Fleiri
Lífeyrissjóðir fjármagni virkjun 6.2.2012 00:01 Lífeyrissjóðirnir lánuðu Glitni 11 milljarða Þrettán lífeyrissjóðir veittu Glitni nærri ellefu milljarða króna lán í mars 2008 þegar viðvörunarmerki voru farin að blikka á íslenskum fjármálamarkaði. Engar tryggingar voru fyrir láninu og enginn gjalddagi. Milljarðarnir töpuðust nokkrum mánuðum síðar þegar bankinn féll. 5.2.2012 18:37 LV hafnar vangaveltum um lögbrot Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafnar afdráttarlaust þeim vangaveltum sem fram koma í skýrslu Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna um að sjóðurinn hafi brotið lög með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008. 4.2.2012 18:44 Gefið í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið lög Rannsóknarnefnd lífeyrissjóðanna gefur í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið lög með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008. Með þeim hafi sjóðurinn aukið áhættu sjóðsins - þvert á lögbundið hlutverk sitt. 4.2.2012 12:15 Kynning rannsóknarnefndar aðgengileg á Vísi Inn á viðskiptavef Vísis er nú hægt að sjá kynningu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun í heild sinni. Rannsóknarnefndina skipuðu Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttardómari, Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor, og Héðinn Eyjólfsson viðskiptafræðingur. 4.2.2012 00:35 Sjá næstu 50 fréttir
Einn stjórnenda IBM heldur fyrirlestur í HR Einn af leiðtogum IBM, Sandy Carter, heldur fyrirlestur í Háskóla Reykjavíkur í hádeginu í dag. Hún er hér á landi á vegum Nýherja og mun fjalla um það hvers vegna samfélagsmiðlar eru mikilvægir til framtíðar. 8.2.2012 11:31
Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim Danski hagfræðingurinn Jesper Rangvid var staddur hér á landi nýverið þar sem hann var gestaprófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Rangvid, sem er prófessor við Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar, var nýverið skipaður formaður yfir rannsóknarnefnd sem mun freista þess að skýra hvort, og þá með hvaða hætti, innlendir áhrifaþættir höfðu áhrif á yfirstandandi erfiðleika fjámálalífsins þar í landi. Þó að ástandið í Danmörku sé langt í frá eins alvarlegt eða víðtækt eins og verið hefur hér á Íslandi, hafa fjármálastofnanir átt í miklum erfiðleikum. Eins og stendur hafa ellefu bankar orðið gjaldþrota frá hruninu haustið 2008. 8.2.2012 11:00
Gæti falið í sér milljarða ávinning fyrir sjóðina Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat á það hvort gögn sem lögð voru fram í umdeildu skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 hafi endurspeglað raunverulega stöðu bankans. Sjóðirnir vilja meina að þeir hafi verið blekktir til að kaupa víkjandi skuldabréf í útboðinu fyrir samtals 10,7 milljarða króna og hafa stefnt slitastjórn Glitnis vegna þessa. Undirbúningur að málarekstrinum hefur staðið yfir mánuðum saman. 8.2.2012 11:00
Óformlegar viðræður um fjármögnun og verð Formlegar söluviðræður við einn af bjóðendum í 77% hlut þrotabúa Landsbankans og Glitnis í Iceland Foods gætu hafist eftir viku til tíu daga, samkvæmt heimildum Markaðarins. Frestur til að skila inn bindandi tilboðum í hlutinn rann út um síðustu mánaðamót. Reuters-fréttastofan hefur fullyrt að tveir fjárfestingasjóðir, Bain Capital og BC Partners, hafi skilað inn tilboðum. 8.2.2012 11:00
Gamla Sjóvá skilar litlu til kröfuhafa Kröfuhafar SJ Eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, hafa samþykkt nauðasamning félagsins. Í honum felst í raun að þeir fá um 7% af um 12 milljarða króna kröfum sínum, eða rúmlega 800 milljónir króna. Kröfuhafarnir, sem eru skilanefnd Glitnis, Landsbankinn, Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) höfðu hins vegar af því áhyggjur að sú háa tekjufærsla sem myndi myndast við gerð nauðasamningsins gæti haft í för með sér skattskuldbindingu sem félagið myndi ekki ráða við að greiða. Því gæti nauðasamningurinn í raun kallað gjaldþrot yfir gamla Sjóvá með tilheyrandi skiptakostnaði. Á því höfðu kröfuhafarnir fjórir ekki áhuga. 8.2.2012 11:00
Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi Bjórmenning á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Fjöldi og fjölbreytileiki íslensks bjórs hefur aukist mikið og þá hafa árstíðabundnar bjórtegundir orðið æ vinsælli. Um þessar mundir eru um 50 tegundir af íslenskum bjór í boði í Vínbúðum en voru ekki nema helmingur þess fyrir fáum árum. Þróunina má ekki síst rekja til tilkomu minni 8.2.2012 11:00
Telur að hagur heimilanna muni vænkast Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt minnkandi en verðbólgan helst þó enn fremur há á þessu ári, en fer eftir það lækkandi. Staða heimilanna fer hægt batnandi og eru þau að byrja að rétta úr kútnum eftir þrengingar síðustu ára. 8.2.2012 11:00
Veltan á fasteignamarkaði jókst um 74% milli ára Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2012 var 372. Heildarvelta nam 11 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 29,4 milljónir króna. Þetta er tæplega 70% aukning á fjölda samninga og tæplega 74% aukning á veltunni miðað við janúar í fyrra. 8.2.2012 10:55
Meiri óvissa um verðbólgu Meiri óvissa er um verðbólgu núna en áður var, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann kynnir nú forsendur að baki vaxtaákvörðunar bankans á fundi sem fram fer í húsnæði Seðlabankans. 8.2.2012 10:51
Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti í ár Á þessu ári er spáð 2,5% hagvexti, einkum fyrir tilstuðlan aukinnar fjárfestingar. Framlag einkaneyslu er auk þess nokkurt, þótt það sé umtalsvert minna en í fyrra. 8.2.2012 10:47
Lán heimila niður um 196 milljarða árið 2011 - 33 milljarðar í frosti Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna frá stofnun nýju bankanna samkvæmt tilkynningu frá Samtöku fjármálafyrirtækja (SFF). 8.2.2012 10:19
Creditinfo veitir fyrirtækjum viðurkenningu Creditinfo mun veita fimm íslenskum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur þann 9. febrúar á Hótel Sögu. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra mun afhenda fyrirtækjunum viðurkenningu fyrir hönd Creditinfo. Er þetta annað árið í röð sem Creditinfo afhendir slíkar viðurkenningar til íslenskra fyrirtækja. 8.2.2012 09:23
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 4,75%. 8.2.2012 09:02
Mikil fjölgun íslenskra ferðamanna í Danmörku Ferðum Íslendinga til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið af þeim fjölda gistinátta sem hagstofa Dana merkir Íslendingum. Í heildina fjölgaði gistinóttum í Danmörku um þrjá af hundraði. 8.2.2012 08:52
Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilkynningu segir að sætanýtingin í janúar hefur aldrei verið hærri í þeim mánuði en hún var rúm 69% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára. 8.2.2012 06:40
Gullforði Seðlabankans jókst um tæpa 1,4 milljarða Verðmæti gullforða Seðlabankans jókst um tæplega 1,4 milljarða króna í janúar. Þetta kemur fram í efnahagsreikningi Seðlabankans. 8.2.2012 06:39
Bensínverðið rýfur 250 króna múrinn Skeljungur hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í gærkvöldi og kostar hann nú tæplega 251 krónu. Þetta er í fyrsta sinn sem bensínlítrinn fer í 250 krónur. 8.2.2012 06:36
Stjórnendur Iceland Foods ekki spenntir fyrir eignastýringarsjóðum Lykilstjórnendur Iceland Foods hafa ekki áhuga á að vinna hjá fyrirtækinu verði það í eigu eignastýringarsjóða en tveir slíkir skiluðu inn bindandi tilboðum í hlut slitastjórna Landsbankans og Glitnis í Iceland. Malcolm Walker, forstjóri Iceland, tengist hvorugum sjóðnum. 7.2.2012 18:40
Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, veffyrirtækisins Hugsmiðjunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu. 7.2.2012 22:39
Búast við að staða heimilanna batni ASÍ gerir ráð fyrir að hagvöxtur á nýliðnu ári hafi verið 3,1% eða nokkuð meiri en búist var við. Hann megi reki til aukningar í einkaneyslu og útfutningi. Almennt er gert ráð fyrir hægfara bata með um 1,4-2% hagvexti næstu þrjú ár. 7.2.2012 14:47
