Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. júní 2026 07:03 Arnar Lárusson, stofnandi Tymewear, telur líklegt að innan tveggja til fjögurra ára muni fólk ekki aðeins mæla hjartslátt við æfingar, heldur líka öndun. Enda séu það öndunarmælingar sem tryggi meiri árangur fyrir hvern og einn af æfingum. Vísir/Vilhelm Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan við heyrðum síðast í nýsköpunarfyrirtækinu Tymewear, sem nú hefur þróað nýja vöru sem er að vaxa hratt í heimi íþrótta: VitalPro, lausn sem mælir öndun þannig að fólk nái meiri árangri á æfingum.
Notendur VitalPro eru um allan heim. Þar á meðal hjá 26 atvinnuhjólaliðum, atvinnuþríþrautaköppum, rugby- og fótboltaliðum í efstu deildum í Evrópu. „En langstærsti hluti notenda okkar er venjulegt fólk sem vill bæta þrek og heilsu sína, hvort sem það er fyrir maraþon eða bara til að auka lífsgæði,“ segir Arnar Lárusson, stofnandi Tymewear, og bætir við: Notendur okkar lýsa því hvernig æfingar verða miklu skilvirkari með okkar tækni. Fólk sem hefur staðnað eða hlaupið á vegg lýsir þessu eins og endurnýjun. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt að sjá en kemur í sjálfu sér ekki á óvart.“ Arnar segir það hafa verið mikið rannsakað hversu mikið happdrætti árangur af æfingum er þar sem eingöngu er miðað við hefðbundin tæki eins og GPS-úr eða hjartsláttarmæla. „Æfingar sem miðast við öndunarmælingar hafa sýnt fram á fullkomna skilvirkni og rúmlega tvöfaldan árangur á við hefðbundnar æfingar í tugum rannsókna. Hjartsláttargögn veita ekki upplýsingarnar sem við þurfum til að einstaklingsmiða æfingar. Fólk er því að styðjast við mælingar miðað við eitthvað meðaltal mannskynsins. Þegar staðreyndin er sú að það er engin meðalmanneskja til.“ Upphafið og nú Þegar við heyrðum síðast í Tymew ear var allt á fullu; árið 2020 og undirbúningur fyrir sölu fyrstu vörunnar í Bandaríkjunum. Spennan lá í loftinu og bjartsýnin var algjör. Arnar minnist tímans með hlýju. En segir ótrúlega margt hafa lærst síðan þá. Svona eins og gengur og gerist í heimi nýsköpunar. „Við byrjuðum á því að þróa vöruna sem bol með öndunarnema. Sem var bylting á sínum tíma því fram að því hafði fólk eingöngu getað mælt öndun með grímum á rannsóknarstofum . Nú gat fólk hins vegar farið að mæla öndunina sjálft hvar sem er.“ Strappinn VitalPro er hins vegar skynjari sem er auðvelt fyrir íþróttafólk að festa á sig. „Við vinnum mikið með atvinnufólki í íþróttum og fólki sem stundar rannsóknir á þessu sviði. Beinum spjótunum þá helst að þrekgreinum þar sem upptakan er hvað mest,“ segir Arnar og vísar sérstaklega til hjólreiðakeppninnar Tour de France þar sem rúmlega helmingur liða notar tæknina í dag. „Endurgjöfin sem við fengum í upphafi var hins vegar sú að bolurinn væri ekki nógu praktískur. Hann væri of heitur á sumrin og erfitt að nota hann á hverri einustu æfingu.“ „Notendur okkar báðu okkur um lausn sem þeir gætu með auðveldu móti notað á hverri æfingu án fyrirhafnar.“ Áhuginn fyrir öndunarmælingunum var vakinn og ljóst að nú yrði ekki aftur snúið. Við birtum fyrst VitalPro-strappann á árlegri ráðstefnu við opnun Tour de France og við höfðum ekki undan. Fólk stóð í röðum við básinn og spurði: Hvenær hefst salan?“ VitalPro mælir öndun og hjartslátt en Arnar segir markmiðið að allir sem æfa líkamsrækt og íþróttir styðjist við öndunarmælingar til að ná sem mestum árangri. Strappi í útlöndum VitalPro mælir öndun og hjartslátt. Úr gögnunum er gerð þolgreining sem er undirstaða markvissra og einstaklingsmiðaðra æfinga. Arnar segir gagnasöfnunina nú þegar telja hundruð þúsunda æfinga í hverjum mánuði. „Þessi gögn hafa enga hliðstæðu hvað dýpt og nákvæmni varðar og eru að leggja grunninn að öflugu þjálfunarkerfi sem byggist á gögnum hvers og eins. Við erum núna farin í loftið með einstaklingsmiðaðar æfingar, æfingaplön sem blanda saman einstaklingsmiðuðum mælingum og sjálfvirkni við framleiðslu æfinganna.“ Arnar segir notendur á aldrinum 18–80 ára en meðalaldurinn sé fólk um fimmtugt. Markmiðið sé að allir sem æfa líkamsrækt og íþróttir styðjist við öndunarmælingar til að ná sem mestum árangri. Í samtali við Arnar heyrist þó að í raun snúist verkefnið um meira en að ná enn betri árangri í maraþoni eða að byggja upp góðan rekstur. Hugsjónin er ríkjandi líka: Það er fyrirséður heimsvandi ef lífsstílssjúkdómar fara að hrjá tvær billjónir manna vegna hreyfingarleysis. Liður í að sporna við því vandamáli er að happdrættið yfir því hvort fólk sé að ná árangri með hreyfingum eða ekki sé ekki svona mikið. Að hreyfingar séu örugglega að skila sér fyrir hvern og einn.“ VitalPro er einkaleyfisvarin lausn en Tymewear er staðsett í Boston í Bandaríkjunum, en þar hefur félagið fengið um 5,5 milljónir dollara í fjármögnun. Arnar segir líklegt að frekari fjármögnun sé fram undan. Félagið sé enn að þróa vöruna, samhliða því að stækka. Sjálfur segist Arnar stökkva á milli heimsálfa. Því á Íslandi býr fjölskyldan en vinnan er í Boston, framleiðslan í Kína og samstarfsaðilar um heim allan. „Miðað við árangurinn sem notendur okkar eru að sjá, held ég að innan tveggja til fjögurra ára muni engum finnast það meika sens að mæla eingöngu hjartslátt eða GPS við æfingar. Fólk mun mæla öndun og hjartslátt til að átta sig betur á því hvernig það nær árangri.“
Nýsköpun Heilsa Tengdar fréttir Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01 Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01 Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ „Ég hef verði dolfallinn af ljósum frá því að ég man eftir mér. Fimm ára gamall var ég farinn að safna ljósaperum. Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur,“ segir Karl Jónsson, Chief of Strategy hjá fyrirtækinu LUUM.IO í Bandaríkjunum. 14. maí 2024 07:00 „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi. 6. maí 2024 07:01 „Þarna sátum við Pétur eins og útspýtt hundskinn að reyna að verja okkur“ Það er eins og spennusaga að heyra um baráttu Nox Medical við það að verja einkaleyfið sitt. Þar sem stóri aðilinn ætlaði sér einfaldlega að drepa þann litla. 2. nóvember 2023 07:00 Mest lesið Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Við elskum flest velgengnissögur. Eins og til dæmis það að Marel hafi hér um árið keypt hátæknifyrirtækið Völku; nýsköpunarfyrirtæki sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað. 23. apríl 2026 07:01
Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum. 22. apríl 2026 07:01
Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ „Ég hef verði dolfallinn af ljósum frá því að ég man eftir mér. Fimm ára gamall var ég farinn að safna ljósaperum. Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur,“ segir Karl Jónsson, Chief of Strategy hjá fyrirtækinu LUUM.IO í Bandaríkjunum. 14. maí 2024 07:00
„Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi. 6. maí 2024 07:01
„Þarna sátum við Pétur eins og útspýtt hundskinn að reyna að verja okkur“ Það er eins og spennusaga að heyra um baráttu Nox Medical við það að verja einkaleyfið sitt. Þar sem stóri aðilinn ætlaði sér einfaldlega að drepa þann litla. 2. nóvember 2023 07:00