Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segist aldrei hafa séð aðra eins óráðsíu og hjá FTX Nýr forstjóri fallna rafmyntarfyrirtækisins FTX segist aldrei hafa séð aðra eins óstjórn og þá sem átti sér stað hjá félaginu. Hann átti engu að síður þátt í að greiða úr flækjunni eftir fall Enron sem er talið eitt subbulegasta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. 17.11.2022 22:11
Norska Elkjøp bakkar út og gefur Amnesty auglýsingaplássin í tengslum við HM Fáeinum dögum fyrir HM í knattspyrnu í Katar hefur norski raftækjasölu risinn Elkjøp ákveðið að hætta sem kostunaraðili HM-útsendinga sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Fyrirtækið mun þess í stað gefa mannréttindasamtökunum Amnesty auglýsingaplássin. 17.11.2022 16:25
Fjárfestir í FTX stefnir Bankman-Fried, Bündchen, Curry og fleirum Fjárfestir í rafmyntakauphöllinni FTX hefur stefnt fyrrverandi forstjóra og stofnenda hennar, Sam Bankman-Fried, og ellefu stjörnum sem auglýstu kauphöllina. Sá sem stefnir kauphöllinni segir þau kærðu hafa valdið því að fólk tapaði milljörðum dollara. 17.11.2022 11:20
Ætlar að fá annan til að stýra Twitter Elon Musk, eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, segist ætla að draga úr afskiptum sínum af miðlinum og fá einhvern annan til að stýra fyrirtækinu. Sá stutti tími sem Musk hefur átt Twitter hefur verið stormasamur svo vægt sé til orða tekið. 16.11.2022 22:52
Lengri vinnudagar hjá „harðara“ Twitter 2,0 Auðjöfurinn Elon Musk hefur gefið þeim starfsmönnum Twitter sem enn vinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu frest út daginn á morgun til að sverja þess heit að skuldbinda sig til að vinna lengri vinnudaga hjá „harðara“ Twitter. Geri þau það ekki verði þeim sagt upp. 16.11.2022 15:13
Bezos segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna Jeff Bezos, stofnandi vefverslunarrisans Amazon og einn ríkasti maður heims, segist ætla að gefa meirihluta auðæfa sinna á lífsleiðinni. Ríkidæmi Bezos eru metin á um 124 milljarða dollara, jafnvirði meira en 18.000 milljarða íslenskra króna, þessa stundina. 14.11.2022 23:51
Kaup á bláu haki Twitter valda usla í raunheimum Á dögunum opnaði samfélagsmiðillinn Twitter fyrir að fólk gæti keypt sér bláa hakið við hlið nafns síns sem gefur til kynna að um hinn rétta aðila sé að ræða. Í kjölfar nýju stefnunnar hafa gervi aðgangar sprottið upp og verið notendum til mikils ama. 12.11.2022 17:53
Óreiðan virðist ráða ríkjum hjá Twitter Frá því auðjöfurinn Elon Musk tók við stjórn samfélagsmiðilsins Twitter hefur mikil óreiða ríkt þar. Musk varaði við því í nótt að gjaldþrot kæmi til greina en fyrr í gærkvöldi hafði hann sagt stöðu fyrirtækisins vera erfiða en margir af æðstu yfirmönnum fyrirtækisins hafa sagt upp á undanförnum dögum. 11.11.2022 14:59
FTX fer fram á endurskipulagningu og forstjórinn víkur Rafmyntarfyrirtækið FTX óskaði eftir því að vera tekið til endurskipulagningar á grundvelli laga um gjaldþrot í Bandaríkjunum í dag. Þá var greint frá því að forstjórinn Sam Bankman-Fried hefði sagt af sér. 11.11.2022 14:43
