Hagar keyptu eigin bréf af stjórnendum fyrir milljarð Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. september 2010 11:49 Finnur Árnason, forstjóri Haga. Hann og samstarfsmenn hans seldu hlutabréf sín í Högum í þremur atrennum frá miðju sumri 2008 til október 2009 fyrir rúman milljarð króna. Arion banki segist ekki hafa átt neina aðkomu að viðskiptunum. Mynd/GVA
Hagar keyptu eigin bréf af helstu stjórnendum félagsins fyrir rúman milljarð. Þá vildu helstu lífeyrissjóðir landsins ekki fjárfesta í Högum með Jóhannes Jónsson innanborðs. Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að Hagar hafi keypt eigin bréf af helstu stjórnendum sínum fyrir rúman milljarð króna frá miðju ári 2008 og fram í október á síðasta ári, sem var um það leyti sem Arion banki var að taka verslanakeðjuna yfir. Þetta voru bréf í eigu Finns Árnasonar, forstjóra Haga, Jóhönnu Waagfjörð, fjármálastjóra Haga og Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. Félagið keypti bréf stjórnendanna í þremur atrennum, síðast í október 2009, en hinn 19. október sama ár var félagið tekið yfir af Kaupþingi, nú Arion banka. Miðað við síðustu viðskipti þá er virði Haga 22,6 milljarðar króna. Iða Brá Benediktsdóttir, talsmaður Arion banka, sagði í svari við fyrirspurn fréttastofu nú í morgun að kaupin á hlutabréfunum hefðu alfarið verið ákveðin og átt sér stað áður en bankinn tók Haga yfir, bankinn hafi því enga aðkomu átt að viðskiptunum. Í fréttaskýringu Viðskiptablaðsins í dag er jafnframt greint frá því að helstu lífeyrissjóðir landsins hafi neitað að fjárfesta í Högum á meðan Jóhannes Jónsson kaupmaður var stjórnarformaður fyrirtækisins, en honum var tryggður forkaupsréttur á hlutum í félaginu. Viðskiptablaðið greinir frá því að þessi skoðun hafi komið mjög skýrt fram á kynningarfundum sem fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hélt fyrir lífeyrissjóðina fyrr á þessu ári. Blaðið greinir frá því að ástæða þess að sjóðirnir vildu ekki vinna með Jóhannesi sé sú að þeir töpuðu gríðarlegum fjárhæðum á því að kaupa skuldabréf í fyrirtækjum sem tengdust Jóhannesi og Jóni Ásgeiri syni hans. Iða Brá Benediktsdóttir, talsmaður Arion banka, staðfesti umfjöllun Viðskiptablaðsins við fréttastofu í megindráttum. Í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu segir hún: „Það kom upp á fundum með aðilum sem líklegir eru til bjóða í Haga þegar félagið fer í söluferli að sumir þeirra litu aðkomu stjórnarformannsins neikvæðum augum. Eins og áður hefur komið fram þá lýsti Jóhannes því yfir opinberlega að hann hygðist freista þess að kaupa félagið. Við það var ljóst að það samrýmdist ekki lengur hagsmunum bankans og áformum um opið söluferli að hann yrði þar áfram innanborðs." Fréttastofa náði tali af Jóhannesi Jónssyni í morgun en hann sagðist ekki hafa séð umfjöllun Viðskiptablaðsins og vildi ekkert tjá sig um málið. Jón Ásgeir Jóhannesson er kvæntur Ingibjörgu Pálmadóttur sem er stærsti hluthafinn í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
Mest lesið Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira