
Nico Rosberg á ráspól
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól og liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar. Daniel Ricciardo varð þriðji. Valtteri Bottas varð fjórði. Bottas mun þó ræsa þriðji í keppninni í Bahrain á morgun.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól og liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar. Daniel Ricciardo varð þriðji. Valtteri Bottas varð fjórði. Bottas mun þó ræsa þriðji í keppninni í Bahrain á morgun.
Mercedes-mennirnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg voru fljótastir á báðum æfingum dagsins í Barein í dag. Þriðji varð Fernando Alonso á Ferrari.
Umboðsmaður Michael Schumacher segir að ökuþórinn sé nú farinn að sýna merki þess að hann sé að komast aftur til meðvitundar.
Red Bull liðið hefur varað Renault við að liðið gæti leitað annað eftir vélum á næsta ári. Red Bull vill sjá greinanlegar framfarir fyrir lok júní. Annars gæti liðið farið að huga að samstarfi við annan vélaframleiðanda.
Sauber liðið er að undirbúa nýjan og léttari undirvagn. Svissneska liðinu hefur ekki tekist að komast undir 692 kg hámarksþyngd formúlu 1 bíla.
Spánverjinn Fernando Alonso hjá Ferrari segir að liðið viti hvaða atriði þarfnast lagfæringa. Ferrari stefnir á að geta keppt við bestu bílana fljótlega.
Bretinn Lewis Hamilton á Mercedes vann keppnina í Malasíu, liðsfélagi hans Nico Rosberg varð annar. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji. Við förum yfir málin í Bílskúrnum.
Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Malasíu í morgun og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.
Lewis Hamilton vann keppnina, Nico Rosberg varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.
Lewis Hamilton mun ræsa fyrstur í malasíska kappakstrinum á morgun eftir tímatöku dagsins. Hann mun deila fremstu röðinni á ráslínu með Sebastian Vettel. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji.
Bretinn Lewis Hamilton setti hraðasta hring á fyrri æfingunni í nótt á Mercedes bíl sínum. Hann varð fjórði á seinni æfingunni á Sepang brautinni í Malasíu. Nico Rosberg varð þriðji á Mercedes bíl sínum á fyrri æfingunni en fljótastur á seinni æfingunni. Rosberg er spenntur fyrir keppninni og vill gjarnan reyna að ná öðrum sigri sem fyrst.
Ætlast er til að ökumenn votti samúð sína með aðstandendum þeirra 239 farþega sem taldir eru hafa farist með flugi MH370. Skilaboð í þá veru verða á hjálmi hvers ökumanns og bíl. Einnig verður einnar mínútu þögn fyrir keppnina á sunnudag.
Sebastian Vettel og hin unga Missu Franklin voru í gær útnefnd íþróttafólk ársins og hlutu hin eftirsóttu Laureus-verðlaun.
Fjórir bílar með Renault-vélar hættu keppni í Ástralíu vegna vélabilunar. Renault trúir því að fyrirtækið sé að ná árangri í átt að meiri áreiðanleika.
Eigandi orkudrykkjaframleiðandans Red Bull, Dietrich Mateschitz hefur hótað að hætta að styrkja Red Bull liðið til keppni í Formúlu 1. Hann segir að íþróttin verði að koma til móts við þarfir hans.
Jean Todt, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) segist vera opinn fyrir því að gera V6 vélarnar háværari. Hann er einnig tilbúinn að skoða að leyfa meiri eldsneytisnotkun ef íþróttin fer að líða fyrir strangar reglur um eldsneytismagn.
Þrátt fyrir skelfilega helgi í Ástralíu þar sem fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hóf keppni í 13. sæti horfir nú til betri vegar.
Ferrari byrjaði tímabilið í Formúlunni ekki vel en þar á bæ þurfa menn að hjálpast að við að gera bílinn betri.
McLaren leiðir keppni bílasmiða eftir fyrstu keppni tímabilsins. Báðir ökumenn liðsins komust á verðlaunapall. Nýliðinn Kevin Magnussen í öðru sæti og Jenson Button í þriðja.
Red Bull liðið er búið að staðfesta þær fréttir að liðið hafi formlega áfrýjað úrskurði dómara formúlu eitt keppninnar í Ástralíu um síðustu helgi um að vísa Daniel Ricciardo úr keppni. Ricciardo kom annar í mark en var svo dæmdur úr leik eftir á. Ástæðan var sú að eldsneytisflæði í bíl hans fór yfir leyfileg mörk.
Toto Wolff, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs Mercedes segir að liðið verði að halda forskotinu sem það hefur á keppinautana. Liðið sýndi að það hefur forskot á önnur lið í Ástralíu.
Bernie Ecclestone segir nýju vélarhljóði stríð á hendur. Ecclestone hefur frá upphafi verið mótfallinn því að skipta yfir í V6 vélar. Hann segir að bílarnir verði að fara að hljóma aftur eins og kappakstursbílar.
Tímabilið í Formúlu 1 hófst í gær þegar Ástralíukappaksturinn fór fram í Melbourne en hvað kom í ljós í fyrstu keppni tímabilsins?
Nýtt keppnistímabil hófst í Formúlu 1 í morgun þegar keppt var í Ástralíu. Fyrsta mótið lofar góðu fyrir framhaldið.
Heimamaðurinn Daniel Ricciardo hefur verið dæmdur úr leik fyrir að hafa notað of mikið eldsneyti í keppninni í morgun. Ástralinn endaði í öðru sæti keppninnar.
Nico Rosberg á Mercedes sigraði fyrstu keppni timabilsins í viðburðaríkum kappakstri í Ástralíu í morgun. Daniel Ricciardo á Red Bull var annar og nýliðinn Kevin Magnussen á McLaren varð þriðji.
Fyrsta keppnin í Formúlu 1 fer fram í Ástralíu á morgun. Hér er hitað upp fyrir tímabilið.
Bretinn Lewis Hamilton fór vel af stað í Formúlunni í nótt og hann verður á ráspól í ástralska kappakstrinum. Aðstæður í tímatökunni voru mjög erfiðar.
Fyrstu tímatöku tímabilsins er lokið. Mercedes menn koma best undan vetri og náðu fyrsta og þriðja sæti. Rok og rigning settu strik í reikninginn í Ástralíu í dag.
Sebastian Vettel er ekki með sama forskot og áður í formúlu eitt en fyrsti kappakstur tímabilsins fer fram í Ástralíu um helgina.