Frystu eignir FTX-rafmyntarkauphallarinnar Hrakfarir rafmyntarkauphallarinnar FTX sem varð fyrir áhlaupi innistæðueigenda í vikunni halda áfram. Yfirvöld á Bahamaeyjum frystu eignir dótturfélags FTX og þá berast fréttir af því að bandarísk yfirvöld rannsaki möguleg lögbrot stofnanda félagsins. 11.11.2022 08:54
Musk segir horfur Twitter alvarlegar Auðjöfurinn Elon Musk, nýr eigandi Twitter, sendi í nótt bréf á þá starfsmenn fyrirtækisins sem vinna þar enn eftir uppsagnir síðustu viku. Í bréfinu sagði hann að allir um fjögur þúsund starfsmenn Twitter þurfi að verja öllum sínum vinnudögum í höfuðstöðvum fyrirtækisins og að ástandið á fyrirtækinu væri „alvarlegt“. 10.11.2022 17:10
Rafmyntarrisi rambar á barmi þrots Gengi helstu rafmynta heims tók dýfu eftir að ljóst varð að FTX, ein af stærstu rafmyntarkauphöllum heims yrði ekki bjargað af keppinauti sínum. FTX er sagt ramba á barmi þrots í skugga frétta um að viðskiptahættir fyrirtækisins séu til rannsóknar hjá bandarískum yfirvöldum. 10.11.2022 11:00
Segir upp ellefu þúsund manns Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, móðurfélags Facebook, tilkynnti í morgun að um ellefu þúsund starfsmönnum fyrirtækisins yrði sagt upp. Það samsvarar um þrettán prósentum af starfsmönnum Meta en forsvarsmenn fyrirtækisins ætla einnig að grípa til fleiri aðgerða til að hagræða í restri þess. 9.11.2022 12:03
Musk selur enn fleiri bréf í Tesla Elon Musk, ríkasti maður jarðar, seldi á dögunum hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla fyrir tæpa fjóra milljarða Bandaríkjadala. 9.11.2022 06:45
Stoltur andstyrktaraðili HM í Katar Skoska brugghúsið BrewDog hefur lýst því yfir að vera „stoltur andstyrktaraðili“ heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fer fram í Katar. Allur ágóði af sölu einnar bjórtegundar brugghússins mun renna til góðgerðasamtaka sem leggja áherslu á mannréttindi. 8.11.2022 10:59
Ný áskriftarleið á Twitter í loftið Twitter kynnir formlega nýja áskriftarleið þar sem notendum miðilsins býðst að kaupa vottun á aðgangi sínum fyrir 8 bandaríkjadali, eða tæpar tólf hundruð krónur, á mánuði. 5.11.2022 21:35
Þúsundum starfsmanna sagt upp Elon Musk hefur sagt upp rúmlega helmingi starfsmanna samfélagsmiðilsins Twitter. Musk er sagður hafa lagt niður heilu deildirnar, þar á meðal deild sem á að sporna gegn dreifingu falsfrétta og röngum eða villandi upplýsingum á miðlinum. 4.11.2022 23:00
Kvartar undan tekjutapi Twitter Auðjöfurinn Elon Musk, nýr eigandi Twitter, segir fyrirtækið hafa orðið fyrir miklu tekjutapi því auglýsendur hafi hætt að auglýsa á samfélagsmiðlinum. Til stendur að segja upp stórum hópi starfsmanna fyrirtækisins, viku eftir að Musk eignaðist Twitter og tók fyrirtækið af hlutabréfamarkaði. 4.11.2022 16:57
Musk leitar nýrra tekjulinda fyrir Twitter Auðjöfurinn Elon Musk vinnur hörðum höndum að því að auka tekjur samfélagsmiðlafyrirtækisins Twitter, sem hann keypti nýverið. Mestar tekjur Twitter eru til komnar vegna auglýsingasölu en því vill Musk breyta. Þá þarf hann að auka tekjur fyrirtækisins vegna mikilla skulda sem það tók á sig við yfirtöku hans. 2.11.2022 12:19
Rasistar og tröll nýta sér tækifærið á Twitter Í kjölfar þess að auðjöfurinn Elon Musk tók yfir stjórn samfélagsmiðilsins Twitter er útlit fyrir að fjölmargir rasistar og nettröll hafi nýtt sér tækifærið til að básúna hatri sínu og leiðindum á samfélagsmiðlinum en Musk segist ætla að leggja mikla áherslu á málfrelsi á Twitter og eru uppi miklar vangaveltur um það hvernig ritstjórn mun fara fram. 29.10.2022 13:44
