Fleiri
Hagnaðarhlutfall sjávarútvegs lakara árið 2010 1.2.2012 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Bankarnir réðu oft fjárfestingum lífeyrissjóðanna Bankarnir réðu ferðinni oft á tíðum í fjárfestingum lífeyrissjóðanna fyrir hrun að sögn Hrafns Bragasonar, fyrrverandi hæstaréttardómara. Þetta kom fram í erindi hans á fundi um starfsemi lífeyrissjóðina fyrir hrun. 3.2.2012 15:35
Töpuðu hátt í 250 milljörðum á Baugi og Exista og félögum tengdum þeim Tap lífeyrissjóðanna vegna Baugs Group hf., sem nú er í slitameðferð, er áætlað 4,8 milljarðar króna. Þetta kom fram á blaðamannafundi rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun, sem haldinn er á Grand Hóteli. Ef Baugur og tengd félög eru tekin með er tapið um 77 milljarðar króna. 3.2.2012 14:34
Rannsókn á starfsemi lífeyrissjóðanna kynnt í dag Blaðamannafundur rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun hefst núna klukkan tvö á Grand Hóteli. Nefndin skilar í dag af sér skýrslu um niðurstöður rannsóknarinnar. 3.2.2012 13:54
Sjóvá sendir feitan tékka til viðskiptavina Sjóvá endurgreiðir í dag 381 milljón króna til viðskiptavina Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá í dag og næstu daga endurgreidda um 381 milljón króna. 3.2.2012 11:04
Aldrei fleiri ferðamenn til landsins í janúar Erlendir gestir í janúar hafa aldrei verið fleiri og í ár, eða frá því Ferðamálastofa hóf talningar í Leifsstöð fyrir áratug. Um 26 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.900 fleiri brottfarir en á árinu 2011. Erlendum gestum fjölgaði því um 17,5% í janúarmánuði á milli ára. 3.2.2012 09:17
Vöruskiptin hagstæð um 12 milljarða í janúar Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir janúar 2012 var útflutningur tæpir 49,3 milljarðar króna og innflutningur fob 37,2 milljarðar króna. Vöruskiptin í janúar voru því hagstæð um 12,0 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 3.2.2012 09:09
Gistinóttum fjölgaði um 27% milli ára í desember Gistinætur á hótelum í desember voru 69.200 samanborið við 54.300 í desember 2010. Þetta er 27% aukning milli ára. 3.2.2012 09:06
Misskipting eigna heimilanna hefur aukist verulega Tölur benda til þess að misskipting eigna meðal íslenskra heimila hafi aukist verulega frá hruninu haustið 2008. 3.2.2012 07:28
Mikill samdráttur í bílaumferð á landinu Umferð á 16 mælistöðvum Vegagerðarinnar í nýliðnum janúar dróst í heild saman um ríflega tíu prósent miðað við sama mánuð fyrir ári. 3.2.2012 07:24
Skuldatryggingaálag Íslands fer lækkandi Skuldatryggingaálag Íslands er 292 punktar og hefur verið samfellt undir 300 punktum síðan 20. janúar síðastliðinn. Um síðustu áramót stóð það í 317 punktum en á sama tíma í fyrra var það 279 punktar. 3.2.2012 06:46
Tekjur Marels jukust um 15% Marel hagnaðist um 34,5 milljónir evra, jafngildi 5,6 milljarða króna, á árinu 2011. Til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins árið 2010 13,6 milljónir evra. Þetta kemur fram í ársuppgjöri fyrirtækisins sem var birt í fyrradag. Skýrist bætt afkoma helst af því að tekjur frá kjarnastarfsemi jukust um 15 prósent á árinu. 3.2.2012 06:00
Ekkert vín í kjallara Steingríms og Ingólfs Ekkert fokdýrt vínsafn er að finna í kjallara geymsluhúsnæðis að Smiðshöfða sem er í eigu Ingólfs Helgasonar og Steingríms P. Kárasonar, fyrrverandi stjórnenda hjá Kaupþingi. Þessu komst slitastjórn bankans að þegar hún fór loksins inn í kjallarann í fyrradag eftir margra mánaða þref í réttarkerfinu. 3.2.2012 04:00
Segir olíufélögin aðeins fá brot af bensínverðinu "Samsetningin á verðinu er þannig að erlenda verðið og flutningur er 110 krónur. Ríkið er að fá 120 krónur í sinn vasa og innlendir aðilar eru að fá á bilinu 26-27 krónur í sinn hlut,“ segir Hermann Guðmundsson, forstjóri N1. Hann segir að þetta sé einföld staðreynd sem allir geti reiknað sem kunni slíkan reikning. 2.2.2012 22:39
