Kansas meistari í fyrsta sinn í 20 ár Lið Kansas varð í nótt bandaríkjameistari í háskólakörfuboltanum þegar það lagði Memphis 75-68 í æsilegum og framlengdum úrslitaleik í San Antonio í Texas. Körfubolti 8. apríl 2008 09:36
Stoke tapaði á heimavelli Stoke tapaði fyrir Crystal Palace 1-2 á heimavelli sínum í kvöld. Stoke missti þar með af dýrmætum stigum en liðið situr í öðru sæti 1. deildarinnar. Enski boltinn 7. apríl 2008 20:47
Tímabilið búið hjá Onuoha Flest bendir til að tímabilinu sé lokið hjá varnarmanninum unga Nedum Onuoha hjá Manchester City. Þessi enski U21 landsliðsmaður meiddist í árekstri við John Obi Mikel, leikmann Chelsea, um helgina. Enski boltinn 7. apríl 2008 19:45
Hyypia framlengir við Liverpool Finnski varnarmaðurinn Sami Hyypia hefur samþykkt að framlengja samningi sínum við Liverpool til sumarsins 2009. Hann mun því sigla inn í sitt tíunda leiktímabil á Anfield. Enski boltinn 7. apríl 2008 18:00
Alves er leikmaður 33. umferðar Brasilíski framherjinn Alfonso Alves sló í gegn um helgina þegar hann skoraði bæði mörk Middlesbrough í 2-2 jafntefli liðsins gegn Manchester United. Enski boltinn 7. apríl 2008 16:20
Meiri forföll í vörn United Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United er eflaust farinn að svitna yfir varnarmönnum sínum eftir að Rio Ferdinand haltraði af velli í leik liðsins gegn Middlesbrough í gær. Enski boltinn 7. apríl 2008 11:42
Rosicky úr leik hjá Arsenal Tékkneski miðjumaðurinn Tomas Rosicky hjá Arsenal spilar ekki meira með liðinu á leiktíðinni vegna hnémeiðsla og á ekki góðar vonir um að spila með Tékkum á EM í sumar. Enski boltinn 7. apríl 2008 11:34
Cech meiddist aftur Tékkneski markvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea fékk högg á höfuðið á æfingu í gær og talið er að hann sé tæpur fyrir síðari leikinn gegn Fenerbahce á þriðjudaginn. Enski boltinn 7. apríl 2008 11:20
Crouch er raunsær Framherjinn Peter Crouch svaraði kallinu um helgina þegar hann var settur í byrjunarlið Liverpool gegn Arsenal. Hann skoraði mark Liverpool í leiknum, en segist gera sér grein fyrir að framtíð hans sé óráðin hjá félaginu. Enski boltinn 7. apríl 2008 11:00
Þú kaupir ekki titla Brasilíumaðurinn Deivid hjá tyrkneska liðinu Fenerbahce hefur sent Chelsea skýr skilaboð fyrir síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 7. apríl 2008 10:53
Er ekki viss um að Ronaldinho vilji spila í InterToto Breskir fjölmiðlar fullyrða að forráðamenn Manchester City ætli af alvöru að blanda sér í kapphlaupið um Brasilíumanninn Ronaldinho hjá Barcelona í sumar. Enski boltinn 7. apríl 2008 10:35
Cardiff í úrslitaleikinn Það verður Cardiff sem mætir Portsmouth í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar. Cardiff vann Barnsley 1-0 í undanúrslitaleik á Wembley með marki Joe Ledley á 9. mínútu leiksins. Enski boltinn 6. apríl 2008 16:44
Everton vann Derby Everton heldur enn í vonina um fjórða sætið eftir að hafa unnið 1-0 baráttusigur á föllnu liði Derby. Fyrri hálfleikur var tíðindalítill en heimamenn tryggðu sér sigur í seinni hálfleik. Enski boltinn 6. apríl 2008 15:56
Leikirnir sem toppliðin eiga eftir Mikil spenna er í ensku úrvalsdeildinni og allt útlit er fyrir að meistaratitillinn fari til Manchester United eða Chelsea. Aðeins eru fimm umferðir eftir. Enski boltinn 6. apríl 2008 14:58
Man Utd fékk aðeins stig á Riverside Middlesbrough og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í bráðskemmtilegum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir þessi úrslit er forysta United á Chelsea aðeins þrjú stig. Enski boltinn 6. apríl 2008 14:17
Ferguson: Það er ekki hægt að stoppa Ronaldo Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist þess fullviss að það sé ekki hægt að stoppa Cristiano Ronaldo jafnvel þótt menn reyni að sparka honum út af vellinum. Þessi skilaboð sendir hann til leikmanna Roma sem eru argir eftir frábærra frammistöðu Portúgalans gegn þeim í meistaradeildinni. Enski boltinn 5. apríl 2008 17:37
