Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
GAMMA: Talsverð velta í Kauphöllinni í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 1% í dag í 24,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 1,3% í 17,6 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 7,1 ma. viðskiptum. 9.9.2010 16:14
Skuldatryggingarálagið lækkar hér en hækkar í Evrópu Skuldatryggingarálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands hefur verið nokkuð stöðugt upp á síðkastið. Íslandsbnaki bendir á það í Morgunkorni sínu að við lok dags í gær hafi álagið staðið í 315 punktum (3,15%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. 9.9.2010 13:44
Seðlabankinn mótmælir afstöðu slitastjórnar Seðlabanki Íslands hefur andmælt afstöðu slitastjórnar Icebank til krafna upp á yfir 200 milljarða króna en nú tekur við formlegt sáttarferli í málinu. Náist ekki að semja verður málinu vísað til dómstóla. 9.9.2010 12:06
Hagar keyptu eigin bréf af stjórnendum fyrir milljarð Hagar keyptu eigin bréf af helstu stjórnendum félagsins fyrir rúman milljarð. Þá vildu helstu lífeyrissjóðir landsins ekki fjárfesta í Högum með Jóhannes Jónsson innanborðs. 9.9.2010 11:49
Engin metvelta í Kauphöllinni í gær Velta á skuldabréfamarkaði í gær var ekki sú mesta frá áramótum. Í tilkynningu frá Nasdaq OMX Iceland kemur fram að veltan í gær var 25,4 milljarðar en ekki tæpir 29 milljarðar eins og ranghermt var á Vísi í gær. Veltumesti dagurinn hingað til á árinu er því enn 12. mars, þegar veltan var rúmir 26 milljarðar. 9.9.2010 11:39
Deutsche Bank gæti létt á erlendum skuldum Íslands um 10% Leiða má góðar líkur að því að Deutsche Bank sé að létta á erlendri skuldastöðu íslenska þjóðarbúsins um 10% eða 300 milljarða kr. 9.9.2010 07:13
Ísland fellur um sex sæti í samkeppnisvísitölu Ísland er nú í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) 2010-2011 en var í 26. sæti fyrir ári síðan. Samkeppnishæfnivísitalan byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífinu. 9.9.2010 06:57
Rannsóknarstofa í hreyfivísindum samdi við Össur Rannsóknastofa í hreyfivísindum við Námsbraut í sjúkraþjálfun og Össur hf. hafa undirritað samning þess efnis að Rannsóknastofa í hreyfivísindum og Össur muni hafa með sér samstarf við rannsóknir og prófanir á stoð- og stuðningstækjum úr framleiðslulínu Össurar, auk grunnrannsókna sem gætu leitt til þróunar á nýrri vöru. Tveimur samstarfsverkefnum er þegar lokið og kom Nýsköpunarsjóður námsmanna að öðru þeirra. 8.9.2010 18:30
Kröfuhafar taka yfir Existu Kröfuhafar Exista ehf. samþykktu með 97,35% atkvæða frumvarp til nauðasamnings fyrir Exista í dag. Samkvæmt nauðasamningnum fá kröfuhafar full yfirráð yfir félaginu. 8.9.2010 17:23
Ástarbréfin sögð málamyndagjörningur Slitastjórn Sparisjóðabanka Íslands segir að yfirmenn Seðlabankans hafi leynt raunverulegri stöðu viðskiptabankanna rétt fyrir hrun þegar Seðlabankinn lánaði bankanum ríflega tvöhundruð milljarða króna í endurhverfum viðskiptum. Þessir samningar hafa síðan verið kallaðir ástarbréf. 8.9.2010 15:36
Engin ríkisaðstoð - ákvörðunin var viðskiptalegs eðlis Fjármálaráðuneytið segir í tilkynningu að engin fyrirmæli um kaup á eignunum úr sjóðunum voru gefin út af stjórnvöldum vegna peningamarkaðssjóða hér á landi. Ráðuneytið lítur svo á að ákvörðunin hafi verið viðskiptalegs eðlis. 8.9.2010 14:15