Efnahags- og viðskiptaráðherra vill skoða upptöku Tobin-skatts Efnahags- og viðskiptaráðherra segir vel koma til greina að taka upp skattlagningu á gjaldeyrisviðskipti samhliða afnámi hafta. Prófessor í hagfræði segir að slík skattlagning eða upptaka evru með aðild að Evrópska myntbandalaginu, sé eina leiðin fyrir Íslendinga til að afnema verðtryggingu og fá stöðugt verðlag hér á landi. 2.2.2012 20:00
Þrír starfsmenn KPMG í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara Þrír starfsmenn endurskoðunarfyrirtækisins KPMG hafa verið færðir til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara en starfsmenn embættisins komu í höfuðstöðvar KPMG í morgun. 2.2.2012 14:31
Össur hannar sóla í samstarfi við Nike íþróttaframleiðandinn Nike er kominn í samstarf með stoðtækjaframleiðandanum Össuri. Fyrirtækið hannar og þróar hlaupasóla yfir gervifót sem Nike mun svo framleiða. 2.2.2012 14:53
Hrafnhildur og Garðar Hólm hlutu verðlaun Skúla Fógeta Í tilefni af 300 ára afmæli Skúla Magnússonar Fógeta þann 11. desember 2011 ákvað fyrirtækið GAMMA að stofna til verðlauna sem afhent verða árlega fyrir bestu meistararitgerð á sviði fjármála og efnahagsmála á árinu 2011. Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Garðar Hólm Kjartansson deila verðlaunum að þessu sinni. 2.2.2012 13:19
Nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs 365 miðla Gunnlaugur Þráinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri markaðssviðs 365 miðla. Gunnlaugur er rekstrarfræðingur að mennt og var markaðsstjóri N1 s.l. þrjú ár. 2.2.2012 12:39
Rannsóknarskýrslu um lífeyrissjóði skilað á morgun Skýrslu sérstakrar rannsóknarnefndar um starfsemi lífeyrissjóða fyrir hrun verður skilað á morgun klukkan 14:00 til forsvarsmanna Landssamtaka lífeyrissjóða. Hrafn Bragason, fyrrverandi Hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndarinnar, staðfesti þetta við fréttastofu í morgun. 2.2.2012 10:48
Byggðastofnun lánaði 4,6 milljarða til ferðaþjónustu Í árslok í fyrra voru heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 4,6 milljarðar kr. Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar kr. til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi. 2.2.2012 10:38
Vöruskiptin voru neikvæð í desember Vegna villu í grunngögnum í desember þarf að leiðrétta bráðabirgðatölur um vöruskiptin við útlönd í fyrra . Útflutningur í desember 2011 lækkar því um 7,6 milljarða kr. í heild sem þýðir að vöruskiptin voru neikvæð um 0,6 milljarða kr. í þeim mánuði. 2.2.2012 09:11
Hætt að hafa Nóatúnsverslanir opnar allan sólarhringinn Nóatúnsverslanir eru ekki lengur opnar allan sólarhringinn, eins og verið hefur frá því í mars árið 2010. 2.2.2012 06:55
Á öndverðum meiði um næstu vaxtáákvörðun Sú athyglisverða staða er komin upp viku fyrir næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans að fjárfestar og sérfræðingar eru á öndverðum meiði um hvort vextirnir verði hækkaðir eða ekki. 2.2.2012 06:50
Hægt að beisla verðbólguna með evru eða Tobin-skatti Náin tengsl breytinga á gengi krónunnar og verðbólgu hafa orðið til þess að rýra trúverðugleika Seðlabankans. Þetta kemur fram í nýrri grein Gylfa Zoëga hagfræðiprófessors í nýjasta hefti efnahagsritsins Vísbendingar. Gylfi, sem sæti á í peningastefnunefnd Seðlabankans, bendir á að árið 2003 sé eini tíminn þar sem bankinn hafi náð verðbólgumarkmiði sínu. 2.2.2012 06:00
Ákvörðun tekin á næstu dögum Frestur til að skila bindandi tilboðum í hlut þrotabúa Landsbankans, sem á 67%, og Glitnis, sem á 10%, í Iceland Foods rann út á þriðjudagskvöld. 2.2.2012 03:15
