Formúla 1

Raikkonen ætlar ekki að aðlaga sig að bílnum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Kimi Raikkonen á Ferrari fák sínum.
Kimi Raikkonen á Ferrari fák sínum. Vísir/Getty
Kimi Raikkonen segist ekki sjá ástæðu til að breyta um akstursstíl. Hann telur að það muni ekki gera hann hraðskreiðari. Hann hefur hvatt Ferrari til að hanna bíl sem hentar sínum akstursstíl.

Finnski ökumaðurinn vill að bíllinn geti beygt inn á miklum hraða án þess að missa grip á framdekkjunum.

Slakt loftflæði á 2014 bíl Ferrari hefur ekki hjálpað Raikkonen. Hann segir sjálfur að því sé um að kenna hversu slakur hann var miðað við Fernando Alonso.

Heimsmeistarinn frá 2007 telur þó að hann þurfi ekki að breyta um akstursstíl því það muni ekki leysa vandamálið.

„Ég sé ekki tilganginn í að breyta um akstursstíl. Ég gæti ekki ekið neitt hraðar ef ég æki öðruvísi. Vandamálið er ekki hvernig ég keyri heldur hvernig við getum lagað vandamálið í bílnum, þá munum við ná góðum úrslitum,“ sagði Raikkonen.

„Ég get ekið í kringum sum vandamál en ég vona að við getum lagað aðal vandamálið. Ég hef verið í Formúlu 1 í þónokkur ár og ég hef aldrei breytt akstursstílnum og það mun aldrei vera lausnin að breyta honum. Það er ekki rétta leiðin til að leysa vandamálin,“ bætti Raikkonen við.

Finninn er sannfærður um að Ferrari nái framförum á næsta ári með betri bíl, betri heildarpakka og með áunna reynslu frá 2014 í farteskinu.


Tengdar fréttir

Ég er ekki töframaður

Nýr liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segist ekki geta gert nein kraftaverk fyrir næsta tímabil og því verði það líklega erfitt fyrir ítalska liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×