Viðskipti innlent

Utanferðir Íslendinga jukust um 22% milli ára í október

Nýjar tölur Ferðamálastofu eru til marks um að stöðugt fleiri Íslendingar láta undan útþrá sinni. Þannig héldu mun fleiri Íslendingar utan nú í október en á sama tíma í fyrra, eða ríflega 34 þúsund í nýliðnum mánuði á móti tæpum 25 þúsund í október í fyrra. Þetta jafngildir aukningu upp á 22,2%.

Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka segir að þessi þróun sé í takti við þá þróun sem verið hefur á árinu, að aprílmánuði undanskildum þegar eldgosið í Eyjafjallajökli lét verulega til sín taka.

Frá áramótum talið hefur brottförum Íslendinga fjölgað um 13,7% frá sama tímabili í fyrra og telja má líklegt að aukningin hefði verið enn meiri við eðlilegar aðstæður. Þrátt fyrir þessa aukningu miðað við árið 2009 er ljóst að enn er langt í land að jafn margir Íslendingar haldi erlendis og tíðkaðist fyrir kreppu.

Er það eðlilegt miðað við það mikla fjárhagslega högg sem mörg heimili hafa orðið fyrir sem og gengishrun íslensku krónunnar. Þegar brottfarir á fyrstu tíu mánuðum ársins eru bornar saman við brottfarir á sama tímabili árið 2008 kemur í ljós að þær eru 33,5% færri í ár en borið saman við 2007 nemur fækkunin 34,8%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×