Enn hækkar gengi bréfa í Icelandair Gengi bréfa í Icelandair Group í kauphöllinni heldur áfram að hækka en gengið hefur hækkað um 1,83 prósent í dag og er það nú 5,55. Í gær hækkaði gengi bréfa félagsins um 2,83 prósent. 7.2.2012 14:05
Útsvarið í toppi á þrettán stöðum af fimmtán Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið af fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins sem hækkaði útsvar á þessu ári. Þar hækkaði það úr 14,4% í 14,48%. Hin fjórtán sveitarfélögin halda útsvarpsprósentunni óbreyttu. Þetta eru niðurstöður Verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði breytingar á útsvari og álagningu fasteignagjalda hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins fyrir árið. Niðurstöður Verðlagseftirlitsins sýna líka að 13 af þeim 15 sveitarfélögum sem skoðuð voru, innheimta hámarks leyfilegt útsvar sem er nú 14,48%. Lægst er útsvarið 13,66% í Garðabæ og 14,18% á Seltjarnarnesi. 7.2.2012 13:45
Leigumarkaðurinn tók stökk í janúar Um 69% fleiri leigusamningum um íbúðarhúsnæði var þinglýst í janúar síðastliðnum miðað við mánuðinn á undann. Samningum fækkar hins vegar um 1,8% miðað við i janúar í fyrra. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Þjóðskrá. Venju samkvæmt eru lang flestir leigusamningar gerðir á höfuðborgarsvæðinu. Þar fjölgar samningum um 60,8% frá því í desember, en fækkar um 6,9% frá því í janúar í fyrra. 7.2.2012 13:13
Nýr markaðsupplýsingavefur á Vísi Ítarlegar markaðsupplýsingar eru nú aðgengilegar á viðskiptavef Vísis í samstarfi við Kelduna. Inn á markaðsupplýsingavefnum má sjá þróun á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði auk ítarlegra upplýsinga vaxtakjör á fjármálamarkaði, og fleiri þætti er tengjast þróun mála á fjármálamarkaði. 7.2.2012 12:32
Tölvan Watson gerir næstum allt nema að skera upp sjúklinga Snjallasta vél heims tekur rými á við 10 ísskápa og hefur vinnsluminni fyrir 200 milljónir blaðsíðna. 7.2.2012 11:41
Tap sjóðanna gæti orðið mun meira Tap íslenskra lífeyrissjóða vegna gjaldmiðlavarnarsamninga gæti orðið rúmlega 70 milljarðar króna eftir skuldajöfnun ef ýtrustu kröfur þrotabúa föllnu bankanna verða samþykktar, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Tap sjóðanna vegna samninganna er í dag bókfært á 36,4 milljarða króna samkvæmt skýrslu úttektarnefndar sem birt var síðastliðinn föstudag. 7.2.2012 09:49
Í höndum stjórnar OR að veita umboð Aðkoma lífeyrissjóðanna að fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar kemur til af því að Orkuveitan ræður ekki við verkefnið. Heildarkostnaður er talinn 29 milljarðar króna. Formlegar viðræður bíða þess að forstjóri OR fái til þess umboð stjórnar. 7.2.2012 07:00
Eignir lífeyrissjóðanna komnar í tæplega 2.100 milljarða Hrein eign lífeyrissjóða nam tæpum 2.100 milljörðum kr. í lok desember s.l. og hafði hækkað um 18,7 milljarða kr. frá lokum nóvember eða um 0,9%. 7.2.2012 06:45
Sala á áfengi hefur dregist töluvert saman á tveimur árum Sala á áfengi er 2,3% minni í janúar í ár miðað við sama tímabil í fyrra. Í lítrum talið er munurinn 25 þúsund lítrar. 7.2.2012 06:44
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 74 milljörðum vegna fyrirtækja Björgólfsfeðga Íslenskir lífeyrissjóðir töpuðu alls 74 milljörðum króna vegna félaga í eigu Björgólfsfeðga, að því er fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna. 6.2.2012 19:07
Tap lífeyrissjóðanna nærri meðaltali Tap íslensku lífeyrissjóðanna er nálægt meðaltali þess sem varð hjá lífeyrissjóðum OECD-ríkja, segir í yfirlýsingu sem Landssamtök lífeyrissjóða birtu á vefsíðu sinni í dag. Það hafi því ekki einungis verið íslensku lífeyrissjóðirnir sem urðu fyrir áfalli í kreppunni. 6.2.2012 14:55
Iceland Express í samstarf við Hinsegin daga Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride undirrituðu í dag samstarfssamning sem felur í sér stuðning Iceland Express við Hinsegin daga fyrir hátíð þeirra í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 6.2.2012 13:33
