„Risastórt“ fjármögnunargat sem þarf að brúa frestist salan á Íslandsbanka Ólíklegt er að áform stjórnvalda um að selja um tuttugu prósenta hlut í Íslandsbanka nái fram að ganga á komandi vikum sem þýðir að ríkissjóður þarf að leita annarra fjármögnunarleiða til að mæta áætlaðri fjárþörf sinni á þessu ári. Þrátt fyrir pólitíska óvissu hafa viðbrögð fjárfesta á markaði ekki verið afgerandi – krónan styrktist lítillega og ávöxtunarkrafa skuldabréfa heilt yfir lækkað – en ósennilegt er að stjórnarslitin muni setja í uppnám væntingar um frekari vaxtalækkanir þegar peningastefnunefnd kemur saman í næsta mánuði, að mati sérfræðinga á skuldabréfamarkaði. Innherji 14. október 2024 13:48
Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Sagan af ráðherranum sem kom inn í viskí-mettaðan flugstjórnarklefann, af jólatrénu sem festist á stélinu og af magalendingu Loftleiðavélarinnar í New York eru meðal þeirra sem flugfólk deilir með okkur. Innlent 13. október 2024 09:09
Áfram engar loðnuveiðar Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024/2025. Viðskipti innlent 12. október 2024 09:09
Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11. október 2024 12:41
Borgarstjóri hnýtir í skráð félag og fullreynt stjórnarsamstarf „Það er galið að borgin sé með meira álag, að það sé talið af hálfu markaðsaðila meiri áhætta að lána Reykjavíkurborg heldur en Icelandair sem verður default [gjaldþrota] á tíu ára fresti”, sagði Einar Þorsteinsson, borgarstjóri, í hlaðvarpinu Chess after Dark á dögunum. Innherji 11. október 2024 08:06
Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Innlent 10. október 2024 10:50
Ísleifur tekur við sem forstöðumaður hjá VÍS Ísleifur Orri Arnarson hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar hjá VÍS, þar sem hann mun bera ábyrgð á því að framfylgja stefnu fyrirtækisins um samhæfða áhættustýringu. Viðskipti innlent 9. október 2024 13:46
Taka flugið til Tyrklands Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarflugi til Antalya í Tyrklandi. Fyrsta flugið verður farið 15. apríl á næsta ári og verður flogið einu sinni í viku fram til byrjun júnímánaðar áður en áætlunin verður tekin upp að nýju í september og fram yfir miðjan nóvember. Viðskipti innlent 9. október 2024 10:17
Krónan styrkist þegar ríkisbréfin komust á radarinn hjá erlendum sjóðum Eftir að hafa styrkst um meira en þrjú prósent á örfáum vikum er gengi krónunnar núna nálægt sínu hæsta gildi á móti evrunni á þessu ári. Krónan veiktist nokkuð skarpt í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, en nú hefur sú þróun snúist við samhliða því að erlendir sjóðir hafa verið að sýna íslenskum ríkisbréfum aukinn áhuga, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 9. október 2024 10:07
Aflýsa flugi til og frá Orlando Icelandair hefur aflýst fyrirhuguðu flugi til og frá Orlando í Flórída síðdegis í dag og á morgun. Viðskipti innlent 9. október 2024 07:11
Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum. Innherji 8. október 2024 19:50
Telur „töluverða“ orðsporsáhættu fyrir Eik að fara í útleigu á íbúðarhúsnæði Stjórn Eikar telur að gengið í yfirtökutilboði Langasjávar í allt hlutafé fyrirtækisins sé of lágt, meðal annars á grundvelli greininga frá óháðum aðilum sem verðmeta það á tugprósenta hærra verði, enda þótt það sé „nokkur samhljómur“ í áformum fjárfestingafélagsins og Eikar. Stjórnin leggst gegn hugmyndum um að Eik fari í útleigu húsnæðis til almennings en arðsemi ef slíkri starfsemi sé „mun lægri“ og henni fylgi orðsporsáhætta sem gæti dregið úr áhuga sumra fjárfesta á félaginu. Innherji 8. október 2024 12:36
Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Fyrrverandi flugfreyjur, sem voru fyrsta kynslóðin sem gerðu starfið að ævistarfi, segjast ekki síður en karlarnir hafa átt þátt í að skapa íslenska flugævintýrið. Í þættinum Flugþjóðin er rætt við fjölda núverandi og fyrrverandi starfsmanna úr fluggeiranum. Innlent 8. október 2024 10:55
Augljós tækifæri Oculis Takmörkuð þekking er meðal markaðsaðila hér á landi á sérhæfðum líftæknifyrirtækjum eins og Oculis. Það hefur því verið krefjandi verkefni fyrir stjórnendur fyrirtækisins að miðla skýrri fjárfestasögu hér á landi. Það eru líklega fáir sem átta sig á því að markaðsvirði Oculis er um þrisvar sinnum hærra en Símans, ríflega þriðjungi meira en Eimskips og sambærilegt virði Kviku banka. Umræðan 8. október 2024 07:02
Oculis á mikilli siglingu og Kauphöllin iðagræn Hlutabréfaverð augnlyfjafyrirtækisins Oculis heldur áfram að hækka og tók stökk upp á 8,72 prósent í dag. Gengi Play hækkaði þó enn meira en það í örviðskiptum upp á fimm milljónir króna. Viðskipti innlent 7. október 2024 17:02
Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7. október 2024 14:37
Frá Félagi hafnarverkamanna á Íslandi Enn og aftur er Félag Hafnarverkamanna að fara fyrir félagsdóm, en næstkomandi mánudag verður fyrirtaka í máli okkar gegn SA fyrir hönd Eimskips og ASÍ fyrir hönd Eflingar. Þetta er í þriðja skiptið á tveimur árum sem FHVI fer fyrir félagsdóm til að fá úrskurð í sínum málum. Skoðun 7. október 2024 08:45
Mikill fjöldi bílastæða í eigu Heima gæti verið „ósnert auðlind“ Reksturinn hefur gengið „smurt fyrir sig“ hjá Heimum að undanförnu, að sögn hlutabréfagreinenda, en verðmatsgengi fyrirtækisins hefur verið hækkað lítillega og er núna talsvert umfram markaðsgengi. Markaðsvirði Heima, rétt eins og annarra skráðra fasteignafélaga, er samt enn mjög lágt í samanburði við bókfært virði eigna en hlutabréfaverðið hefur núna rokið upp um liðlega fjórðung á skömmum tíma. Innherji 4. október 2024 16:09
Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Heimar hf. hafa samþykkt kauptilboð Módelhúsa ehf. í fimm fasteignir, fyrir alls 3.275 milljónir króna. Módelhús eru í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddsonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur. Viðskipti innlent 4. október 2024 10:37
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3. október 2024 16:56
Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Íslandsbanki hefur ákveðið að lækka vexti á lánum þar sem brugðist er við vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær þar sem stýrivextir voru lækkaðir úr 9,25 prósentum í 9,0 prósent. Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána hjá Íslandsbanka lækka nú um 0,25 prósentustig, úr 11,0 prósentum í 10,75 prósent. Viðskipti innlent 3. október 2024 12:28
Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Óverðtryggðir vextir íbúðalána lækka um allt að 0,6 prósentustig en verðtryggðir vextir standa í stað. Viðskipti innlent 3. október 2024 10:44
Nú beinast öll spjót að bönkunum „Við höfum reyndar því miður dæmi um það að bankarnir bregðist mjög hratt og örugglega við þegar að seðlabankinn hefur hækkað vexti en hafa þurft að fá fyrirmæli ofan úr svörtuloftum til þess að lækka og hafa gert það seint og ekki jafn mikið. Fylgnin er meiri þegar að Seðlabankinn hefur hækkað vexti en lækkað, því miður.“ Innlent 2. október 2024 22:01
