistan í morgun. Nýjustu fregnir herma að allir hafi farist. Ekki er vitað hvað olli slysinu og ekki liggur fyrir hvar slysið varð nákvæmlega eða hvernig vél fórst. Erlent 10.7.2006 08:09
Röð bílasprengjuárása í Bagdad Tólf biðu bana og 62 særðust í tveimur bílprengjuárásum í Austur-Bagdad í morgun. Þá létust sautján í tveimur slíkum árásum í höfuðborginni í gær, rétt hjá moskum sjía. Erlent 10.7.2006 07:51