Formúla 1

Alonso er varaskeifa Mercedes

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli Alonso muni koma til Mercedes í stað Hamilton?
Ætli Alonso muni koma til Mercedes í stað Hamilton? Vísir/Getty
Mercedes myndi leita samninga við Fernando Alonso fyrir tímabilið 2016 ef ekki tekst að semja við núverandi ökumann liðsins og heimsmeistara, Lewis Hamilton.

Mercedes og Hamilton hafa ekki komist að samkomulagi um famlengingu á samningi lengra en til loka komandi tímabils.

Toto Wolff, keppnisstjóri Mercedes vonaðist til að það tækist að ljúka samningum í desember en það tókst ekki. Hann er þó enn bjartsýnn á að samningar takist.

„Það liggur ekkert á ennþá, við munum ræða þetta á tímabilinu,“ sagði Wolff aðspurður um stöðu samningaviðræðanna.

Wolff hefur þegar ákveðið hvaða ökumenn hann ætlar að tala við, Alonso er þar efstur á lista. Spánverjinn samndi nýverið við McLaren. Sá samningur er til margra ára en líklega er ákvæði í honum sem heimilar Alonso að hverfa á brott ef bíllinn er ekki nógu góður.

„Ég er bjartsýnn á að okkur takist að hala núverandi ökumönnum. Takist það ekki er Alonso besti kosturinn, á eftir honum Valtteri Bottas,“ sagði Wolff.

„Hann er hættulegur andstæðingur í öllum bílum, ef hann er í bíl sem getur aðeins náð sjötta sæti tekst honum samt að enda í þriðja,“ sagði Wolff um Alonso.


Tengdar fréttir

Red Bull óttast meiri yfirburði Mercedes 2015

Red Bull liðið gerir ekki ráð fyrir að eiga roð í Mercedes á næsta tímabili. Red Bull telur að yfirburðir þýska risans verði líklega meiri en í þeir voru í ár.

Force India vill keppa við Williams

Force India bindur vonir við framfarir sem liðið hefur þegar fundið. Markið er sett hátt. Stefnan er að keppa við Williams á næsta tímabili.

Hamilton stefnir á sjö ár í viðbót

Lewis Hamilton segist vilja vera sjö ár í viðbót í Formúlu 1. Ef honum tekst ætlan sín þá er ferill hans í Formúlu 1 hálfnaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×