Inter gefst ekki upp á Lampard Ítalíumeistarar Inter munu koma með nýtt tilboð í miðjumanninn Frank Lampard í dag samkvæmt heimildum BBC. Chelsea neitaði tilboði upp á 7,95 milljónir punda í gær. Enski boltinn 9. júlí 2008 09:59
Crouch búinn að ná samningum við Portsmouth Peter Crouch hefur náð samkomulagi við Portsmouth um kaup og kjör og mun hann því verða endanlega leikmaður félagsins í dag eða á morgun. Enski boltinn 9. júlí 2008 09:52
Carew vill enda ferilinn hjá Villa John Carew segist vilja enda feril sinn hjá Aston Villa. Hann hefur sinn feril flakkað mikið um Evrópu og átt erfitt með að festa rætur. Enski boltinn 8. júlí 2008 18:00
Hleb segir ummælin vera uppspuna Alexander Hleb hefur neitað því að hafa talað illa um Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, og liðsfélaga sinn, Cesc Fabregas. Hleb hefur sterklega verið orðaður við Barcelona. Enski boltinn 8. júlí 2008 16:24
Lampard ánægður hjá Chelsea Luiz Felipe Scolari segir að Frank Lampard sé ánægður hjá Chelsea og að hann vilji vera í herbúðum félagsins næstu árin. Enski boltinn 8. júlí 2008 15:33
Ajax ekkert heyrt í Arsenal Hollenska félagið Ajax segist ekkert hafa heyrt frá Arsenal varðandi mögulegt kauptilboð í sóknarmanninn Klaas-Jan Huntelaar. Enski boltinn 8. júlí 2008 14:30
Scolari vill halda Drogba Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að sóknarmaðurinn Didier Drogba sé í áætlunum sínum. Drogba hefur verið orðaður við Barcelona, AC Milan og Inter. Enski boltinn 8. júlí 2008 13:32
Chelsea neitaði beiðni Inter Chelsea hefur staðfest að hafa fengið beiðni frá Ítalíumeisturum Inter sem vilja ræða um hugsanleg kaup á Frank Lampard. Chelsea hefur svarað þessari beiðni neitandi, Lampard muni verða áfram hjá liðinu. Enski boltinn 8. júlí 2008 10:29
Illa komið fram við Barry Martin Laursen segir að Gareth Barry sé sár yfir því hvernig Aston Villa kemur fram við hann eftir ellefu ára veru hjá félaginu. Barry vill fara til Liverpool og Villa hefur sagt honum að halda sig frá félagssvæðinu meðan gengið er frá sölunni. Enski boltinn 8. júlí 2008 10:06
Hleb ósáttur við Wenger Alexander Hleb er líklega á leið frá Arsenal og til Barcelona. Hann segir að slæm samskipti sín og knattspyrnustjórans Arsene Wenger sé ein helsta ástæða þess að hann vilji yfirgefa enska liðið. Enski boltinn 8. júlí 2008 09:49
Johnson eftirsóttur Wigan og Sunderland hafa bæði áhuga á að kaupa Andrew Johnson, sóknarmann Everton. David Moyes, stjóri Everton, hefur gefið það út að þessi 27 ára leikmaður sé ekki til sölu. Enski boltinn 8. júlí 2008 09:30
Newcastle neitar sögum um Bin Laden Newcastle neitar fréttaflutningi þess efnis að fyrirtæki í eigu Osama Bin Laden hafi áhuga á að kaupa félagið. Saudi Binladen Group (SBG) var sagt vera að íhuga að kaupa félagið á 300 milljónir punda. Enski boltinn 7. júlí 2008 17:14
Ronaldo undir hnífinn Cristiano Ronaldo fór í aðgerð á ökkla í dag. Aðgerðin var framkvæmd í Amsterdam í Hollandi en þessi ökklameiðsli hafa verið að hrjá hann um nokkurt skeið. Enski boltinn 7. júlí 2008 14:48
Viðræður milli Chelsea og Inter um Lampard hafnar Samkvæmt heimildum BBC eru viðræður milli Ítalíumeistara Inter og enska stórliðsins Chelsea um hugsanleg kaup á Frank Lampard hafnar. Ítalska liðið vill fá Lampard í leikmannahóp sinn. Enski boltinn 7. júlí 2008 14:31
Liverpool búið að taka tilboði í Crouch Portsmouth hefur fengið leyfi frá Liverpool til að hefja viðræður við sóknarmanninn Peter Crouch. Liverpool hafnaði tilboði upp á níu milljónir punda í lok síðasta mánaðar en hefur tekið nýju tilboði Portsmouth. Enski boltinn 7. júlí 2008 13:13
Leit AC Milan að sóknarmanni í fullum gangi AC Milan ætlar sér að krækja í sóknarmann í sumar en þar eru Didier Drogba hjá Chelsea og Emmanuel Adebayor hjá Arsenal ofarlega á blaði. Leonardo, stjórnarmaður hjá ítalska liðinu, staðfestir þetta. Enski boltinn 7. júlí 2008 12:45
Kewell sendi opið bréf til stuðningsmanna Leeds Harry Kewell hefur sent frá sér opið bréf til stuðningsmanna Leeds United þar sem margir þeirra eru honum reiðir fyrir þá ákvörðun að ganga til liðs við Galatasaray í Tyrklandi. Enski boltinn 7. júlí 2008 11:30
Queiroz að taka við Portúgal? Carlos Queiroz, aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United, gæti verið á leið frá Englands- og Evrópumeisturunum. Knattspyrnusamband Portúgals vill fá hann sem næsta landsliðsþjálfara. Enski boltinn 7. júlí 2008 09:31
Crouch færist nær Portsmouth Portsmouth vill fá Peter Crouch, sóknarmann Liverpool, í sínar raðir. Viðræður milli þessara félaga fóru fram um helgina og þokast þær í rétta átt. Enski boltinn 7. júlí 2008 09:17
Wenger: Arsenal verður að selja leikmenn Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félagið gæti þurft að selja sína bestu leikmenn í burtu frá félaginu um ókomin ár til að gæta að rekstrinum. Hann er ósáttur við stöðuna á leikmannamarkaðnum í nútímaknattspyrnu. Enski boltinn 6. júlí 2008 19:00
Huntelaar: United hefur áhuga á mér Hollenski framherjinn Klaas Jan Huntelaar hjá Ajax segir að Manchester United hafi sýnt sér áhuga að undanförnu og að félagið sé ekki það eina á Englandi sem verið hafi með fyrirspurnir. Enski boltinn 6. júlí 2008 18:30
Calderon að gefast upp á Ronaldo Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segist reikna með því að Cristiano Ronaldo verði áfram í herbúðum Manchester United á næsta tímabili. Enski boltinn 6. júlí 2008 17:45
Óttast að Joey Barton stytti sér aldur Sam Allardyce, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, segist óttast að Joey Barton stytti sér aldur ef hann verði látinn fara frá félaginu í vegna vandamála hans utan vallar. Enski boltinn 6. júlí 2008 15:18
Rooney blankur eftir brúðkaupið Breska helgarblaðið News of the World segir að fjárhagur knattspyrnumannsins Wayne Rooney sé ekki upp á marga fiska eftir annasamt sumar. Rooney gekk að eiga unnustu sína Coleen McLoughlin fyrir skömmu og það kostaði sitt. Enski boltinn 6. júlí 2008 14:31
Megum ekki við því að missa Keane Gus Poyet, aðstoðarstjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, segir að félagið megi alls ekki við því að missa írska markahrókinn Robbie Keane úr sínum herbúðum í sumar. Keane hefur verið orðaður mikið við Liverpool að undanförnu. Enski boltinn 6. júlí 2008 14:25
Chelsea hefur boðið í Kaka Varaforseti AC Milan segir að Chelsea hafi gert félaginu kauptilboð í brasilíska miðjumanninn Kaka, en hann sé ekki til sölu. Þá hafi mörg félög gert fyrirspurnir í Andrea Pirlo. Enski boltinn 6. júlí 2008 14:21
Ronaldinho hefur neitað City Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, fullyrðir að Brasilíumaðurinn Ronaldinho hjá Barcelona hafi neitað umleitunum Manchester City og muni þess í stað ganga í raðir Milan í sumar. Enski boltinn 6. júlí 2008 14:14
Boateng á leið til Hull? Enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough hefur gefið öðru ónefndu félagi leyfi til að hefja viðræður við miðjumanninn George Boateng, en talið er að það séu nýliðar Hull City. Hinn 32 ára gamli Hollendingur er ekki talinn eiga framtíð fyrir sér hjá Boro, en talið er að fleiri félög í úrvalsdeildinni gætu haft áhuga á kröftum hans í sumar. Enski boltinn 6. júlí 2008 14:10
Torres þakkar Benitez árangurinn á árinu Spænski framherjinn Fernando Torres þakkar þeim Rafa Benitez og Steven Gerrard að hluta fyrir þann árangur sem hann hefur náð á knattspyrnuvellinum síðustu misseri. Enski boltinn 5. júlí 2008 16:37
Ekki pláss fyrir Adebayor og Eto´o hjá Barcelona Spænska blaðið Marca hefur gert sér mikinn mat úr meintum áhuga Barcelona á framherjanum Emmanuel Adebayor hjá Arsenal að undanförnu. Enski boltinn 5. júlí 2008 14:45
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti