Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskir frumkvöðlar leita til landans Íslenska sprotafyrirtækið Cloud Engineering tekur nú þátt í nýsköpunarsamkeppni í Helsinki, en hún er hluti af Arctic15 fagráðstefnunni sem haldinn verður Finnlandi í október. Til mikils er að vinna því sigurvegarinn mun kynna fyrirtæki sitt fyrir fjárfestum á ráðstefnuninni. Netkosning er hafin þar sem almenningur getur kosið um hverjir komast áfram. Því leitar fyrirtækið til landans til að bera hróður íslenskrar nýsköpunar víðar. 4.9.2012 15:43
Mæta hallarekstri með ólöglegum yfirdráttarlánum Ríkisendurskoðun segir að fjórar af heilbrigðisstofnum landsins hafi mætt hallarekstri sínum með yfirdráttarlánum í bönkum en slíkt sé ólöglegt. Heilbrigðisstofnun Austurlands hafi þannig verið með 83 milljóna króna yfirdrátt á bankareikningi sínum í lok síðasta árs. 4.9.2012 10:42
Íbúðum í eigu ÍLS fjölgaði um 1.700 á þremur árum Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs (ÍLS) heldur áfram að fjölga og í júnílok átti sjóðurinn samtals 2.049 fasteignir og hefur þeim fjölgað um 443 síðan í upphafi ársins. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. 4.9.2012 07:52
Rannsaka tugi mála varðandi skattaskjól Yfir sjötíu skattaskjólsmál í tíu skattaskjólum hafa borist skattrannsóknarstjóra frá hruni. Langflest málanna tengjast Lúxemborg, að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skattrannsóknarstjóra. "Það hefur mikið farið í gegnum skattaskjólsfélög stofnuð þar eða í gegnum bankana þar þótt félögin tengist til dæmis Tortóla eða öðrum skattaskjólum,“ segir Bryndís. 4.9.2012 07:00
Nettóskuldir þjóðarbúsins jukust um 177 milljarða Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.583 milljörðum kr. í lok annars ársfjórðungs ársins. Skuldir námu 3.639 milljörðum kr. og var hrein staða því neikvæð um 1.056 milljarða kr. Nettóskuldir þjóðarbúsins hækkuðu um 177 milljarða kr. á milli ársfjórðunga. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabankans. 4.9.2012 06:43
Skattaskjólsmálum fer enn fjölgandi Skattaskjólsmálum sem komið hafa til rannsóknar hjá skattrannsóknarstjóra fjölgar stöðugt og þau eru nú orðin sjötíu til áttatíu. 4.9.2012 02:30
Fráleitt að til sé „dauðalisti“ Arion banki segir fráleitt að til sé listi yfir lífvænleg fyrirtæki sem bankinn hafi ákveðið að taka af eigendum þeirra til að laga ójöfnuð milli nýja bankans og þrotabús gamla Kaupþings. Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hélt því fram í innsendri grein í Fréttablaðinu á laugardag að slíkur listi væri til. Áður hafði Víglundur Þorsteinsson, fyrrverandi eigandi BM Vallár, haldið hinu sama fram. 4.9.2012 02:15
Varalitavísitalan vekur spurningar um bata hagkerfisins Íslenska hagkerfið virðist vera á hægri uppleið þó enn sé langt í land, samkvæmt óhefðbundnum vísitölum. Innflutningur á varalit náði hámarki í fyrra en notkun á "K"-orðinu svokallaða hefur minnkað verulega frá hruni. 3.9.2012 21:58
Tímamótasamningur hjá Advania Íslenska upplýsingatæknifyrirtækið Advania, áður Skýrr, hefur náð tímamótasamningi við sænsku tryggingarstofnunina um innleiðingu á nýju upplýsingakerfi. Samningurinn er metinn á tvo komma þrjá milljarða króna. 3.9.2012 21:10
Íbúðalánasjóður yfirtók 500 íbúðir Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fjölgaði um 443 á fyrstu sex mánuðum ársins, en þær voru 2049 á fyrstu mánuðum ársins. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Íbúðalánasjóðs. 3.9.2012 13:06
Yfir 7 milljarðar fóru í líftryggingar hjá erlendum félögum Íslendingar borguðu yfir 7 milljarða króna í iðgjöld fyrir líftryggingar hjá erlendum tryggingarfélögum árið 2010. Markaðshlutdeild hinna erlendu félaga í þessum tryggingum nam 67,5% af heildinni þetta ár. 3.9.2012 08:53