Stefnir ríkinu vegna ásakana um peningaþvætti Friðjón Þórðarson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfafyrirtækisins Virðingar, hefur stefnt íslenska ríkinu vegna meðferðar lögregluyfirvalda á sakamáli gegn honum. Stefnan verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. 1.2.2012 22:33
Vill að Samkeppniseftirlitið skoði verðlagningu olíufélaganna Olíufélögin hafa sætt færis og lætt inn hækkunum á álagi sínu á bensín samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði og skattahækkunum. Þetta segir formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem villl að Samkeppniseftirlitið skoði hvort að ekki óeðlilegt að verðmunur á milli olíufélaga sé aðeins þrjátíu aurar. 1.2.2012 19:12
Halldór J. samþykkti að vera áfram gegn 125 milljóna greiðslu Halldór J. Kristjánsson, sem var bankastjóri Landsbankans við hlið Sigurjóns Þ. Árnasonar, óskaði eftir að láta af störfum hjá bankanum í ágúst 2008, rétt fyrir hrunið, en ákvað að vera áfram gegn 125 milljóna króna greiðslu. Sigurjón Þ. Árnason, fékk þá sömu greiðslu, sem fór beint í einkalífeyrissjóð hans hjá bankanum. 1.2.2012 19:06
World Class opnar tíundu líkamsræktarstöðina World Class opnar nýja líkamsræktarstöð í Egilshöll í Grafarvogi næstkomandi mánudag. Um verður að ræða tíundu líkamsræktarstöðina sem World Class rekur á höfuðborgarsvæðinu, en sú stærsta er í Laugardal eins og flestir vita. 1.2.2012 20:47
Útboð á sérleyfum til olíurannsóknar stendur nú sem hæst Útboð á sérleyfum til olíurannsókna og -vinnslu á Drekasvæðinu stendur nú sem hæst samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. 1.2.2012 15:16
Sparnaður Sigurjóns fimmfaldaðist á þremur árum Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, gerði róttækar breytingar á lífeyrissparnaði sínum rétt fyrir bankahrunið. Þá fimmfaldaðist sparnaður Sigurjóns á þremur árum og stóð í 566 milljónum króna í haust, en þessar upplýsingar komu fram við aðalmeðferð í máli hans gegn Landsbankanum. Tveimur mánuðum fyrir hrun keypti hann eignir í erlendum myntum, m.a skuldabréf rússneska fyrirtækisins Gazprom. 1.2.2012 13:41
Einstaklingum líði betur í jafnara samfélagi "Ég ætla að gefa þér hundrað þúsund kall. Ertu sáttur?" spyr Ragna Benedikta Garðarsdóttir, doktor í félagssálfræði, fréttamann í nýjasta þætti Klinksins. 1.2.2012 20:15
Efnishyggjan aukist eftir hrun Rannsóknir lektors í sálfræði við Háskóla Íslands benda til þess að efnishyggja sé að aukst á Íslandi eftir hrun bankanna. Hún segir að efnishyggja fólks hafi ráðið meiru um skuldsetningu þess en bæði tekjur og fjármálalæsi. 1.2.2012 18:45
Þrotabú Landsbankans fer yfir tilboð í Iceland Foods Verið er að skoða þau tilboð sem bárust inni í Iceland Foods verslunarkeðjuna samkvæmt upplýsingum frá þrotabúi Landsbankans. Reuters greindi frá því fyrr í dag að talið væri að fjárfestingasjóðirnir Bain Capital og BC Partners væru meðal þeirra sem hefðu gert tilboð í keðjuna. 1.2.2012 14:50
Nokkur munur á loðnuverði til sjómanna hér og í Noregi Nokkur munur er á því verði sem íslenskir sjómenn fá fyrir loðnuna og norskir. Þannig er opinbert verð á kílói á loðnu til manneldis, það er frystingar, um 38 krónur í Noregi. Hér heima er verðið rétt fyrir innan 30 krónur. 1.2.2012 10:37
Sigurjón krefst afhendingar á sparnaðinum sínum Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankstjóri Landsbankans, krefst viðurkenningar á því að í gildi sé samningur milli hans og Landsbankans um viðbótarlífeyrissparnað og þá krefst hann afhendingar á skuldabréfum sem keypt voru fyrir sparnaðinn, en aðalmeðferð í máli hans gegn Landsbankanum stendur nú yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur. 1.2.2012 09:51
Fyrirsjáanlegt að afkoma búanna skerðist Viðbúið er að afkoma íslenskra svínabænda verði lakari, komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Svínaræktarfélag Íslands, um stöðu og horfur í svínarækt. 1.2.2012 06:00