Þór Akureyri

Þór Akureyri

Fréttir af Íþróttafélaginu Þór á Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verk­efna“

„Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Eina leiðin er upp“

„Fagmannleg frammistaða hjá okkur, mér fannst við loka vel á styrkleika þeirra og unnum þetta saman sem lið í dag. Það hefur vantað smá geðveiki í þetta en við vorum fínir í því í dag og það skóp þennan sigur,“ sagði Aron Einar Gunnarsson eftir 2-1 sigur á Víking Reykjavík á Akureyri í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“

„Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld. 

Sport
Fréttamynd

Átti Amin að sjá rautt?

Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“

„Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Aðal­steinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnu­semi dugnaður og sam­vinna skilaði sigrinum“

„Ég er mjög ánægður með það að vinna fyrsta leikinn í dag en umfram allt er ég ánægður með frammistöðuna sem stelpurnar lögðu í leikinn. Vinnusemi, dugnaður samvinna og bara það skilaði sigrinum í dag og við erum virkilega ánægð með það að vinna loksins“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir fyrsta sigur liðsins í Bestu deild kvenna sem kom gegn Þrótti nú í kvöld og var augljóslega létt.

Fótbolti
Fréttamynd

Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús

Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna þegar Þróttur kom í heimsókn á VÍS völlinn á Akureyri í níundu umferð deildarinnar. Heimakonur skoruðu tvö góð mörk í fyrri hálfleik og sigldu öruggum 2-0 sigri heim og lyfta sér þar með úr botnsætinu og upp fyrir Fram í töflunni.

Íslenski boltinn