Færðu 90 milljarða frá Englandsbanka 8. september 2010 06:30
Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans varð að semja við nokkra af stærstu bönkum Evrópu svo þeir tækju ekki innstæður hennar upp á jafnvirði níutíu milljarða króna upp í kröfur. Bankarnir eru margir hverjir kröfuhafar þrotabús Landsbankans. Innstæðurnar eru afborganir af útlánum Landsbankans í Bretlandi sem skilanefndin tók út hjá Englandsbanka, seðlabanka Bretlands, í júlí. Skilanefndin lagði féð upphaflega inn í Englandsbanka í kjölfar fyrirmæla breska fjármálaeftirlitsins 3. október 2008 um að bankanum væri óheimilt að flytja féð úr landi. Þetta var fimm dögum áður en bresk stjórnvöld beittu hryðjuverkalögum og kyrrsettu eignir bankans í Bretlandi. Tilmælin hindruðu ekki flutning á fénu innan Bretlands. Skilanefndin taldi hins vegar hyggilegast í skugga hremminga á alþjóðlegum fjármálamörkuðum að leggja féð inn í Englandsbanka þrátt fyrir afar lága vexti þar líkt og jafnan er hjá seðlabönkum. Stýrivextir í Bretlandi hafa staðið í 0,5 prósentustigum í eitt og hálft ár. Hryðjuverkalögum gagnvart Landsbankanum var aflétt í júní í fyrra og fékk skilanefnd bankans heimild hjá úrskurðarnefnd fjármálafyrirtækja ytra til að flytja innstæðuna úr landi. Samkvæmt upplýsingum frá skilanefnd Landsbankans var innstæðan í Englandsbanka jafnvirði tæpra hundrað milljarða króna í evrum og breskum pundum. Um níutíu milljarðar króna voru fluttir úr landi í júlí. Upphæðin dreifðist á nokkra banka í Evrópu utan Bretlands þar sem vextir eru hærri. Afgangurinn, jafnvirði tíu milljarða króna, liggur enn í hirslum Englandsbanka.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira