Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn lækkar gengi fyrirtækja í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa Marels féll um 2,6 prósent í Kauphöllinni í dag. Önnur hreyfing var ekki á markaðnum. 21.5.2010 16:29
Rólegt á skuldabréfamarkaðinum Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 5 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 0,7 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 4,2 milljarða kr. viðskiptum. 21.5.2010 15:48
Arion banki yfirtekur hluta af starfsemi BM Vallá Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur gert samkomulag við Arion banka um að bankinn taki yfir hluta af steypustarfsemi BM Vallár en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota fyrir skömmu. 21.5.2010 15:43
Landsbankinn kaupir eignir úr þrotabúi BM Vallár Skiptastjóri þrotabús BM Vallár hefur tekið tilboði Landsbankans um kaup bankans á rekstrareiningunum Vírneti í Borgarbyggð, Límtré á Flúðum og Yleininga í Reykholti en þessar rekstrareiningar voru sá hluti af rekstri BM Vallár hf. sem fjármagnaður var af Landsbankanum. 21.5.2010 15:32
Marel styður við leikskólana í Garðabæ Marel afhenti leikskólunum í Garðabæ gjöf í dag til eflingar kennslu á sviði raungreina og náttúruvísinda. Leikskólarnir níu sem starfræktir eru í Garðabæ fengu hver um sig afhenta víðsjá og pakka með ýmsum öðrum kennslubúnaði, að því er segir í tilkynningu. 21.5.2010 15:22
Uppboðsmarkaður gæti verið hluti af afléttingu haftanna Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra segir að vel gæti komið til greina að setja á fót uppboðsmarkað með gjaldeyri sem hluta af afléttingu gjaldeyrishaftanna í náinni framtíð. 21.5.2010 15:05
Öflugt atvinnumálaráðuneyti styrkir atvinnulífið Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) fagna því að stefnt skuli að fækkun ráðuneyta og þannig stefnt að hagræðingu og nauðsynlegum sparnaði hjá hinu opinbera. Samtökin telja að öflugt atvinnumálaráðuneyti muni styrkja atvinnulífið. 21.5.2010 14:22
Afkoma Reykjanesbæjar mun betri en áætlanir Afkoma bæjarsjóðs Reykjanesbæjar á fyrsta ársfjórðungi ársins var mun betri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarafgangur bæjarsjóðs fyrstu 3 mánuðina er 65 milljónir króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að rekstrarhalla á þessu tímabili upp á 277 milljónir króna. 21.5.2010 12:56
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hækkar áfram Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur hækkað nokkuð allra síðustu daga. Í lok dagsins í gær stóð álagið til 5 ára í 367 punktum (3,67%) og hafði það hækkað um heila 90 punkta frá því síðastliðinn föstudag. 21.5.2010 12:30
Dótturfélög Landsbankans hafa frítt spil um launastefnu Dótturfélögum Landsbankans er gefið frítt spil með launastefnu eftir að Samkeppniseftirlitið gerði þá kröfu um að félögin yrðu færð frá bankanum. Nú hefur Kjararáð ekkert um laun stjórnenda þessara fyrirtækja að segja. Landsbankinn segir að launastefna hjá dótturfélögum sé hins vegar ekki frábrugðin stefnu bankans og að þar séu engir hálaunamenn. 21.5.2010 12:08
Ástralar vilja leita að gulli austur á fjörðum Ástralskt fyrirtæki, Platina Resources, hefur sótt um rannsóknarleyfi til Orkustofnunnar til að leita að gulli og öðrum málmum á Austurlandi. Lárus Ólafsson lögmaður Orkustofnunar segir að Platina Resources hafi haft samband við stofnunina fyrir ári síðan. Samskiptin hafa nú leitt til umsóknar Ástralana. 21.5.2010 11:56
Jón Ólafsson gerir stóran samning við Hilton hótelin Icelandic Water Holdings, að stórum hluta í eigu Jón Ólafssonar, hefur gert stóran samning við Hilton hótelkeðjuna í Bandaríkjunum um sölu á Icelandic Glacial vatni sínu. Niðurstaðan er að Icelandic Glacial verður hér eftir helsta átappaða drykkjarvatnið á 750 hótelum Hilton um alla Norður-Ameríku. 21.5.2010 10:39
Uppboðsmarkaður með gjaldeyri léttir á stöðunni Valdimar Ármann hagfræðingur hjá hinu óháða fjármálafyrirtæki GAM Management segir að samhliða gjaldeyrishöftum geti uppboðsmarkaður með gjaldeyri verið nytsamlegur til að létta á „óþolinmóðu" fjármagni. 21.5.2010 09:59
Vangaveltur um hvað SÍ geri við Lúxemborgarbréfin Greining Arion banka veltir fyrir sér hvernig krónueignum þeim sem Seðlabanki Íslands (SÍ) eignaðist í vikunni með samkomulagi við Seðlabankann í Lúxemborg. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um ráðstöfun eignanna en þær nema 120 milljarða kr. eins og kunnugt er. 21.5.2010 09:56
