Stríð Ísraela og Hamas

Stríð Ísraela og Hamas

Fréttir af átökum Ísraela og Hamas-liða.

Fréttamynd

Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum

Félagið Ísland-Palestína stóð fyrir kröfugöngu frá Hlemmi og samstöðufundi á Austurvelli í kjölfarið í tilefni alþjóðlegs aðgerðardags fyrir Palestínu. Félagið krefst þess að íslensk stjórnvöld láti verkin tala. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

Yfir­menn Heimis teknir á teppið

Yfirmenn Heimis Hallgrímssonar hjá írska knattspyrnusambandinu voru kallaðir á fund þingnefndar írska þingsins í gær og látnir svara krefjandi spurningum um margt sem varðar leiki Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Sá sem ég dáist mest að í heiminum“

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, hefur staðfest að lið hans muni spila seinni leik sinn í Þjóðadeildinni gegn Ísrael á sunnudaginn kemur. Hann segir „einbeitinguna við fótbolta“ í miðjum stormi mótmæla. Leikmaður írska liðsins sem rekur ættir til Ísraels hefur þá heillað Heimi síðustu daga.

Fótbolti
Fréttamynd

Heimir gaf frí

Eftir þunga og langa daga, auk 3-0 sigurs á Ísrael í Ungverjalandi gaf Heimir Hallgrímsson leikmönnum írska karlalandsliðsins verðskuldað frí í gær. Enn er írska liðið þó í auga stormsins, enda stutt í næstu viðureign við Ísrael sem verður engu minna milli tannana á fólki.

Fótbolti
Fréttamynd

Harðari tónn en áður hafi verið sleginn

Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hún beindi spjótum sínum að Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur vakið mikla athygli. Stjórnmálafræðingur segir ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu, þó í henni megi finna harðari tón en áður hafi verið sleginn.

Innlent
Fréttamynd

UEFA rann­sakar ekki kynþáttaníð Ísraela

Kynþáttaníð ísraelskra stuðningsmanna í garð hörundsdökkra leikmanna írska landsliðsins í 3-0 sigri Írlands í leik liðanna í Þjóðadeildinni í Ungverjalandi í gær verður ekki til rannsóknar hjá UEFA sökum formgalla.

Fótbolti
Fréttamynd

Vill gera á Vestur­bakkanum það sem gert var á Gasa

Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti.

Erlent
Fréttamynd

Ringul­reið hjá Heimi og leikur við Ís­rael í upp­námi

Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.

Fótbolti
Fréttamynd

Af indíánum og kú­rekum

Höfundur er alin upp í stórum systkinahópi, meira að segja á þeirra tíma mælikvarða, sjö vorum við krakkarnir sem ólumst upp á sveitabæ nokkrum í Hrútafirði.Við vorum þrjár systur og fjórir bræður, hvorug systranna næst mér í aldri, heldur bræður mínir, þremur og fimm árum eldri.

Skoðun
Fréttamynd

Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum

Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. 

Innlent
Fréttamynd

Tugir full­trúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.

Erlent
Fréttamynd

Opið bréf til ríkis­stjórnar Ís­lands - Á­kall um að­gerðir vegna þjóðarmorðs

Í nánast þrjú ár hefur ríkisstjórn síonista í Ísrael framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðalög eru brotin daglega af ógnargrimmum her ríkis síonista, með kerfisbundnum árásum á óbreytta borgara, vísvitandi og markvisst er skotið á börn. Þá er heilbrigðisstarfsfólk, hjálparstarfsmenn og blaðamenn drepin markvisst. Fólk er sprengt, skotið, brennt, limlest og beitt andlegum og líkamlegum pyntingum.

Skoðun
Fréttamynd

Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu

Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt.

Innlent