Chelsea minnkar forystu United niður í tvö stig Chelsea bar sigurorð af Manchester City, 2-0, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag og minnkaði forystu Manchester United á toppi deildarinnar niður í tvö stig. Ensku meistararnir eiga leik til góða, gegn Middlesbrough á morgun. Enski boltinn 5. apríl 2008 16:07
Kanu: Þetta var fyrir stuðningsmennina Nígeríski framherjinn Nwankwo Kanu var hetja Portsmouth í leiknum gegn West Brom í dag og skaut liðinu í úrslitaleik bikarkeppninnar með sigurmarki sínu. Hann sagðist ekki hafa viljað valda stuðningsmönnum Portsmouth vonbrigðum. Enski boltinn 5. apríl 2008 15:19
Kevin Phillips: Áttum ekki skilið að tapa Kevin Phillips, framherji West Brom, var niðurbrotinn eftir tapið gegn Portsmouth í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í dag og sagði sitt lið ekki hafa átt skilið að tapa. Enski boltinn 5. apríl 2008 15:09
Hermann Hreiðarsson: Toppurinn á ferlinum Hermann Hreiðarsson var í skýjunum þegar Vísir ræddi við hann skömmu eftir að ljóst var að hann og félagar hans í Portsmouth væru komnir í bikarúrslitaleikinn. Þetta er í fyrsta sinn sem Hermann kemst í úrslit þessarar fornfrægu keppni. Enski boltinn 5. apríl 2008 14:55
Aftur jafnt hjá Arsenal og Liverpool Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1-1, á Emirates-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Peter Crouch kom Liverpool yfir á 41. mínútu en Daninn Nicklas Bendtner jafnaði metin fyrir Arsenal á 54. mínútu. Enski boltinn 5. apríl 2008 13:44
Hermann og félagar í bikarúrslitin Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth tryggðu sér í dag sæti í úrslitum enska bikarsins með því að leggja West Brom að velli, 1-0. Það var Nígeríumaðurinn Nwankwo Kanu sem skoraði sigurmarkið á 53. mínútu. Enski boltinn 5. apríl 2008 13:13
Bendtner jafnar fyrir Arsenal Danski framherjinn Nicklas Bendtner er búinn að jafna fyrir Arsenal gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Markið kom á 54. mínútu og skallaði Bendtner fyrirgjöf Cesc Fabregas í netið. Enski boltinn 5. apríl 2008 12:35
Kanu kemur Portsmouth yfir Portsmouth er komið yfir, 1-0, gegn West Brom undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley. Markið skoraði framherjinn Nwankwo Kanu á 53. mínútu en hann fylgdi á eftir skoti frá Milan Baros. Enski boltinn 5. apríl 2008 12:32
Markalaust í hálfleik hjá Hermanni og félögum Nú hefur verið flautað til hálfleiks í leik Portsmouth og West Brom í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley. Enn hefur ekkert mark verið skorað. Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth og spilar sem vinstri bakvörður. Enski boltinn 5. apríl 2008 12:07
Gerrard og Torres á bekknum Nú er hafinn leikur Arsenal og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Þegar stundarfjórðungur er liðinn af leiknum er markalaust. Mesta athygli vekur að tvær helstu stjörnur Liverpool, Steven Gerrard og Fernando Torres, eru á bekknum. Enski boltinn 5. apríl 2008 12:03
Hermann í byrjunarliði Portsmouth Hermann Hreiðarsson verður í byrjunarliði Portsmouth sem mætir West Brom í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley í dag. Hermann átti við meiðsli að stríða alla síðustu viku en stóðst læknisskoðun í gær. Enski boltinn 5. apríl 2008 10:38
Vofa Mourinho mun alltaf elta Grant Avram Grant, þjálfari Chelsea, segist gera sér grein fyrir því að hann muni aldrei fá stuðningsmenn Chelsea til að gleyma Jose Mourinho jafnvel þótt hann vinni titla með félaginu. Enski boltinn 5. apríl 2008 10:14
Hermann með gegn West Brom Hermann Hreiðarsson verður í leikmannahópi Portsmouth sem mætir West Brom í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley á morgun. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Hermanns, við Vísi í kvöld. Enski boltinn 4. apríl 2008 20:20
Stutt í undirskrift Ferdinand Rio Ferdinand mun væntanlega undirrita nýjan samning við Manchester United fljótlega ef marka má ummæli Sir Alex Ferguson í dag. Varnarmaðurinn hefur verið í ágætu formi í vetur og tók við fyrirliðabandinu hjá landsliðinu á dögunum. Enski boltinn 4. apríl 2008 17:00