Elon Musk orðinn eini eigandi Twitter Elon Musk, ríkasti maður jarðar, hefur nú eignast samfélagsmiðilinn Twitter með húð og hári. Hann hefur látið reka flesta af æðstu stjórnendum fyrirtækisins. 28.10.2022 06:27
Hagnaður Meta dróst saman um helming Virði hlutabréfa Meta, áður Facebook, hefur lækkað töluvert í kjölfar þess að fyrirtækið birti annað ársfjórðungsuppgjörið í röð þar sem tekjur hafa dregist saman. Félagið er nærri því að falla úr flokki tuttugu verðmætustu félaga Bandaríkjanna eftir mjög erfitt rekstrarár. 27.10.2022 12:16
Mætti með vask í höfuðstöðvar Twitter Auðjöfurinn Elon Musk er líklegur til að eignast samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter formlega í þessari viku. Í gær mætti hann í höfuðstöðvar fyrirtækisins í San Francisco með vask í fanginu. Frestur Musks til að kaupa fyrirtækið á um 44 milljarða dala rennur út á morgun og virðist sem yfirtakan sé langt komin. 27.10.2022 10:20
Samsung-erfinginn formlega orðinn forstjóri Suður-kóreski tæknirisinn Samsung hefur formlega skipað Lee Jae-yong, sem hefur áður hlotið dóm fyrir mútur og fjársvik, í embætti forstjóra fyrirtækisins. 27.10.2022 07:42
Adidas slítur samstarfi við West vegna hegðunar hans Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar að slíta samstarfi sínu við tónlistarmanninn Kanye West vegna endurtekinnar særandi hegðunar hans. West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum og í viðtölum og spúið gyðingahatri. 25.10.2022 10:25
WhatsApp lá niðri á heimsvísu tímabundið Samskiptaforritið WhatsApp liggur niðri á heimsvísu. Um tveir milljarðar manns nota forritið daglega. 25.10.2022 08:39
Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks Yfirtaka Elons Musks á Twitter mun leiða til mikillar aukningar skulda hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu og gera rekstur þess erfiðar. Greinendur búast við því að fyrirtækið muni bæta við sig um þrettán milljörðum dala við yfirtökuna. 24.10.2022 17:10
Ilse Jacobsen er látin Danski fatahönnuðurinn Ilse Rohde Jacobsen, sem meðal annars þekkt er fyrir hönnun á regnkápum, stigvélum, kjólum og öðrum fatnaði, er látin 62 ára að aldri. 24.10.2022 10:10
Netflix bætti upp áskrifendatap ársins á þriðja ársfjórðungi Netflix bætti við sig meira en tveimur milljónum áskrifenda á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Bætingin kemur eflaust einhverjum á óvart en streymisveitan missti tvö hundruð þúsund áskrifendur á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og nærri eina milljón áskrifenda á öðrum ársfjórðungi. 20.10.2022 19:42
Ye kaupir eigin samfélagsmiðil Listamaðurinn Ye, eða Kanye West, ætlar að kaupa Parler, sem er umdeildur og áhrifalítill samfélagsmiðill, skömmu eftir að hann var bannaður á Twitter og Instagram vegna færslna sem innihalda gyðingahatur. Ye segir samfélagsmiðla ekki halda uppi málfrelsi og því hafi hann keypt eigin miðil. 17.10.2022 20:43
