Viðskipti innlent

Sextíu rafskútur á víð og dreif um borgina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ásamt eigendum Hopps og fulltrúa Nova sem styrkir verkefnið.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ásamt eigendum Hopps og fulltrúa Nova sem styrkir verkefnið.
Rafskútuleigan Hopp hóf starfsemi í dag og hefur 60 rafskútum verið dreift um miðborgina. Bæði ferðamenn og borgarbúar eru farnir að nýta sér þennan ferðamáta sem er vel þekktur í fjölmörgum Evrópulöndum og víðar.

Á heimasíðu Hop kemur fram að um sé að ræða hágæða endingargóð rafmagnshlaupahjól sem séu byggð til að standast íslenskar aðstæður. Rafskútan sé byggð fyrir óslétta vegi, bleytu og vind. Notendur komist ansi langt á einni hleðslu og þurfi ekki að hafa áhyggjur á að rafskútan eyðileggist.

Rafskúturnar og staðsetning þeirra klukkan 15:46 í dag.
Þá sé rafskútan með háþróað bremsukerfi sem tryggi að farþegar geti ferðast þægilega og stjórnað hraðanum með öryggið í fyrirrúmi.

Þar að auki séu demparar að framan til að gera ferðina enn mýkri. Mælt er með notkun hjálms til að gera ferðina öruggara.

Í tilkynningu kemur fram að hægt verði að leigja hágæða rafskútur í miðbæ Reykjavíkur og stefnan er sett á að stækka svæðið í náinni framtíð. Sumarið og haustið hefur farið vel með okkur höfuðborgarbúa en veturinn er óumflýjanlegur og því eru rafskúturnar frá Hopp sterkbyggðar og hannaðar til þess að lifa veturinn af. Rafskútan er byggð fyrir óslétta vegi, bleytu, vind og allt það sem veturinn færir okkur.

„Rafskúturnar hafa verið mjög vinsælar og eru bæði nýttar sem aðalferðamáti og til skemmtunar. Íslendingar hafa einnig verið að leigja rafskútur í miklum mæli erlendis og er frábært að nú hafa þeir tækifæri til að ferðast um miðbæinn okkar á þennan umhverfisvæna og skemmtilega máta,“ segir Ægir Giraldo Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Hopp í tilkynningu.

Rafskúturnar eru staðsettar í miðbænum, allt frá Granda upp að Kringlu og niður í Laugardal. Þau eru sextíu talsins. Stök ferð kostar 100 krónu startgjald og svo þrjátíu krónur fyrir hverja mínútu á hjólinu.

Skilja má rafskúturnar eftir hvar sem er innan þjónustusvæðisins. Með smáforritinu Hopp má sjá hvar rafskútur eru lausar til leigu.


Tengdar fréttir

Útleiga hlaupahjóla gæti hafist í sumar

Hægt verður að leigja rafmagnshlaupahjól með litlum fyrirvara í höfuðborginni í náinni framtíð. Fyrstu hundrað hjólin, sem munu bera nafnið Hopp, eru á leið til landsins. Einn stofnenda Hopp vonar að þau verði komin á göturnar fyrir sumarlok.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×