Formúla 1

Marchionne býst við Ferrari í fremstu röð undir lok tímabilsins

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sergio Marchionne forseti Ferrari segir bjartari tíma framundan.
Sergio Marchionne forseti Ferrari segir bjartari tíma framundan. Vísir/Getty
Forseti Ferrari Sergio Merchionne segi að lokakeppnir ársins verði spennandi fyrir liðið. Hann telur að þá komi í ljósútkoma endurreisnar liðsins.

Marchionne ítrekar þó að fyrri hluti tímabilsins verði erfiður enda gekk 2014 illa hjá liðinu.

„Því miður höfum við misst af lestinni. Við byrjum nú aftarlega en setjum hausinn undir okkur og reynum að vinna,“ sagði Marchionne.

„Ég vona að við munum sjá framfarir á brautinni fyrir lok tímabils. Ég held að áhugaverðasti hluti 2015 verði síðustu keppnirnar,“ bætti hann við.

Marhionne segir að leyfi til að þróa vélar yfir tímabilið veiti honum aukna von um framfarir. Liðið hafi þegar séð hluta af þeirri vinnu skila sér.

Að lokum minnti Marchionne á að hann mun stíga til baka og minnka bein afskipti af rekstri liðsins. Hann hefur fengið Maurizio Arrivabene hlutverk liðsstjóra.


Tengdar fréttir

20 Formúlu 1 keppnir 2015

Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Vélaþróun leyfileg 2015, fyrir suma

Gloppótt reglugerð gerir það að verkum að breytingabannið sem lék Ferrari og Renault grátt í lok síðasta tímabils verður ekki til staðar í ár.

Upplýsingum um skuldir Marussia liðsins lekið

Marussia liðið skuldaði lánadrottnum andvirði rúmlega 6 milljarða króna samkvæmt skjölunum þegar það var lýst gjaldþrota. Upplýsingar um skuldir liðsins voru á skjölum sem lekið var úr þrotabúinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×