Hætt við að ein „aumingjaleg lækkun“ láti hjól hagkerfisins snúa hraðar á ný Yfirlýsing peningastefnunefndar til að réttlæta óvænta vaxtalækkun var lítið annað en „kirsuberjatínsla“, gögn sérstaklega dregin fram til að styðja við lækkun, en lítið gert með fyrri orð og gjörðir sem gæti komið niður á trúverðugleika Seðlabankans, að mati greiningar Arion, en ljóst sé að nefndarmenn hafi ekki verið samstíga. Hagfræðingar bankans fara nokkuð hörðum orðum um þá ákvörðun að lækka vexti, sem þeir eru ekki sannfærðir um að sé tekin á réttum tímapunkti, og búið sé að skapa væntingar um frekari vaxtalækkanir sem kunni að ýta undir þenslu og verðbólguþrýsting. Innherji 2. október 2024 20:39
„Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í fyrsta skipti í fjögur ár í morgun, um 0,25 prósentur. Varaseðlabankastjóri segir að við séum þó ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna. Hagkerfið verði að hægja meira á sér eigi þróunin að halda áfram niður á við. Viðskipti innlent 2. október 2024 18:31
Tekist að hefja vaxtalækkunarferlið án þess að búa til of miklar væntingar Markaðir brugðust við með afgerandi hætti eftir nokkuð óvænta vaxtalækkun Seðlabankans í morgun en hlutabréfaverð flestra félaga hækkaði skarpt og ávöxtunarkrafa stuttra ríkisbréfa lækkaði talsvert. Flestir markaðsaðilar vænta þess að peningastefnunefndin muni fylgja lækkuninni eftir með stærra skrefi í næsta mánuði – 50 punkta lækkun eða meira – en með ákvörðuninni í morgun sýndi Seðlabankinn framsýni með því að senda merki um að hann sé ekki fastur að horfa í „baksýnisspegilinn,“ að mati fjárfestis á skuldabréfamarkaði. Innherji 2. október 2024 16:37
Ekki útilokað að stýrivextir lækki Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir ekki útilokað að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á morgun. Hann spáir þó óbreyttum vöxtum en segir styttast í lækkun þeirra. Viðskipti innlent 1. október 2024 22:12
Gengið frá sölu á hluta Endor Sýn hf. og Hexatronic hafa undirritað kaupsamning um hluta af starfsemi Endor ehf. en áður hafði verið tilkynnt um viljayfirlýsingu um kaup Hexatronic á erlendri starfsemi Endor. Viðskipti innlent 1. október 2024 16:23
Kjörin bötnuðu mikið þegar Landsbankinn gaf út fimm ára evrubréf Útgáfa Landsbankans á grænum skuldabréfum til fimm ára upp á 300 milljónir evra er sú lengsta á meðal útistandandi ótryggðra evrubréfa viðskiptabankanna en talsverður áhugi fjárfesta þýddi að vaxtaálagið lækkað nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst. Aðgengi íslensku bankanna að erlendum fjármagnsmörkuðum hefur farið mjög batnandi að undanförnu og Seðlabankinn hvatt þá til að viðhalda sterkri lausafjárstöðu komi til þess að sú staða breytist. Innherji 1. október 2024 15:08
Kvartar til FDA og telur að Samsung eigi ekki að fá útskiptileika við Stelara Alvotech hefur sent inn kvörtun til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna vegna hliðstæðu keppinautarins Samsung Bioepis við Stelara, eitt mesta selda lyf í heimi, sem íslenska líftæknilyfjafélagið telur að uppfylli ekki kröfur til að fá heimild fyrir útskiptileika. Samsung er eitt af fjórum fyrirtækjum sem hefur sett stefnuna á hliðstæðumarkað með Stelara í upphafi næsta árs en fái félagið ekki útskiptileika er sennilegt að það muni koma verulega niður á möguleikum þess að keppa um hlutdeild við sölu á lyfinu. Innherji 1. október 2024 11:14