Enski boltinn

Enski boltinn

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.

Leikirnir





    Fréttamynd

    Liverpool blæs á kjaftasögur

    Liverpool hefur neitað þeim sögusögnum að Fernando Torres gæti verið á leið til Chelsea. Þessi 24 ára spænski sóknarmaður var orðaður við þá bláu eftir að Luiz Felipe Scolari var ráðinn knattspyrnustjóri.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Deco sagður fara til Chelsea

    Heimildamaður BBC á EM segir að miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona muni ganga í raðir Chelsea fljótlega. Portúgalinn hefur fengið leyfi frá Barcelona til að ræða við önnur félög og mun að sögn BBC fylgja landsliðsþjálfara sínum Luiz Felipe Scolari til Lundúna eftir EM.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Ramsey til Arsenal

    Arsenal gekk í dag formlega frá kaupum á velska landsliðsmanninum Aaron Ramsey frá Cardiff. Hinn 17 ára gamli miðjumaður hafði verið eftirsóttur af fjölda liða á Englandi, þar á meðal Manchester United. Kaupverðið var ekki gefið upp en talið er að það sé í kring um 5 milljónir punda.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Murphy framlengir við Fulham

    Miðjumaðurinn Danny Murphy hefur skrifað undir nýjan samning við enska úrvalsdeildarfélagið Fulham og er því samningsbundinn út næstu leiktíð. Murphy skoraði markið sem tryggði Fulham áframhaldandi veru í úrvalsdeildinni í vor.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Chelsea getur gleymt Kaka

    AC Milan hefur tilkynnt Chelsea að enska félagið geti gleymt því að fá brasilísku ofurstjörnuna Kaka. Luis Felipe Scolari, nýr stjóri Chelsea, er mikill aðdáandi Kaka og sambandið milli þeirra tveggja mjög gott.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Ramos stoltur af áhuga United

    Varnarmaðurinn Sergio Ramos er nú orðaður við Evrópumeistara Manchester United. Ramos sagði í viðtali við spænska útvarpsstöð að hann væri stoltur af áhuga United og mál myndu skýrast frekar eftir Evrópumótið.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Roma á eftir Ljungberg

    Ítalskir fjölmiðlar halda því fram í dag að úrvalsdeildarliðið Roma sé ekki langt frá því að lokka Freddie Ljungberg til félagsins.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Aston Villa hafnaði Liverpool aftur

    Aston Villa hefur hafnað öðru tilboði Liverpool í Gareth Barry. „Tilboðið sem við fengum var aðeins skárra en afstaða okkar hefur ekkert breyst,“ sagði talsmaður Aston Villa.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Shearer sagði "nei takk" við Blackburn

    Alan Shearer hefur afþakkað að komast á óskalista forráðamanna Blackburn sem næsti knattspyrnustjóri félagsins. Shearer sagðist ætla að einbeita sér að því að vinna fyrir Sky sjónvarpsstöðina þegar hann var spurður út í málið í kvöld.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Scolari tekur við Chelsea 1. júlí

    Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Luiz Felipe Scolari muni hefja störf sem knattspyrnustjóri liðsins þann 1. júlí nk. Scolari stýrir nú landsliði Portúgal á EM.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Eduardo á góðum batavegi

    Króatinn Eduardo da Silva hjá Arsenal er á undraverðum batavegi eftir að hafa fótbrotnað illa í leik í febrúar. Læknir Arsenal segir mögulegt að Eduardo gæti byrjað að æfa með Arsenal á undirbúningstímabilinu síðar í sumar, en talið var að hann yrði frá keppni í 9-12 mánuði.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Barry vill fara til Liverpool

    Umboðsmaður miðjumannsins Gareth Barry hjá Aston Villa hefur nú staðfest að Barry hafi farið þess á leit við forráðamenn Villa að fá að fara til Liverpool í sumar.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Zico orðaður við Chelsea

    Brasilíumaðurinn Zico er orðaður við stöðu knattspyrnustjóra Chelsea. Þessi brasilíska goðsögn er hætt hjá tyrkneska liðinu Fenerbahce. Zico var orðaður við Manchester City en Mark Hughes tók við City í síðustu viku.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Arsenal vann baráttuna um Ramsey

    Aaron Ramsey er á leið til Arsenal frá Cardiff en þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins. Manchester United og Everton voru einnig á eftir þessum efnilega sautján ára leikmanni.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Chelsea sagt hafa ráðið Scolari

    Enska dagblaðið Daily Mail heldur því fram í dag að félagið hafi ráðið nýjan knattspyrnustjóra í síðustu viku. Allt bendi til þess að það sé Luiz Felipe Scolari.

    Enski boltinn