Viðskipti erlent

Þúsundum starfs­manna sagt upp

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Musk er sagður hafa sagt upp öllum starfsmönnum Twitter sem unnið hafa gegn falsfréttum og upplýsingaóreiðu á samfélagsmiðlinum.
Musk er sagður hafa sagt upp öllum starfsmönnum Twitter sem unnið hafa gegn falsfréttum og upplýsingaóreiðu á samfélagsmiðlinum. Getty/Selim Korkutata

Elon Musk hefur sagt upp rúmlega helmingi starfsmanna samfélagsmiðilsins Twitter. Musk er sagður hafa lagt niður heilu deildirnar, þar á meðal deild sem á að sporna gegn dreifingu falsfrétta og röngum eða villandi upplýsingum á miðlinum.

Rúmlega 7.500 manns störfuðu hjá fyrirtækinu áður en Musk tók við sem nýr forstjóri í liðinni viku. Hann sagði fyrr í dag að fyrirtækið hafi orðið fyrir miklu tekjutapi vegna þess að auglýsendur hafi hætt að auglýsa á samfélagsmiðlinum. Aðgerðarsinnar hafi beitt auglýsendur þrýstingi: „Þau eru að reyna að ganga frá málfrelsi í Bandaríkjunum.“

Verge greinir frá því að helmingi starfsmanna miðilsins hafi nú þegar verið sagt upp. Skrifstofum fyrirtækisins hefur verið lokað tímabundið og slökkt var skyndilega á aðgangi fjölmargra starfsmanna.

„Þetta er ekkert sérstakt. Ég kemst ekki inn í tölvupóstinn minn, tölvan kveikir ekki á sér. En það er frábært að þetta sé að gerast klukkan þrjú um nótt, virkilega góð tímasetning,“ segir fyrrverandi starfsmaður við Guardian. Þeir sem ekki voru reknir fengu bréf þar sem þeim var sérstaklega tilkynnt að þeir væru enn starfsmenn fyrirtækisins.

Fjöldamestu uppsagnirnar hafi verið á sviði mannréttinda, siðferðis- og tölvutækni og samskipta. Eitt sviða sem lenti í fallöxi auðjöfursins sér meðal annars um dreifingu og aðgreiningu staðfestra upplýsinga þegar kosningar og stærri viðburðir eiga sér stað. Þá eru sum svið aðeins beinagrindin af því sem áður var, eins og kemur fram hjá Guardian. 

Réttindasamtök litaðra í Bandaríkjunum hafa kallað eftir því að fyrirtæki hætti að auglýsa á Twitter. Með yfirtöku Musk hafi rasismi grasserað enn frekar og samsæriskenningar breiðst út eins og eldur í sinu. 

Musk hefur sagt að hann hafi keypt Twitter með framtíð mannkyns í huga og að hann vilji ýta undir málfrelsi. Hann hefur lengi verið gagnrýninn á ritstjórn Twitter og leitað hörðum höndum að nýjum tekjulindum fyrir miðilinn.

Til álita er að opna fyrir nýja áskriftarleið þar sem hver sem er getur látið staðfesta (e. verify) aðgang sinn gegn smávæilegu gjaldi. Fyrrverandi starfsmenn óttast að innleiðing nýs kerfis í kjölfar fjöldauppsagna gæti haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Fyrirtækið gæti einfaldlega ekki sannreynt þann fjölda notenda sem mun reyna að nýta sér nýju áskriftarleiðina og það verði til aukinnar upplýsingaóreiðu.


Tengdar fréttir

Kvartar undan tekjutapi Twitter

Auðjöfurinn Elon Musk, nýr eigandi Twitter, segir fyrirtækið hafa orðið fyrir miklu tekjutapi því auglýsendur hafi hætt að auglýsa á samfélagsmiðlinum. Til stendur að segja upp stórum hópi starfsmanna fyrirtækisins, viku eftir að Musk eignaðist Twitter og tók fyrirtækið af hlutabréfamarkaði.

Musk leitar nýrra tekjulinda fyrir Twitter

Auðjöfurinn Elon Musk vinnur hörðum höndum að því að auka tekjur samfélagsmiðlafyrirtækisins Twitter, sem hann keypti nýverið. Mestar tekjur Twitter eru til komnar vegna auglýsingasölu en því vill Musk breyta. Þá þarf hann að auka tekjur fyrirtækisins vegna mikilla skulda sem það tók á sig við yfirtöku hans.

Rasistar og tröll nýta sér tækifærið á Twitter

Í kjölfar þess að auðjöfurinn Elon Musk tók yfir stjórn samfélagsmiðilsins Twitter er útlit fyrir að fjölmargir rasistar og nettröll hafi nýtt sér tækifærið til að básúna hatri sínu og leiðindum á samfélagsmiðlinum en Musk segist ætla að leggja mikla áherslu á málfrelsi á Twitter og eru uppi miklar vangaveltur um það hvernig ritstjórn mun fara fram.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×