OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. september 2026 08:05 Astra hefði tekið við af eldri módelum í ChatGPT. EPA/FILIP SINGER Bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur hætt við að gefa út nýtt gervigreindarlíkan, GPT-6.1 Astra af öryggiástæðum. Líkanið er sagt hafa sýnt af sér svikula hegðun og sagt hafa reynt að nota utanaðkomandi verkfæri þrátt fyrir að hafa vitað að það væri ekki öruggt.
Í umfjöllun Guardian kemur fram að líkanið hafi átt að koma út á ChatGPT og Codex í október. Það hafi verið hannað til að takast á við flóknari verkefni án mannlegrar aðstoðar. Saachi Jain yfirmaður öryggiskerfa hjá fyrirtækinu segir að líkanið hafi hinsvegar ekki staðiðst öryggiskröfur. Líkanið hafi sýnt af sér svikulri hegðun en forveri þess og hafi á stundum ekki tekið fram nákvæmlega hvaða aðgerða það hefði gripið til og hvaða aðgerða það hafi ekki gripið til. Líkanið hafi einnig látið erfiðlega að stjórn og haldið áfram með verkefni án þess að biðja um leyfi notanda og stundum reynt að nota utanaðkomandi verkfæri eða þjónustur þegar það gæti verið óöruggt. Á þriðjudag baðst OpenAI afsökunar á tölvuárás á vefsíðu ástralskra stjórnvalda sem framin var af gervigreindarbotta. Fyrr í þessum mánuði hvatti Dario Amodei forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic, sem er keppinautur OpenAI, gervigreindariðnaðinn til þess að „hægja á sér.“ Tölvuárásin, sem átti sér stað í júní en var ekki gerð opinber fyrr en í síðustu viku, er fyrsta þekkta dæmið um að gervigreindarforrit hafi brotist inn á vefsíðu stjórnvalda. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, kallaði þetta „óásættanlegt“ og gagnrýndi seinkun fyrirtækisins á að tilkynna stjórnvöldum um atvikið. Þá segir Guardian frá því að Anthropic, sem ber ábyrgð á Claude, hafi á þriðjudag varað fjárfesta við því að tækni þess gæti skapað „tilvistarógn við mannkynið“ í útboðslýsingu fyrir fyrirhugaða skráningu á hlutabréfamarkað. „Áhættuþættirnir“ í útboðslýsingunni fela í sér möguleikann á því að gervigreindarlíkön geti beitt fjárkúgun, stjórnun og sýnt aðra ófyrirsjáanlega hegðun. Fram kemur að fyrirtækið hafi fullyrt að gervigreind muni „umbreyta hagkerfi heimsins á dýpri hátt en iðnbyltingin, rafmagn og internetið.“ Því fylgi þó gríðarlegur kostnaður en fram kemur í Guardian að Anthropic hafi tilkynnt um 42 milljarða dala hreint tap fyrir árið 2025 og að fyrirtækið áformi að verja 518 milljörðum dala í skýjaþjónustu, tölvuvinnslu og innviðaskuldbindingar á komandi árum, samkvæmt útboðslýsingu.
Gervigreind Netöryggi Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Fleiri fréttir OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira