Ævisaga skapandi hugsuðar Ritdómurinn sem Guðmundur Finnbogason sálfræðingur skrifaði um Vefarann mikla frá Kasmír eftir Halldór Laxness árið 1927 var stuttur: "Vélstrokkað tilberasmjör". Tilberar eru þjóðsagnaverur sem sjúga mjólk úr kúm annarra og færa húsbændum sínum með því að æla henni út úr sér. Spýjuna gátu húsbændurnir brúkað í illa fengið smjör. Menning 16. nóvember 2006 17:15
Ævar Örn seilist í Glerlykilinn í vor Glerlykillinn, hin norrænu verðlaun glæpasagnanna, er nú í undirbúningi og taka brátt að birtast tilnefningar frá valnefndum í hverju landi. Dómnefnd Hins íslenska glæpafélags hefur lokið störfum og tilnefnir eina íslenska glæpasögu útgefna árið 2005 til að keppa um Glerlykilinn, verðlaun Norrænu glæpasamtakanna SKS, Skandinaviska Kriminalsällskapet. Menning 16. nóvember 2006 17:00
Skuggaleikur hjá Óperunni Óperan Skuggaleikur, ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur og Sjón, verður frumsýnd í Íslensku óperunni laugardaginn 18. nóvember kl. 20.00. Bíó og sjónvarp 16. nóvember 2006 17:00
Þjóð í hlekkjum hugarfarsins Kvikmyndaklúbburinn Kviksaga sem starfar innan Reykjavíkurakademíunnar sýnir í kvöld fyrsta þáttinn og brot úr seinni þáttunum þremur af leikinni heimildamynd, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins, eftir Baldur Hermannsson. Jón Þór Pétursson sagnfræðingur mun jafnframt fjalla um efni þáttaraðarinnar og viðbrögð við henni. Röðin var sýnd í Ríkissjónvarpinu vorið 1993 og var í fjórum þáttum. Bíó og sjónvarp 16. nóvember 2006 16:45
Vill ekki hætta Ólátabelgurinn og rokkarinn Pete Doherty viðurkennir að hann muni aldrei geta hætt að nota eiturlyf þó að hann sé nýkominn úr meðferð. Doherty er trúlofaður ofurfyrirsætunni Kate Moss og var það fyrir tilstilli hennar að rokkarinn ákvað að fara í meðferð eftir mörg ár sem eiturlyfjaneytandi. „Ég er fíkill og það mun ég alltaf vera,“ segir Doherty við BBC. Lífið 16. nóvember 2006 16:30
Ver Naomi Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur nú ákveðið að taka upp hanskann fyrir stallsystur sína Naomi Campell. Campell hefur verið kærð fyrir líkamsárásir oftar en einu sinni og þykir mjög mislynd og árásargjörn manneskja. Nú síðast var hún kærð af aðstoðarkonu sinni sem sagði Campell hafa tekið sig hálstaki. Lífið 16. nóvember 2006 16:15
U2 vinnur dómsmál Írska hljómsveitin U2 hefur unnið dómsmál sem hún höfðaði gegn fyrrverandi útlitshönnuði sínum, Lolu Cashman. Var hún sökuð um að hafa tekið muni í eigu sveitarinnar án leyfis á meðan á tónleikaferð hennar stóð vegna Joshua Tree-plötunnar árið 1987. Tónlist 16. nóvember 2006 16:00
Trommutaktar og lúðrar Jónas Sigurðsson, fyrrum söngvari Sólstrandagæjanna, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Jónas hefur starfað síðustu ár við hugbúnaðargerð hjá Microsoft í Danmörku. Tónlist 16. nóvember 2006 15:30
Tangó er spuni á milli tveggja Tangófélagið stendur fyrir tangódansleik, milongu, í Gyllta salnum á Hótel Borg í kvöld. Áður en ballið byrjar fá þeir sem vilja tilsögn í tangó svo að þeir séu betur í stakk búnir að láta ljós sitt skína á dansgólfinu. Menning 16. nóvember 2006 15:15
Stjórnar þætti í spænsku sveitaútvarpi Flökkukindin Jón Sigurður Eyjólfsson hélt á vit ævintýranna fyrir skömmu og fluttist til smábæjarins Carbonero sem er á spænsku hásléttunni en hann á þar spænska dóttur. Lífið 16. nóvember 2006 15:00