Støre nýr forstjóri Advania-samsteypunnar Hin norska Hege Støre hefur tekið við sem nýr forstjóri Advania-samsteypunnar. Starfsmenn telja um fjögur þúsund á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Hún tekur við keflinu af Mikael Noaksson sem heldur þó áfram að starfa við hlið Støre og tekur sæti í stjórn samsteypunnar. 13.10.2022 08:16
Zuckerberg boðar vinnufundi í sýndarveruleika Í gær kynntu Meta, móðurfyrirtæki Facebook, og Microsoft samstarf sitt í kringum sýndarveruleika. Með samstarfi fyrirtækjanna mun fólk geta notað forrit á vegum Microsoft í sýndarveruleikagleraugum Meta. 12.10.2022 13:01
Ný Iphone-tækni ruglar rússíbanaferð saman við bílslys Svo virðist sem að ný tækni sem kynnt var til sögunnar með nýjustu gerð Iphone-síma bandaríska tæknirisans Apple geti ruglað rússíbanaferð saman við bílslys. 11.10.2022 22:57
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45. 10.10.2022 09:43
Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð. 9.10.2022 14:14
Porsche verðmætasti bílaframleiðandi Evrópu Porsche er orðinn verðmætasti bílaframleiðandi Evrópu. Félagið tók yfir Volkswagen í vikunni og er nú 85 milljarða dollara virði sem samsvarar tólf þúsund milljörðum íslenskra króna. 7.10.2022 12:26
Musk vildi þrjátíu prósenta afslátt Fulltrúar Elons Musks og Twitter eiga enn í viðræðum um kaupsamkomulag auðjöfursins á samfélagsmiðlafyrirtækinu. Viðræður um að Musk fengi allt að þrjátíu prósenta afslátt á kaupverðinu sem segir til um í kaupsamningi sem hann skrifaði undir í apríl. 6.10.2022 11:23
Skerða framleiðslu um tvær milljónir tunna Fulltrúar stærstu olíuframleiðenda heims komust í dag að þeirri niðurstöðu að draga olíuframleiðslu á heimsvísu um tvær milljónir tunna á dag. Þetta var ákveðið á fundi OPEC+ ríkjanna í Vínarborg en niðurstaðan mun líklegast leiða til hærra olíuverðs eða í það minnsta stöðva verðlækkun. 5.10.2022 14:23
OPEC líklegt til að draga verulega úr framleiðslu Fulltrúar OPEC-ríkjanna svokölluðu og Rússlands, munu funda í Vínarborg í dag og ræða olíuframleiðslu. Fastlega er búist við því að tekin verði ákvörðun um umfangsmikla framleiðsluskerðingu með því markmiði að hækka olíuverð. 5.10.2022 10:36
Twitter samþykkir kauptilboð Musk Samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter hefur ákveðið að samþykkja kauptilboð auðjöfursins Elon Musk fyrir 41 milljarð bandaríkjadala. Tíðindin bárust í tilkynningu frá fyrirtækinu rétt í þessu. 4.10.2022 19:50
Musk til í að standa við kaupin Elon Musk segist til í að standa við fyrirhuguð kaup á samfélagsmiðlinum Twitter. Musk hafði áður neitað að standa við kaupin en tvær vikur eru í að fyrirhuguð réttarhöld vegna meintra samningsbrota fari fram. Stjórn Twitter ætlar að hugsa málið. 4.10.2022 17:59
Réttarhöld hefjast í máli Bonnesen Réttarhöld hefjast í dag í máli Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra sænska stórbankans Swedbank, í Svíþjóð. Bonnesen er meðal annars ákærð fyrir gróf fjársvik og markaðsmisnotkun í tengslum við afhjúpun um stórfellt peningaþvætti í bankanum. 4.10.2022 08:03
Svindl, skandalar og gagnaleki gætu fellt Credit Suisse Virði hlutabréfa í svissneska bankanum Credit Suisse hefur aldrei verið lægra og talið er að allt að fimm þúsund manns verði sagt upp í mánuðinum. Fjárhagsstaða bankans er sögð vera afar slæm. 3.10.2022 08:01