Viðskipti innlent

Réttarhöldum yfir sjömenningunum frestað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og öðrum sem stefnt var fyrir dómstóli í New York hefur verið frestað.
Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og öðrum sem stefnt var fyrir dómstóli í New York hefur verið frestað.
Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum sem fara áttu fram í dag í New York í Bandaríkjunum hefur verið frestað.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá slitastjórn Glitnis var réttarhöldunum frestað til að gefa málsaðilum tækifæri til að leggja fram frekari greinagerðir til að koma að athugasemdum um skjöl sem nýverið hafa komið í leitirnar og hafa verið efni bréfaskipta milli málsaðila og dómstólsins undanfarnar tvær vikur.

Þá hafa varnaraðilar tekið fram að þeir muni draga til baka lögfræðiálit Brynjars Níelssonar og að þeir muni leggja fram aðra yfirlýsingu frá íslenskum sérfræðingi, og verður nafn hans kynnt síðar.

Glitnir ætlar að tilkynna um nýja dagsetningu á réttarhöldunum þegar málsaðilar og dómstóllinn hafa komið sér saman um hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×