Töluverð hreyfing á gengi hlutabréfa í kauphöllinni Töluverð hreyfing var á gengi hlutabréfa í íslensku kauphöllinni í dag en hlutabréfa vísitalan, OMXISK, lækkaði um 0,5 prósent í ríflega 186 milljóna króna viðskiptum, og er nú ríflega 989. Mesta hreyfingan varð á gengi hlutabréfa færeyska bankans Bank Nordik en það lækkaði um 3,68 prósent og er nú 64. Þá lækkaði gengi bréfa Haga um 0,28 prósent og er nú komið niður fyrir 18, í 17,95. Gengi bréfa Icelandair lækkaði um 1,68 prósent og er nú 7,01. Gengi bréfa Marels lækkaði um 1,44 prósent og er nú 136. 3.9.2012 00:01
Advania mun sjá um prentrekstur fyrir Umhverfisstofnun Umhverfisstofnun hefur samið við Advania um allan prentrekstur á aðalskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Um er að ræða heildræna útvistun á þessu sviði í samvinnu Advania og Xerox. 3.9.2012 11:56
Áfram dregur úr veltunni á fasteigmarkaðinum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu var 91 í síðustu viku. Þetta er svipað og vikuna þar á undan en nokkuð minni fjöldi en nemur meðaltalinu á viku síðustu þrjá mánuði sem er 104 samningar. 3.9.2012 11:19
Nær allar ferðir IE á tíma síðastliðnar tvær vikur Stundvísi Icelandair, Iceland Express og WOW air hefur verið góð í sumar samkvæmt útreikningum ferðafréttasíðunnar Túrista. 3.9.2012 10:13
Afgangur af þjónustuviðskiptum 3,9 milljörðum lægri en talið var Afgangur af þjónustuviðskiptum á öðrum fjórðungi var 3,9 milljörðum lægri en áður var talið, eða 12 milljarðar en ekki 15,9 milljarðar. Þessi leiðrétta tala er vegna villu sem kom upp í gögnum sem Hagstofa Íslands notar til útreiknings á þjónustuviðskiptum við útlönd. Kaup á ferðaþjónustu hækka um rúma 3,8 milljarða og því lækkar afgangur á þjónustujöfnuði úr 15,9 milljörðum í 12 milljarða og afgangur á ferðaþjónustu úr 6,8 milljörðum í 3 milljarða. 3.9.2012 09:26
Ísfélagið hagnast um 4,5 milljarða Ísfélag Vestmannaeyja hagnaðist um 36,8 milljónir dala á síðasta ári, eða sem nemur tæplega 4,5 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam ríflega 55 milljónum dala, eða sem nemur 6,7 milljörðum króna. Þessi rekstrarniðurstaða var kynnt á aðalfundi félagsins sem fram fór í byrjun síðustu viku. Þetta er besta rekstrarniðurstaða Ísfélagsins sé horft til ársreikninga síðustu fimm ára, en hagnaður félagsins á árinu 2010 nam 18,4 milljónum dala, jafnvirði um 2,2 milljarða króna miðað við núverandi gengi. 2.9.2012 21:30
Hafa endurnýtt þúsund gamla og ónýta farsíma Síminn hefur látið endurnýta hátt í eitt þúsund gamla og ónýta farsíma frá viðskiptavinum á 12 mánaða tímabili; tækjum sem að öllum líkindum hefði verið fleygt ef ekki kæmi til söfnunarkerfi Símans. Í fréttatilkynningu frá Grænni framtíð segir að söfnunarkassar séu til staðar í öllum verslunum Símans og þar geti viðskipavinir sett ónýta og gamla farsíma sem eru ekki lengur í notkun. "Með söfnunarkerfi sínu uppfyllir Síminn WEEE tilskipun Evrópusambandsins (Waste Electrical and Electronic Equipment) um rétta meðhöndlun á rafeindaúrgangi og umhverfisvæna starfshætti. Endurnýtingaráætlun Símans er unnin í samstarfi við Græna framtíð. Framleiðsla á raftækjum hefur talsverða mengun í för með sér, en framleiðsla á einum farsíma jafngildir að losað sé 60 kg af CO2 eða að bifreið noti 26 lítra af bensíni,“ segir í tilkynningunni. 2.9.2012 11:28
HB Grandi fær mest af kvóta HB Grandi er það útgerðarfyrirtæki sem fær mestum kvóta úthlutað fyrir næsta fiskveiðiár, eða 10,8%. Næst kemur Samherji með 6,5% og þá Þorbjörn hf. með 5,7%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fiskistofu um úthlutun á aflamarki. Alls er úthlutað tæpum 319 tonnum í þorskígildum, samanborið við tæp 300 á sama tíma í fyrra. 1.9.2012 11:42
Arion banki við Jón Ásgeir: "Þú ert á listanum" Jón Ásgeir Jóhannesson, kaupsýslumaður og stofnandi Bónuss, skorar á Arion banka að birta lista yfir lífvænleg fyrirtæki, sem bankinn ákvað að taka frá eigendum sínum til að laga ójöfnuð á milli gamla Kaupþings og nýja Kaupþings. 1.9.2012 10:30
Gengi krónunnar þarf að veikjast Greiningardeild Arion banka telur að gengi krónunnar þurfi að veikjast áfram svo hægt sé að skapa nægan gjaldeyri til að greiða af erlendum lánum í framtíðinni. Þróun í vöru- og þjónustujöfnuði að undanförnu rennir stoðum undir þessar vangaveltur. 31.8.2012 14:48