ESA rannsakar ríkisaðstoð vegna peningamarkaðssjóðanna Eftirlitsstofnun EFTA hóf í dag rannsókn á því hvort ríkisábyrgð á Peningamarkaðssjóðunum hafi verið ólögleg. Þetta kemur fram á vefsíðu ESA í dag. 8.9.2010 13:35
Segir ríkisstjórn fæla erlenda fjárfesta frá með seinagangi Seinagangur um nauðsynlegar breytingar á reglugerðum um VSK og óskýr svör ráðamanna vegna uppbyggingu gagnavera hefur dregið mjög úr trúverðugleika Íslands og hugsanlega fælt erlenda viðskiptavini frá landinu að mati formanns samtaka íslenskra fyrirtækja í gagnaversiðnaði. 8.9.2010 13:17
Greining: Ekkert að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt Greining Íslandsbanka segir að ekkert sé að marka tölur Hagstofunnar um hagvöxt og breytingar á landsframleiðslunni milli ára og ársfjórðunga. 8.9.2010 10:57
Ólafur Ragnar: Bankarnir ekki á ábyrgð íslenska ríkisins Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson segir að íslensku bankarnir sem hrundu haustið 2008 hafi verið einkabankar og þar með ekki á ábyrgð ríkisins. Hinsvegar hefði íslenska ríkið ætíð staðið við skuldbindingar sínar og greitt að fullu þau lán sem það hefur tekið. 8.9.2010 10:20
Laun hækkuðu um 1,2% milli ársfjórðunga Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,2% hærri á öðrum ársfjórðungi 2010 en í ársfjórðungnum á undan. 8.9.2010 09:11
Voldugur og flottur Maður kann hálfilla við að kalla Audi Q7 jeppling, enda er hann stór og voldugur. Heitið sportjeppi fer honum betur. Tekin var til kostanna 2007 árgerðin af þessum bíl, Audi Q7 TDi með þriggja lítra dísilvél, hlaðinn aukabúnaði og hægindum. Spurningunni um hvort bíllinn standi undir því að vera kallaður „forstjórabíll“ er auðsvarað, hann gerir það vel. 8.9.2010 08:30
Skattaskýrsla fæðist „Við erum að leggja lokahönd á áfangaskýrsluna. Hún verður afhent ráðherra í vikunni,“ segir Maríanna Jónasdóttir, fulltrúi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og formaður starfshóps á vegum fjármálaráðuneytis, sem leggja á fram heildstæðar tillögur að breytingum á skattkerfinu. 8.9.2010 08:30
Vill landið úr höndum hagsmunahópa Stjórnvöld eiga að nýta kreppuna og byggja upp nýjan iðnað. Draga á úr stuðningi við landbúnað, sjávarútveg og áliðnað. Þrátt fyrir áherslu á ferðaþjónustu má ganga enn lengra, að sögn Seiichiro Yonekura, forstöðumanns í nýsköpunarfræðum við Hitotsubashi-háskólann í Japan. 8.9.2010 08:00
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 24 milljarða Nokkuð gekk á gjaldeyrisforða Seðlabankans í ágústmánuði en þá rýrnaði hann um tæplega 24 milljarða króna. 8.9.2010 07:48
Vill framleiðsluna í hendur fólksins „Von mín er að draga fram hugmyndir um það hvernig valddreifing í samfélaginu er háð stjórnun á framleiðslugetu og vekja fólk til umhugsunar um það hvernig við getum komið henni í hendur almennings,“ segir Smári McCarthy, einn stofnenda og ritari Félags um stafrænt frelsi á Íslandi. 8.9.2010 07:30
Skilanefndir bankanna - hvaða fyrirbæri eru þetta? Skilanefndir og slitastjórnir gömlu bankanna hafa verið í kastljósinu allt frá því að þær tóku við stjórn bankanna í gjörningaveðri á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í október fyrir tæpum tveimur árum. 8.9.2010 07:00
ESB mundar pennann Viðræður standa nú yfir um leigu sendinefndar Evrópusambandsins (ESB) hér á landi á húsnæði í miðborg Reykjavíkur. Stefnt mun að því að skrifa undir leigusamning í vikulokin og áætlar nefndin að opna upplýsingaskrifstofu fyrir gesti og gangandi sem vilja fræðast um ESB í nýju húsnæði á næsta ári. 8.9.2010 07:00
Færðu 90 milljarða frá Englandsbanka Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans varð að semja við nokkra af stærstu bönkum Evrópu svo þeir tækju ekki innstæður hennar upp á jafnvirði níutíu milljarða króna upp í kröfur. Bankarnir eru margir hverjir kröfuhafar þrotabús Landsbankans. 8.9.2010 06:30
Forstjóri rauk upp í tekjum Urgur var meðal starfsmanna Símans eftir að álagningarskrár skattstjóra í sumar gáfu til kynna að forstjóri félagsins, Sævar Freyr Þráinsson, hefði rokið upp í launum milli 2008 og 2009, fengið 5,3 miljónir króna á mánuði í stað 2,5 milljóna áður. Starfsmenn Símans sem höfðu yfir 350 þúsund krónur á mánuði tóku á sig launalækkun eftir hrunið. 8.9.2010 04:00
SA: Misvísandi skilaboð um hagþróun Samtök atvinnulífsins vilja vekja sérstaka athygli á þýðingu fjárfestinga fyrir íslenskt samfélag nú þegar afar misvísandi skilaboð um hagþróun koma fram og skapa mikla óvissu um þróun atvinnulífsins og efnahags þjóðarinnar. 7.9.2010 16:28
GAMMA: Skuldabréfavísitalan hækkaði lítillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 16,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 7,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 7,5 ma. viðskiptum. 7.9.2010 16:00
Afkoma Íslandsbanka jákvæð um rúma átta milljarða Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshluta 2010 var samkvæmt könnuðum árshlutareikningi jákvæð um 8,3 milljarða króna og er tekjuskattur tímabilsins áætlaður 2.347 milljónir króna. Frá þessu er greint á heimasíðu bankans en eiginfjárhlutfall hans var 21,5% sem er talsvert hærra en það 16% lágmark sem Fjármálaeftirlitið hefur sett bankanum. Arðsemi eigin fjár var 17,1%. 7.9.2010 14:00
Samorka óttast spekileka í jarðhitanýtingu Stjórn Samorku lýsir verulegum áhyggjum af þeirri stöðu sem upp er komin vegna tafa á verkefnum í jarðhitanýtingu hérlendis. Í tilkynningu frá Samorku segir að á örfáum misserum hafi orðið gríðarlegur tekjusamdráttur hjá lykilþjónustuaðilum orkufyrirtækja á borð við Jarðboranir, ÍSOR-Íslenskar orkurannsóknir og verkfræðistofurnar. 7.9.2010 11:46
Raungengi krónunnar hefur hækkað um 12,5% í ár Raungengi krónu hækkaði í ágústmánuði um 2,1% frá fyrri mánuði, sé miðað við hlutfallslegt neysluverð. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans var vísitala raungengis á ofangreindan mælikvarða 76,6 stig í júlí. Það sem af er ári hefur raungengið hækkað um 12,5% á þennan mælikvarða. 7.9.2010 10:45
Actavis haslar sér völl á sviði líftækni Actavis ætlar að hasla sér völl á sviði líftækni og mun hefja áreiðanleikakönnun á svissneska líftæknifyrirtækinu Biopartners á næstunni. Ef af kaupunum verður eignast Actavis 51% hlut í Biopartners. 7.9.2010 09:32
Nýskráningar bíla aukast um 21,6% Nýskráningar bíla í janúar-ágúst voru 2.822 sem er 21,6% aukning frá janúar- ágúst í fyrra. 7.9.2010 09:16
Raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu Kreditkortavelta heimila jókst um 7,7% í janúar-júlí í ár miðað við janúar-júlí í fyrra. Debetkortavelta jókst um 3,5 % á sama tíma. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 9,8% (miðað við meðaltal vísitölunnar í janúar-júní) sem veldur 3,8% raunlækkun á innlendri greiðslukortaveltu. 7.9.2010 09:12
