Tónlist

Trommutaktar og lúðrar

jónas sigurðsson Jónas er að gefa út sína fyrstu plötu. Útgáfutónleikar hans verða í Tjarnarbíói í kvöld.fréttablaðið/pjetur
jónas sigurðsson Jónas er að gefa út sína fyrstu plötu. Útgáfutónleikar hans verða í Tjarnarbíói í kvöld.fréttablaðið/pjetur MYND/Pjetur

Jónas Sigurðsson, fyrrum söngvari Sólstrandagæjanna, hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Þar sem malbikið svífur mun ég dansa.

Jónas hefur starfað síðustu ár við hugbúnaðargerð hjá Microsoft í Danmörku.

Upptökur plötunnar fóru fram á heimilum vina og kunningja í íslenskum og norskum sjávarþorpum, Reykjavík og Kaupmannahöfn á tveggja ára tímabili. Platan inniheldur ellefu lög með íslenskum textum og efnistökin margvísleg; tilgangur lífsins, myrkur og fegurð.

Leitaði að rétta „sándinu“Jónas segist hafa haft plötuna í hausnum í fjögur til fimm ár áður en hann ákvað að stíga skrefið og taka hana upp. „Ég flutti til Danmerkur fyrir fjórum árum og átti svo mikið efni sem ég var í að spá í að gefa út. Ég bara náði ekki alveg að finna hvernig ég ætti að hafa „sándið"," segir Jónas. „Fyrir þremur árum byrjaði ég að fara í stúdíó og taka upp og vinna þessar hugmyndir. Ég var á tímabili búinn að ýta þessu til hliðar og var að vinna við forritun. En tónlistin var svo knýjandi að ég varð að koma henni að til að viðhalda mínu andlega heilbrigði." Stanslaust partíJónas vill ekki meina að erfitt hafi verið að koma sér úr gír Sólstrandagæjans yfir í gír alvarlega sólótónlistarmannsins. „Sólstrandagæjarnir voru í rauninni hálfgert partí. Ég og vinur minn sömdum það allt saman á tveimur helgum og svo varð það alveg risastórt og yfirtók allt annað. Á þessum tíma var ég að leyfa fólki að heyra demó sem ég hafði samið fyrir sjálfan mig og það spurði bara: Hvað er nú þetta? Þetta verður aldrei vinsælt," segir hann og hlær. „Það er í rauninni ótrúlegt hvað þetta lifir því hljómsveitin var ekki einu sinni til í tvö ár. Við vorum nýútskrifaðir stúdentar að vinna í frystihúsi og gáfum þessa plötu út fyrir vini okkar sem partíefni. Síðan var þetta bara stanslaust partí." Trommari að upplagiJónas segist hafa nálgast plötuna sína mikið út frá rythma, enda er hann trommuleikari að upplagi. „Ég var mikið í lúðrasveitum og var alltaf hrifinn af þessu „energíi" sem er í þessum lúðrum þegar þeir eru notaðir hráir. Ég man þegar það voru haldin lúðrasveitamót einu sinni á ári þar sem allar lúðrasveitirnar komu saman og duttu í það. Þá voru allir að spila á lúðrana og mér fannst það svo geðveikt „sánd". Það var dálítið erfitt að fá hljóðfæraleikarana til að spila þannig á plötunni," segir hann og hlær.

Jónas reyndi jafnframt að forðast að vera með trommusett á plötunni. Vildi hann frekar hafa hljóminn eins og í lúðrasveit, þar sem einn er á bassatrommu og annar á sneril. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn með þessa plötu. Mér finnst ég hafa eitthvað að segja og mig langaði að gera meira, það er engin spurning." Átta manna hljómsveitFjölmargir danskir og íslenskir tónlistarmenn koma við sögu á plötunni og mun Jónas koma fram með átta manna hljómsveit á útgáfutónleikum sem hefjast í Tjarnarbíói klukkkan 22.00 í kvöld. Miðaverð er 1.000 krónur.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×