Arion banki hagnaðist um 11,2 milljarða króna Afkoma Arion banka á fyrri helmingi ársins 2012 var jákvæð um 11,2 milljarða króna eftir skatta samanborið við 10,2 milljarða króna á árinu 2011. Arðsemi eigin fjár var 18,8% samanborið við 20,3% á sama tímabili árið 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka vegna hálfsuppgjörs bankans. 31.8.2012 13:16
Markaðssetja íslenskar heilsuvörur í Kína Lyfjafyrirtækið Alvogen hefur hafið samstarf við íslensk útflutningsfyrirtæki um markaðssetningu og sölu á íslenskum heilsuvörum í Kína. Fram kemur í tilkynningu frá Alvogen að samstarfsaðilarnir búist við því að árlegt söluverðmæti varanna verði um 700 milljónir króna. 31.8.2012 10:00
Skuldirnar vegna kaupa á Símanum að sliga Skipti Fjármagnskostnaður Skipta, móðurfélags Símans, Mílu og Skjás miðla, skerðir samkeppnishæfni og fjárfestingagetu félagsins. Forstjóri þess segir þetta ekki ganga upp til lengri tíma og að endurfjármögnun félagsins sé "mjög aðkallandi“. 31.8.2012 09:00
Afleit staða hjá Íbúðalánasjóði, ríkisstjórnin bregst við Tap af rekstri Íbúðalánasjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins jókst verulega miðað við sama tímabili í fyrra og hefur ríkisstjórnin samþykkt að setja á fót starfshóp til að leggja mat á stöðu og horfur sjóðsins. 31.8.2012 06:35
Lánveitingin gat ráðið úrslitum um rekstrarhæfi Glitnis "Rannsókn er haldin slíkum annmörkum að úr því verður ekki bætt undir rekstri málsins,“ sagði Óttar Pálsson, verjandi Lárusar Welding, í málflutningi um frávísunarkröfu ákæru á hendur Lárusi og Guðmundi Hjaltasyni í Vafningsmálinu. 31.8.2012 12:50
Skúli Mogensen: WOW mun sækja fram og er komið til að vera "Við ætlum okkur að sækja fram, og efla okkar starfsemi enn frekar fyrir næsta sumar," segir Skúli Mogensen, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri WOW air. Félag hans, Títan fjárfestingafélag, hefur lagði WOW nýlega til viðbótar fjármagn, um 500 milljónir króna, til þess að styrkja stöðu félagsins og efla vöxt þess, að sögn Skúla. 31.8.2012 12:16
Lárus Welding fyrir rétti í dag Sakborningar í Vafningsmálinu svokallaða, þeir Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, og Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs bankans, mæta fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag, þegar málflutningur fer þar fram. 31.8.2012 09:39
Þjónustujöfnuður í fyrra var 41,6 milljarðar í plús Í fyrra var seld þjónusta til útlanda fyrir 344,3 milljarða króna en keypt var þjónusta frá útlöndum fyrir 302,7 milljarða króna. Þjónustujöfnuður var því hagstæður um 41,6 milljarða króna en var hagstæður um 34,8 milljarða kr. á árinu 2010 á gengi hvors árs. 31.8.2012 09:11
Vöruskiptajöfnuðurinn snarlækkar frá fyrra ári Afgangur af vöruskiptum í júlí nam 2,4 milljörðum króna. Vörur voru fluttar út fyrir 47,4 milljarða króna og inn fyrir 45 milljarða króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í júlí í fyrra var 9,2 milljarða króna afgangur af vöruskiptum. 31.8.2012 09:08
Þjónustujöfnuðurinn hagstæður um tæpa 16 milljarða Útflutningur á þjónustu á öðrum ársfjórðungi 2012 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 101,7 milljarðar kr. en innflutningur á þjónustu 85,8 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi var því jákvæður um 15,9 milljarða króna. 31.8.2012 09:05
Töluvert dregur úr hagnaði Spalar Hagnaður Spalar, sem rekur Hvalfjarðargöngin, eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nam 33,9 milljónum kr. Þetta er töluvert minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 53,1 milljón kr. 31.8.2012 08:57
Mega krókveiða makríl lengur Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út reglugerð sem heimilar bátum sem veitt hafa úr krókapottinum að stunda veiðar í tíu daga eftir að búið er að veiða þau 845 tonn sem ætluð voru til veiðanna. 31.8.2012 08:15
Reginn hagnaðist um tæpan milljarð Fasteignafélagið Reginn hagnaðist um tæpan milljarð kr. á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er mun betri útkoma en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 66 milljónum króna. 31.8.2012 07:59
Bankar hagnast um tólf milljarða hvor Viðskipti Íslandsbanki og Landsbankinn högnuðust samtals um 23,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2012. Hagnaður Íslandsbanka nam 11,6 milljörðum króna en Landsbankans 11,9 milljörðum króna. Þetta kemur fram í hálfsársuppgjöri bankanna sem birt var í gær. Arion banki mun birta sitt uppgjör í dag. 31.8.2012 07:00
Hagnaður olíufélagsins N1 nam 624 milljónum Hagnaður olíufélagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 624 milljónum kr. en þær voru tæpir 5,5 milljarðar kr. á sama tímabili í fyrra. Munurinn liggur aðallega í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í fyrra, ,eða svokallaðri skuldahreinsun, sem gaf af sér 4,8 milljarða kr. 31.8.2012 06:41
Íhuga mál vegna fasteignagjaldanna Portus ehf., rekstrarfélag Hörpu, íhugar að sækja rétt sinn fyrir dómsstólum vegna álagningar fasteignagjalda. Fyrirtækið hefur fengið lögfræðiálit sem sýnir, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, fram á ólögmæti álagningarinnar. 31.8.2012 06:00
Einu skipi verður lagt í hagræðingarskyni Síldarvinnslan í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á útgerðarfélaginu Bergi-Hugin í Vestmannaeyjum. Kaupverðið er trúnaðarmál, en kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. 31.8.2012 05:00
Heildaraflinn jókst um 8% Heildarafli íslenskra skipa var tæp 1.149 þúsund tonn á síðasta ári. Það er aukning um 85 þúsund tonn frá árinu 2010, sem jafngildir átta prósentum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni. 31.8.2012 04:00
Enn hækkar gengi bréfa Icelandair Gengi bréfa Icelandair hækkaði um 0,28 prósent í dag og stendur gengi bréfa félagsins nú í 7,1. Gengi bréfa félagsins hefur hækkað mikið undanfarin ár en fyrir tæplega þremur árum var það 2,5, þegar það var endurskipulagt og nýjir hluthafar komu að félagið. Þeir fjárfestar sem keyptu hlutafé á genginu 2,5 hafa því hagnast vel á fjárfestingu sinni. 30.8.2012 20:00
Skattahækkun á ferðaþjónustu gengur ekki upp Ferðaþjónustan ræður ekki við hækkun á virðisaukaskatti í ferðaðþjónustu og mun lenda í miklum rekstrarerfiðleikum ef af henni verður. Þetta segir Alexander Eðvardsson sérfræðingur á hjá KPMG sem skoðað hefur rekstur fyrirtækja í ferðaþjónustu, en afkoman í greininni er ekki nægilega góð, þrátt fyrir mikla fjölgun ferðamanna. Aldrei hafa komið fleiri ferðamenn til landsins á ári en í fyrra, en þeir voru 565 þúsund. Allt stefnir í að ferðamennirnir verði fleiri á þessu ári. 30.8.2012 19:00
Landsbankinn hagnaðist um 11,9 milljarða Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,9 milljarða króna eftir skatta á fyrri hluta árs 2012. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var þó mun minni en á þeim fyrsta og skýrist það fyrst og fremst af gjaldfærslu í rekstri bankans vegna endurmats á eignum Spkef. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. 30.8.2012 17:11
Magnús Kristinsson: Ég er fórnarlamb markaðsmisnotkunar Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, segir að salan á fyrirtæki sínu, Bergur Huginn, til Síldarvinnslunnar sé ekki sín óskaniðurstaða. Tilkynnt var um söluna í dag. 30.8.2012 16:18
Síldarvinnslan kaupir Berg-Huginn í Vestmannaeyjum Síldarvinnslan hf í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn ehf (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni. 30.8.2012 16:06
Skipti töpuðu 2,6 milljörðum króna Tap Skipta á fyrri hluta árs nam 2,6 milljörðum króna sem skýrist einkum af fjármagnskostnaði og virðisrýrnun. Tap á sama tímabili árið 2011 var 1,9 milljarðar króna, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallarinnar. Sala jókst um 4% og nam 14,1 milljörðum króna samanborið við 13,5 milljarða á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 3,4 milljörðum króna samanborið við 3,5 milljarða fyrir sama tímabil 2011. EBITDA hlutfall var 23,6%. 30.8.2012 15:19