Fleiri fréttir

Stafrænni vegferð fylgir ný menning

Erik Figueras Torras hefur verið framkvæmdastjóri hjá Símanum frá árinu 2013. Þar stýrir hann Þjónustusviði sem bæði rekur fjarskiptakerfi Símans og ber ábyrgð á að þjónusta viðskiptavini Símans.

Ávinningur af samvinnuleið

Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir samvinnuleið ríkis og einkaaðila við fjármögnun innviða góðan kost. Flýtir framkvæmdum og heldur verkefnum innan áætlana. Mikilvægt sé að greina ábatann.

Tapaði 458 milljónum á Icelandair

Tap Traðarhyrnu, sem stofnað var um kaup í Icelandair Group í febrúar 2017, jókst í 458 milljónir króna árið 2018 úr 169 milljónum króna árið áður.

Nýr banki á Íslandi

Hollenski bankinn Bunq hefur opnað fyrir viðskipti á öllu Evrópusambandssvæðinu, auk Noregs og Íslands.

Vill rannsókn vegna niðurfærslu gengis hjá sjóðum Gamma

Fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, tapa tæpum þremur milljörðum króna vegna niðurfærslu á gengi tveggja sjóða í rekstri Gamma. Þá hefur þetta neikvæð áhrif á afkomu tryggingafélaga. Nýir stjórnendur Gamma segja ástæðuna meðal annars vera endurmat eigna og hærri byggingakostnað. Formaður VR vill að fram fari rannsókn.

Bæjarins beztu segir skilið við Akureyri í bili

Eigendur Bæjarins beztu eru ekki af baki dottnir þegar kemur að því að selja Akureyringum og nærsveitungum pylsur, þrátt fyrir að útibúi pylsustaðarins í bænum hafi nýverið verið lokað eftir nokkurra mánaða veru á Ráðhústorgi.

Þriggja milljarða WOW-högg fyrir Isavia

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins 2019 var neikvæð um 942 milljónir króna, samanborið við jákvæða rekstrarafkomu upp á 2.186 milljónir árið á undan.

Breytingar á yfirstjórn CRI

Ingólfur Guðmundsson og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir hafa tekið við störfum forstjóra og aðstoðarforstjóra í Carbon Recycling International.

Frá Landsbréfum í Ölgerðina

Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur ráðið Jón Þorstein Oddleifsson sem framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs fyrirtækisins.

Deila um virði Hótel Rangár

Viðskipti um hlut í rekstrarfélagi Hótel Rangár árið 2013 eru fyrir dómi. Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins og hluthafi telur að snuðað hafi verið á sér og að umsamið kaupverðið hafi verið alltof lágt.

Draumarnir rættust með háskólanámi í heimabyggð

Forsvarsmaður hugbúnaðarfyrirtækis á Akureyri telur að háskólanám í heimabyggð sé ein af forsendum þess að starfsstöð fyrirtækisins í bænum fari sístækanndi. Einn af nýjum starfsmönnum fyrirtækisins segir að hann hefði ekki látið drauma sína rætast hefði hann ekki getað sótt draumanámið á Akureyri.

Birtingur tapaði 168 milljónum á árinu 2018

Útgáfufélagið Birtingur tapaði 168 milljónum króna á árinu 2018. Félagið gaf út fjögur blöð og tímarit á árinu; Mannlíf, Vikuna, Gestgjafann og Hús og híbýli, auk þess sem það hélt úti vefmiðlinum mannlif.is.

Sextíu rafskútur á víð og dreif um borgina

Rafskútuleigan Hopp hóf starfsemi í dag og hefur 60 rafskútum verið dreift um miðborgina. Bæði ferðamenn og borgarbúar eru farnir að nýta sér þennan ferðamáta sem er vel þekktur í fjölmörgum Evrópulöndum og víðar.

Kristín hættir hjá Fréttablaðinu

Kristín Þorsteinsdóttir hefur látið af störfum hjá Fréttablaðinu. Hún hefur verið útgefandi Fréttablaðsins síðustu ár og þar áður aðalritstjóri.

Hundrað þrjátíu og fjórir misstu vinnuna í fjármálageiranum í dag

Andrúmsloftið var tilfinningaþrungið í höfuðstöðvum Arion banka í dag þar sem um 100 manns misstu vinnuna. Um er að ræða stærstu hópuppsögn fjármálafyrirtækis frá hruni en formaður stéttarfélags fjármálastarfsmanna skoðar nú hvort vísa beri aðgerðunum til Félagsdóms vegna samráðsleysis.

Sjá næstu 50 fréttir