Vöruskiptin hagstæð um 2,4 milljarða í ágúst Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2010 var útflutningur 41,8 milljarður króna og innflutningur 39,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. 7.9.2010 09:02
Mikill viðsnúningur á íbúðamarkaðinum í sumar Greining Íslandsbanka segir að mikill viðsnúningur til hins betra hafi orðið á íbúðamarkaðinum hérlendis í sumar. Kaupsamningum hafi fjölgað um 50% miðað við sama tíma í fyrra. 7.9.2010 08:24
Börsen segir Össur hf. vera gullegg að klekjast út Danska viðskiptablaðið Börsen fer mjög lofsamlegum orðum um stoðtækjaframleiðandann Össur hf. Segir Börsen að Össur sé gullegg sem sé um það bil að klekjast út. 7.9.2010 08:01
Telur líkur á að Seðlabanki sporni við frekari styrkingu krónunnar Leiða má líkur að því að Seðlabankinn kunni að sporna við frekari styrkingu krónunnar með kaupum sínum á gjaldeyri á markaðinum hérlendis. Ástæðan er sú að með sterkari krónu veikist samkeppnisstaða innlendra atvinnuvega sem myndi draga úr afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum. 7.9.2010 07:18
KB ráðgjöf hættir með Vista sparnað Arion banki og KB ráðgjöf hafa hætt að bjóða upp á nýja samninga í lífeyrissparnaðarleiðinni Vista á meðan bankinn endurskoðar reglur um upphafsþóknun í kaupsamningunum. 7.9.2010 05:00
Þingið ræðir söluna á Vestia Utandagskrárumræða um þátttöku lífeyrissjóðanna í endurreisn atvinnulífsins fer fram á Alþingi á morgun. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi en til andsvara er fjármálaráðherra. 6.9.2010 23:37
Deutsche Bank tilkynnti ESB um yfirtökuna á Actavis Actavis samheitalyfjafyrirtækið lýtur fullkomnum yfirráðum Deutsche Bank, ef eitthvað er að marka tilkynningu Deutsche Bank til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Björgólfur Thor taldi fyrir réttu ári að Actavis væri yfirskuldsett og gæti ekki geta staðið undir greiðslum á lánum. Þá taldi hann eigið fé uppurið. Þetta kemur fram í tölvupósti sem hann sendi samstarfsmönnum sínum. 6.9.2010 19:00
GAMMA: Óvanalega mikil velta á mörkuðum í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag í 21,1 ma. viðskiptum sem er fjórði veltumesti dagur ársins. 6.9.2010 16:25
Landinn drakk minna í sumar Sala áfengis dróst örlítið saman yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst miðað við sömu mánuði í fyrra. Á heimasíðu ÁTVR kemur fram að sala á rauðvíni, hvítvíni og freyðivíni hafi verið meiri en sömu mánuði 2009, en sala á bjór og sterkum vínum var minni. 6.9.2010 16:22
Ásta Dís verður framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar Ásta Dís Óladóttir mun á næstu dögum taka við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu Isavia ohf. 6.9.2010 16:18
Dró stórlega úr innflutningi á hráefni til fiskvinnslu Innflutt hráefni til fiskvinnslu dróst saman um 66 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram á vef Hagstofunanr en út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2009. Í ritinu kemur fram að innflutt hráefni til fiskvinnslu var 43.866 tonn árið 2009 og dróst saman í magni um tæp 87 þúsund tonn frá fyrra. 6.9.2010 14:08
Seðlabankinn í óreglulegum kaupum á gjaldeyri Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri Seðlabankans segir að ekki sé rétt að bankinn hafi byrjað boðuð gjaldeyriskaup sín á gjaldeyrismarkaðinum áður en Peningastefnunefnd ákvað upphafsdagsetningu slíkra kaupa. 6.9.2010 12:48