Viðskipti innlent

Nær allar ferðir IE á tíma síðastliðnar tvær vikur

Stundvísi Icelandair, Iceland Express og WOW air hefur verið góð í sumar samkvæmt útreikningum ferðafréttasíðunnar Túrista.

Þar segir að allt annað sé að sjá til Iceland Express nú en fyrir ári síðan, þegar áætlanir þess riðluðust reglulega. Ferðir félagsins voru t.a.m. nær allar á réttum tíma síðastliðinn hálfan mánuð.

Hjá WOW air komu og fóru vélarnar samkvæmt áætlun í 86 prósent tilvika og hjá Icelandair var hlutfallið 83% eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Hægt er að skoða útreikninga Túrista.is hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×