Búast við 20 milljarða tekjum hjá Icelandair Group Greiningardeild Arion banka býst við því að tekjur Icelandair Group á fjórða ársfjórðungi síðasta árs verði 20 milljarðar króna og EBITDA verði um 400 milljónir króna. Ársfjórðungsuppgjör verður birt í þessari viku. Í Markaðspunktum Arion segir að fyrsti og fjórði ársfjórðungur séu vallt lökustu fjórðungarnir hjá félaginu bæði hvað veltu og afkomu varðar. Miðað við flutningstölur félagsins megi gera ráð fyrir töluverðum tekjuvexti frá fyrra ári. Samkvæmt afkomuspá stjórnenda Icelandair Group frá nóvember síðastliðnum er gert ráð fyrir að EBITDA félagsins á fjórða ársfjórðungi verði lítil sem engin eða neikvæð um allt að 500 milljónir króna. 6.2.2012 14:46
Ingvar Helgason horfinn Erna Gísladóttir og Jón Þór Gunnarsson, sem um síðustu áramót tóku við rekstri bílaumboðsins Ingvars Helgasonar og B&L hafa frá og með deginum í dag breytt nafni félagsins í BL. Ingvar Helgason er því horfinn úr nafninu. Þar með líkur endanlega sameiningarferli þessara gamalgrónu bílafyrirtækja sem hvort um sig hófu starfsemi sína um og eftir miðja síðustu öld, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Hjá BL starfa 128 manns auk fjölda samstarfs- og umboðsaðila um allt land en félagið er með söluumboð fyrir BMW, Hyundai, Isuzu, Land Rover, Nissan, Opel, Renault og Subaru. 6.2.2012 12:49
Högnuðust um 472 milljarða á móti 480 milljarða tapi Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að þrátt fyrir um 480 milljarða tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins þá sé útkoman ekki svo slæm þegar hagnaður sjóðanna af öðrum eignum sé tekinn með í reikninginn, en hann var 472 milljarðar. Þetta kemur fram í pistli Gylfa á vefnum Pressan.is þar sem hann fer yfir skýrslu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun. 6.2.2012 12:40
Áfram dauft yfir fasteignamarkaðinum í borginni Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 70. Þetta eru töluvert færri samningar en nemur meðaltalinu síðustu þrjá mánuði sem er 90 samningar á viku. 6.2.2012 11:16
Um 94% landsmanna telja fyrirtæki skapa góð lífskjör Ný skoðanakönnun sýnir að 94% landsmanna telja íslensk fyrirtæki skipta öllu eða miklu máli þegar kemur að því að skapa góð lífskjör á Íslandi Capacent Gallup vann þessa könnun fyrir Viðskiptaráð Íslands. 6.2.2012 10:01
Icelandair selur SmartLynx í Lettlandi Fyrir síðustu áramót gekk Icelandair frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins. Í samningnum voru nokkrir fyrirvarar sem nú hafa verið uppfylltir. 6.2.2012 09:23
Tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna Mjólkursamsalan stefnir að því að tvöfalda útflutning á skyri til Bandaríkjanna. 6.2.2012 07:41
Tekjurnar af Contraband orðnar 8,7 milljarðar Ekkert lát er á velgengni Contraband nýjustu myndar Baltasar Kormáks í Bandaríkjunum. 6.2.2012 07:05
Lífeyrissjóðirnir lánuðu Glitni 11 milljarða Þrettán lífeyrissjóðir veittu Glitni nærri ellefu milljarða króna lán í mars 2008 þegar viðvörunarmerki voru farin að blikka á íslenskum fjármálamarkaði. Engar tryggingar voru fyrir láninu og enginn gjalddagi. Milljarðarnir töpuðust nokkrum mánuðum síðar þegar bankinn féll. 5.2.2012 18:37
LV hafnar vangaveltum um lögbrot Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafnar afdráttarlaust þeim vangaveltum sem fram koma í skýrslu Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna um að sjóðurinn hafi brotið lög með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008. 4.2.2012 18:44
Gefið í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið lög Rannsóknarnefnd lífeyrissjóðanna gefur í skyn að Lífeyrissjóður verslunarmanna hafi brotið lög með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008. Með þeim hafi sjóðurinn aukið áhættu sjóðsins - þvert á lögbundið hlutverk sitt. 4.2.2012 12:15
Kynning rannsóknarnefndar aðgengileg á Vísi Inn á viðskiptavef Vísis er nú hægt að sjá kynningu rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun í heild sinni. Rannsóknarnefndina skipuðu Hrafn Bragason, fyrrverandi hæstaréttardómari, Guðmundur Heiðar Frímannsson heimspekiprófessor, og Héðinn Eyjólfsson viðskiptafræðingur. 4.2.2012 00:35