Vísitala byggingarkostnaðar hækkar milli mánaða Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan maí 2010 er 101,8 stig sem er hækkun um 0,8% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í júní 2010. 21.5.2010 09:04
Stór hluti heimila í vanskilum eða ná ekki endum saman Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. 21.5.2010 09:02
Opera Software flytur gagnavinnslu sína til Íslands Norska fyrirtækið Opera Software mun flytja gagnavinnslu sína til Íslands. Hefur Opera samið við íslenska fyrirtækið Thor Data Center um málið. Reiknað er með að starfsemi Opera muni valda stórfelldri aukingu á gagnaflutningum um sæstrengina Farice og Danice. 21.5.2010 08:25
Nýtt félag tekur við rekstrinum á Hofsá Veiðifélag Hofsár og Sunnudalsár mun taka taka við þjónustu og sölu veiðileyfa í Hofsá eftir 19. ágúst nk. af Stangveiðifélagi Hofsá ehf. 21.5.2010 08:04
Seðlabankinn lækkar dráttarvexti Seðlabanki Íslands hefur lækkað dráttarvexti og verða þeir 15,5 %. Þetta er lækkun um hálft prósentustig. 21.5.2010 08:00
Getum sjálf kennt okkur um kreppuna Ísland er hugsanlega komið lengra á veg með að fást við alþjóðafjármálakreppuna en mörg önnur ríki í Evrópu, segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í grein sem birtist eftir hana í Businessweek 21.5.2010 07:00
Telur Magma traustari bakhjarl en GGE Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir að bæjarstjórnin muni láta meta fjárhagslega getu Magma Energy og skoða hvort áhætta bæjarsjóðs aukist við það að móðurfélagið Magma Canada taki yfir greiðslu á 6,3 milljarða króna skuldabréfi sem bærinn á og Geysir Green Energy (GGE) gaf upphaflega út. 21.5.2010 05:00
Skilur gremju vegna bónusa - en segir kröfuna réttmæta Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans, sem vill hálfan milljarð króna í ógreiddan kauprétt frá þrotabúi bankans, segir að samningar verði að halda þótt mótaðili fari í þrot. Hann segist skilja gremju almennings en krafa sín sé réttmæt. 20.5.2010 18:49
Starfsmenn Arion banka á fræðslufundarröð um siðferði Starfsmenn Arion banka taka nú þátt í fræðslufundaröð um siðferði í samstarfi við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Einnig hefur starfshópur um siðferði verið skipaður í bankanum. Þetta kom fram á aðalfundi stjórnar bankans í dag fyrir starfsárið 2009. 20.5.2010 17:58
Steinþór Pálsson ráðinn bankastjóri Landsbankans Bankaráð Landsbankans (NBI hf.) hefur ráðið Steinþór Pálsson til að gegna störfum bankastjóra og tekur hann við af Ásmundi Stefánssyni. 20.5.2010 16:59
Eistneskur auðjöfur vildi yfirtaka Grindavík Knattspyrnudeild Grindavíkur hafnaði síðasta sumar tilboði frá eistneskum auðjöfri um að yfirtaka knattspyrnudeildina og leggja tugi milljóna króna inn í rekstur hennar, segir Þorsteinn Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildarinnar í samtali við Vísi. 20.5.2010 14:05
Rúmlega 11 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 11,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 1,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,3% í 9,7 ma. viðskiptum. 20.5.2010 17:05
Bréf Marels hækka um 2,39 prósent eftir fall Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 2,39 prósent í Kauphöllinni í dag eftir rúmlega átta prósenta fall í gær. Þá hækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,86 prósent. 20.5.2010 16:40
Nær helmingur fyrirtækjalána í skilum hjá Íslandsbanka Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, birti í morgun á opnum fundi Samkeppniseftirlitsins yfirlit yfir lán Íslandsbanka til fyrirtækja. Athygli verkur að þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæður í atvinnulífinu er tæpur helmingur lána bankans til fyrirtækja, eða 46%, í skilum. 20.5.2010 15:06
SI: Eitt atvinnuvegaráðuneyti er fagnaðarefni Samtök iðnaðarins (SI) segir að sameining ráðuneyta sem sinna málefnum atvinnulífsins er fagnaðarefni og í samræmi við stefnu SI til margra ára. Ekki er þó sama hvernig er að verki staðið og þar skortir talsvert á af hálfu ríkisstjórnarinnar. 20.5.2010 14:41
Kolbrún Pálína Helgadóttir orðin ritstjóri á Nýju Lífi Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Nýju Lífi, Kolbrún Pálína Helgadóttir. Kolbrún hefur verið blaðamaður á DV síðan í júlí 2007 og lausapenni á hinum ýmsu tímaritum frá árinu 2003. 20.5.2010 14:09
Ræddi skilyrði fyrir banka til yfirtöku á fyrirtækjum Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að eftirlitið hafi sett eignarhaldi bankanna á tilteknum atvinnufyrirtækjum ítarleg skilyrði. Þessi skilyrði koma fram í ákvörðunum sem birtar eru í hverju og einu samrunamáli. 20.5.2010 13:34
