Enski boltinn

Enski boltinn

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.

Leikirnir





    Fréttamynd

    Fowler á leið til Blackburn

    Forráðamenn Blackburn hafa staðfest að félagið hafi samþykkt samning við Robbie Fowler og að hann gæti þess vegna spilað með liðinu strax gegn Arsenal um helgina.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Hiddink hunsar Tottenham

    Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Rússlands, ætlar að nota framherjan Roman Pavlyuchenko í leik Rússa gegn Wales á morgun þrátt fyrir beiðni Tottenham um að gefa honum frí.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Essien með slitið krossband í hné

    Chelsea verður án Michael Essien næsta hálfa árið að minnsta kosti eftir í ljós kom að hann hafði slitið krossband í hné í landsleik Gana og Libíu í Trípólí á föstudaginn.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Zola eða Donadoni?

    Enskir fjölmiðlar telja að valið hjá West Ham standi milli Gianfranco Zola og Roberto Donadoni. Félagið er í leit að knattspyrnustjóra í stað Alan Curbishley sem lét af störfum í síðustu viku.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Newcastle hafði samband við Lotina

    Miguel Angel Lotina, þjálfari Deportivo La Coruna á Spáni, segir að forráðamenn Newcastle hafi haft samband við sig og viljað ræða við hann um knattspyrnustjórastöðu félagsins.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Laudrup til Moskvu en ekki London

    Daninn Michael Laudrup mun ekki taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá West Ham. Það varð ljóst í dag þegar hann samþykkti að taka við þjálfun Spartak Moskvu.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Gerrard ekki með gegn United

    Miðjumaðurinn Steven Gerrard segir það ljóst að hann geti ekki spilað gegn Manchester United. Hann er að jafna sig eftir aðgerð vegna meiðsla sem hann hefur verið að glíma við.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Verstu hárgreiðslur enska boltans

    Það hafa margir kostulegir kappar komið við sögu í ensku úrvalsdeildinni sem vakið hafa athygli fyrir ýmislegt annað en fótboltakunnáttu. Blaðamenn The Sun hafa tekið saman lista yfir verstu hárgreiðslur sem sést hafa í deildinni og má sjá listann hér að neðan.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Zola og Donadoni vöktu hrifningu

    Mike Lee, framkvæmdastjóri hjá West Ham, segir að Ítalarnir Gianfranco Zola og Roberto Donadoni hafi báðir komið afar vel út úr viðtölum sínum vegna knattspyrnustjórastöðunnar hjá félaginu.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Berbatov fær ekki að reykja hjá United

    Dimitar Berbatov mun þurfa að bæta líkamlegt form sitt ef hann ætlar sér að vinna sér sæti í liði Manchester United og þá verður hann líka að hætta að reykja. Þetta segir heimildamaður helgarblaðsins News of the World.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Sá dýrasti í sögu enska boltans

    Brasilíumaðurinn Robinho varð dýrasti leikmaðurinn í sögu ensku knattspyrnunnar þegar hann gekk óvænt í raðir Manchester City. Robinho er fyrsta púslið í meistaraliði hinna arabísku eigenda félagsins.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Cole bjargaði arfaslökum Englendingum

    Joe Cole var hetja Englendinga í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á smáliði Andorra í undankeppni HM. Leikurinn var nánast endurtekning á síðustu viðureign liðanna þar sem stuðningsmenn enska liðsins bauluðu á sína menn í hálfleik í stöðunni 0-0.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Ferdinand verður ekki með Englendingum

    Varnarmaðurinn Rio Ferdinand verður ekki með enska landsliðinu í opnunarleik þess gegn Andorra í undankeppni HM á morgun. Ferdinand er meiddur á hálsi en Fabio Capello landsliðsþjálfari reiknar með honum í leikinn mikilvæga gegn Króötum á miðvikudaginn í næstu viku.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    West Ham fær varnarmann

    Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur gengið frá samningi við 22 ára gamlan varnarmann frá Úrúgvæ. Sá heitir Walter Lopez og á að baki þrjá landsleiki fyrir þjóð sína, en hann var með lausa samninga eftir að hafa leikið með River Plate.

    Enski boltinn