Skugginn leikur laus Stjórn Íslensku óperunnar varð á síðasta ári fyrir nokkurri gagnrýni vegna þess að hún sinnti ekki frumsköpun í óperusmíði. Þá hafði Óperan stofnað Óperustúdíó til að þróa ný verk. Menning 16. nóvember 2006 14:45
Sérstakar sýningar fyrir heyrnarskerta Kvikmyndin Börn verður sýnd í Háskólabíói dagana 17., 18. og 19. nóvember með íslenskum texta en samkvæmt fréttatilkynningu sem leikhópurinn Vesturport sendi frá sér vill hópurinn með þessu koma til móts við heyrnarskerta og heyrnarlausa áhorfendur sem áhuga hafa á að sjá myndina. Tveir sýningartímar eru á Börnum umrædda daga, klukkan 20.00 og 22.00. Bíó og sjónvarp 16. nóvember 2006 14:30
Megas endurútgefinn og nýr Í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, koma þrjár af plötum Megasar út á nýjan leik. Þetta er í annað sinn sem Íslenskir tónar senda frá sér veglegar endurútgáfur á plötum Megasar en árið 2002 komu 10 fyrstu sólóplötur meistarans út ásamt miklu aukaefni við mikinn fögnuð aðdáenda. Tónlist 16. nóvember 2006 14:17
Salzburgarárin hans Mozarts Í kvöld verða tónleikar hjá Sinfóníunni sem helgaðir eru verkum Mozarts sem hann samdi í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg. Verður Hamrahlíðarkórinn í stóru hlutverki á tónleikunum. Á efnisskránni er verkið Exultate jubilate, eitt frægasta æskuverk Mozarts, auk tveggja verka sem Mozart samdi við Maríutextann Regina Coeli. Tónlist 16. nóvember 2006 14:15
Eingöngu lög og textar eftir konur Á morgun kemur út geisladiskurinn Sögur af konum þar sem Selma og Hansa syngja 12 ný lög eftir íslenskar konur. Sögur af konum inniheldur 12 ný íslensk lög og texta eftir íslenskar konur. Selmu og Hönsu langaði til að gera tónlistarkonum á Íslandi hátt undir höfði og velja eingöngu lög og texta eftir konur. Tónlist 16. nóvember 2006 14:05
Roof Tops snúa aftur Upp úr 1966 tók að heyrast hér tónlist sem stakk í stúf við gítargutlið sem drengjapoppið hafði sem megineinkenni. Fyrstu hljómarnir bárust hingað um Kanaútvarpið og takturinn var annar, söngurinn rámari og blár og saxó-fónar og önnur blásturstól áberandi. Tónlist 16. nóvember 2006 14:00
Opruh ekki boðið Spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey er ekki boðið í brúðkaup stjörnuparsins Katie Holmes og Toms Cruise sem haldið verður á Ítalíu um helgina. Eins og mörgum er kunnugt var það í þætti Winfrey sem Cruise játaði ást sína á Holmes í fyrsta sinn með því að hoppa í sófanum í sjónvarpsþættinum. Lífið 16. nóvember 2006 13:45
Nýtt starfsár hafið hjá Sinfóníu Norðurlands Vetur er að leggjast yfir Norðurland og þá taka hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að stilla saman strengi sína. Fjórtánda starfsár þeirra er að hefjast. Skólatónleikar skipa stóran sess í dagskrá vetrarins. Tónlist 16. nóvember 2006 13:30
Landsliðið til Lúxemborgar Á morgun heldur Landslið matreiðslumanna í heimsmeistarakeppnina í Lúxemborg, en hún stendur yfir 18. til 22. nóvember. Liðið er skipað átta úrvalskokkum, og gegna þeir Ragnar Ómarsson, yfirmatreiðslumaður á Salti, og Bjarni Gunnar Kristinsson, yfirmatreiðslumaður á Grillinu, stöðum spilandi þjálfara. Lífið 16. nóvember 2006 13:15
Lachey hafnað Söngvaranum og hjartaknúsaranum Nick Lachey var hafnað um daginn af hinni fögru Vanessu Minnillo. Lachey mun hafa borið upp bónorð, en parið er búið að vera saman síðan fyrr á þessu ári, en Minnillo fannst það vera of snemmt. Lífið 16. nóvember 2006 13:00
Kærastarnir algjörar hetjur að bíða heima Þær Alma, Klara, Emilía og Steinunn eru ekki beint venjulegar stúlkur á þrítugsaldri. Á rúmum sex mánuðum hafa stöllurnar komið fram sjö sinnum á stærsta leikvangi Bretlands, Wembley, og fjörið er bara rétt að byrja. Nylon, litla hljómsveitin sem margir höfðu ekki trú á, virðist vera búin að sýna sig og sanna. Tónlist 16. nóvember 2006 12:45
Jónas og Kristinn í Salnum Þeir félagar Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson verða með ljóðatónleika í Salnum á laugardag kl. 16. Ljóðatónleikar þeirra hafa löngum verið hápunktur í starfi Salarins og hafa þeir verið duglegir að koma fram, eiga sér dyggan aðdáendahóp sem sækir alla þeirra tónleika enda er frammistaða þeirra rómuð á þessum heimilislegu tónleikum. Tónlist 16. nóvember 2006 12:30
Casino Royale frumsýnd í London Þúsundir aðdáenda njósnara hennar hátignar, 007, söfnuðust saman við Leicester-torg þegar nýjasta James Bond-myndin Casino Royale var frumsýnd í London. Bíó og sjónvarp 16. nóvember 2006 12:15
Allt að verða klárt fyrir Cruise og Holmes Undirbúningurinn fyrir brúðkaup Toms Cruise og Katie Holmes heldur áfram en Ítalir ráða sér vart fyrir kæti yfir því að stjörnuparið skyldi velja landið þeirra eftir allt fjaðrafokið í kringum hugsanlegt brúðkaup Angelinu Jolie og Brad Pitt við Como-vatnið. Lífið 16. nóvember 2006 12:00
Hugarsmíð Simons Cowell slær í gegn X Factor-keppnin hefst á Íslandi á morgun. Þótt keppnin eigi sér ekki langa sögu nýtur hún mikilla vinsælda um allan heim enda er bryddað upp á þeirri nýjung að dómarar eru ekki síður í keppni innbyrðis en þátttakendurnir sjálfir. Tónlist 16. nóvember 2006 11:45
Hristur, hrærður og í banastuði Tuttugasta og fyrsta James Bond myndin, Casino Royale, verður frumsýnd um víða veröld á morgun og Ísland er vitaskuld engin undantekning. Myndarinnar hefur verið beðið með óvenju mikilli eftirvæntingu enda stígur Daniel Craig sín fyrstu spor sem Bond í henni. Bíó og sjónvarp 16. nóvember 2006 11:30
Halli í tónleikaferð Trúbadorinn Halli Reynis er að senda frá sér sína sjöundu plötu sem nefnist Fjögurra manna far. Er hún gefin út á vegum Músík ehf. og er þetta í fyrsta sinn sem Halli gerir útgáfusamning á ferli sínum. Í tilefni plötunnar ætlar hann að halda einn með gítarinn í tónleikaferð sem byrjar í kvöld á Græna hattinum á Akureyri. Nánari upplýsingar um tónleikaferðina má fá á Hallireynis.com. Tónlist 16. nóvember 2006 11:15
Guðrún í Fríkirkjunni Útgáfutónleikar söngkonunnar Guðrúnar Árnýjar verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld klukkan 20.00. Þar flytur Guðrún lög af fyrstu sólóplötu sinni, Eilíft augnablik, sem kom út nú í vikunni. Tónlist 16. nóvember 2006 11:00
Gerðu barnaplötu sem lokaverkefni Félagarnir Halli og Heiðar úr rokksveitinni Botnleðju hafa gefið út barnaplötuna Pollapönk. Þetta er fyrsta barnaplatan sem þeir gera í sameiningu en áður hafði Halli gefið út plötuna Hallilúja þar sem hann naut aðstoðar ýmissa tónlistarmanna, þar á meðal Heiðars. Tónlist 16. nóvember 2006 10:45
Gafst upp á kuldanum á Íslandi og fann paradís á jörðu „Mér leiddist á Íslandi enda er hér kalt og dimmt meirihluta árs,“ segir hin 23 ára Monika Klonowski. Erfitt er annað en að vera sammála henni í kuldakastinu sem ríður yfir landið þessa dagana. Monika er nýkomin heim eftir að hafa verið í tæp tvö ár á eyjunni Roatan í Karíbahafinu þar sem hún vinnur sem köfunarkennari. Lífið 16. nóvember 2006 10:30