Samkeppnishæfni Íslands talin í meðallagi "Þetta styrkir okkur í trúnni um hvar við þurfum helst að bæta okkur á næstu árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um nýja skýrslu svissneska háskólans Institute for Management Development um samkeppnishæfni þjóða. Samkeppnishæfni Íslands er talin í meðallagi í hópi vestrænna ríkja í skýrslunni. 20.5.2010 13:04
Tefja endurreisnina og spilla fyrir samkeppni Hægagangur í úrlausn skuldsettra fyrirtækja tefur endurreisnina og spillir fyrir samkeppni, segir formaður Samtaka atvinnulífsins. Nú líti út fyrir að eitt til tvö ár líði í viðbót áður en eðlilegt ástand geti skapast meðal atvinnufyrirtækja. 20.5.2010 12:34
Stýrivextir líklega aftur lækkaðir í lok júní Greining Íslandsbanka telur að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti sín í lok júní um a.m.k. sömu prósentu og raunin varð í þessum mánuði. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um fundagerð nefndarinnar. 20.5.2010 12:26
Tal sett í söluferli Fjarskiptafyrirtækið Tal, sem er þriðja stærsta fjarskiptafyrirtæki á Íslandi og er að stærstum hluta í eigu Landsbankans, hefur verið sett í söluferli en það var eitt af skilyrðum sáttar sem fyrirtækið gerði við Samkeppniseftirlitið. 20.5.2010 12:20
Íslandsbanki veitir 10 námsstyrki Íslandsbanki veitti í gær framúrskarandi nemendum námsstyrki að heildarupphæð 3,4 milljónir króna. Námsstyrkir eru veittir árlega til námsmanna í viðskiptum við bankann sem eru félagar í Námsvild Íslandsbanka og í ár bárust 433 umsóknir um styrki. 20.5.2010 11:28
SA: Hópur fyrirtækja á leið í þrot vegna kreppunnar Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsis (SA) segir að samkvæmt upplýsingum frá bönkunum muni hópur fyrirtækja fara í þrot vegna kreppunnar. Framundan sé heilmikil endurskipulagning í atvinnulífinu sem ljúki vonandi að mestu á næstu 12 mánuðum. Vilhjálmur segir stöðu fyrirtækja vera mismunandi en erlend lán valdi mörgum þeirra vandræðum. 20.5.2010 09:20
Eik Banki rekinn með 142 milljóna tapi Eik Banki var rekinn með 6,6 milljóna danskra kr. eða 142 milljóna kr. tapi fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert betri niðurstaða en á sama tímabili í fyrra þegar tapið nam 36,5 milljónum danskra kr. 20.5.2010 09:15
Launavísitalan hækkaði örlítið í apríl Launavísitala í apríl 2010 er 369,5 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,0%. 20.5.2010 09:04
Tekur 20 ár að ná skuldum Íslands á viðráðanlegt stig Samkvæmt áliti svissneska viðskiptaskólans IMD International mun það taka Ísland lengur en næstu 20 árin að ná opinberum skuldum sínum niður á viðráðanlegt stig. Þar er Ísland í hópi þjóða á borð við Ítalíu, Portúgal, Belgíu, Bandaríkjanna og Grikklands. 20.5.2010 08:45
Tveir í Peningastefnunefnd vildu meiri vaxtalækkun Tveir af fimm í Peningastefnunefnd Seðlabankans vildu lækka stýrivexti meira en ákveðið var á fundi nefndarinnar fyrr í mánuðinum. Annar þeirra vildi að vextirnir lækkuðu um 0,75 prósentustig og hinn vildi lækka þá um eitt prósentustig. Sem kunnugt er af fréttum var ákveðið að lækka vextina um 0,5 prósentustig. 20.5.2010 08:09
Þriðjungur sjálfseignastofnana skilar ekki ársreikingum Tæplega þriðjungur sjálfseignarstofnana sem lögum samkvæmt áttu að skila reikningum sínum fyrir árið 2008 til Ríkisendurskoðunar hefur ekki gert það. 20.5.2010 07:53
Vill hálfan milljarð í ógreiddan bónus og ágreiningur fer fyrir dóm Steinþór Gunnarsson sem gerir nú kröfu um að þrotabú Landsbankans greiði sér hálfan milljarð króna í ógreiddan bónus, sem greiða átti árið 2007, fékk sama ár rúmlega tvö hundruð milljónir krónar greiddar í bónus. Dæmi eru um að sviðið sem hann stýrði hafi greitt bónusa sem voru hærri en tekjur þess. 19.5.2010 18:33
Áratugalangt starf í hættu Stjórnendur Vörumerkingar sjá fram á að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta eftir 48 ár í rekstri sömu aðila. Ástæðan er gengishrun krónunnar, verðbólga og himinháir vextir, sagði Karl M. Karlsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. 19.5.2010 19:53
Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar um 50 milljarða Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar um 50 milljarða vegna samkomulags sem Seðlabanki Íslands hefur gert við Seðlabankann í Lúxemborg. Fjórðungur af krónueign í erlendri eigu flyst heim, en hundruð milljarða krónueign útlendinga er ein meginástæða gjaldeyrishaftanna. Seðlabankastjóri segir samkomulagið skref í átt að afnámi þeirra. 19.5.2010 18:30