Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lilja Mósesdóttir vill uppboðsmarkað fyrir gjaldeyri Þingmaður Vinstri grænna leggur til að komið verði á uppboðsmarkaði fyrir gjaldeyri þar sem innlendir eigendur gjaldeyris geta selt hann á yfirverði. Með slíkri aðferð væri hægt að tryggja hægfara afnám gjaldeyrishaftanna á sem ódýrasta hátt fyrir skattgreiðendur. 19.5.2010 12:09
Innlend velta vex um 7,4% í krónum talið Innlend velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum var ríflega 7,4% meiri í krónum talið á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs samanborið við sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsbreytinga er aukningin þó mun minni, eða um 0,5%. 19.5.2010 11:52
Atlantic Petroleum skilar 440 milljóna hagnaði Hagnaður Atlantic Petroleum á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 20,5 milljónum danskra kr. eða ríflega 440 milljónum kr. eftir skatta. Þetta er töluvert betri árangur en á sama tímabili í fyrra þegar hagnaðurinn nam 15,3 milljónum danskra kr. 19.5.2010 11:06
Greining: Spáir því að verðbólgan minnki í 7,3% Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,2% í maímánuði. Gangi spáin eftir mun verðbólga minnka úr 8,3% í 7,3%. 19.5.2010 10:56
Skattaflótti stöðvaður með nýjum samningum Norðurlöndin efla aðgerðir gegn alþjóðlegum skattaflótta með nýjum samingum um upplýsingamiðlun. Í dag undirrituðu norrænu ríkin samninga við ríkin Antigua og Babuda, Dominica, Grenada og St. Lucia. 19.5.2010 10:47
Seðlabankinn keypti krónueignir á aflandsgengi Seðlabanki Íslands fékk krónueignir þær sem hann keypti af Seðlabankanum í Lúxemborg á aflandsgengi eða um 250 kr. fyrir evruna. Evran hefur fallið töluvert að undanförnu og er hið opinbera gengi hennar nú skráð rétt rúmlega 160 kr. 19.5.2010 10:12
Vísitala íbúðaverðs heldur áfram að lækka Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 303 stig í apríl 2010 og lækkar um 0,2% frá fyrra mánuði. 19.5.2010 08:58
Landsbankinn notaði Avens til að mjólka BCL Hollenska fjármálafyrirtækið Avens B.V. var stofnað af Landsbankanum sumarið 2008 gagngert til að mjólka Seðlabanka Lúxemborgar (BCL) um 100 milljarða kr. Sagt er að Sigurjón Árnason þáverandi bankastjóri Landsbankans hafi átti hugmyndina að þessari fléttu. 19.5.2010 08:31
Seðlabankinn semur við BCL um 120 milljarða eignir Seðlabanki Íslands hefur fyrir sína hönd og Ríkissjóðs Íslands gert samkomulag við Seðlabankann í Lúxemborg (BCL) og skiptastjóra Landsbankans í Lúxemborg um kaup á 98% útistandandi skuldabréfa Avens B.V. Skuldabréfin voru í eigu Landsbankans í Lúxemborg en veðsett BCL í tengslum við lausafjárfyrirgreiðslu á árinu 2008. Landsbankinn í Lúxemborg (Landsbanki Luxembourg S.A.) er dótturfélag Landsbanka Íslands hf. 19.5.2010 08:09
Ævisparnaður hjá Kaupþingi varð að fimm þúsund krónum Stór hluti starfsfólks gamla Kaupþings tapaði svo gott sem öllum viðbótarlífeyrissparnaði sínum sem það átti í séreignarsjóði Kaupþings fyrir starfsmenn. Sjóðurinn fjárfesti eingöngu í hlutabréfum bankans. Í lok september 2008 voru í sjóðnum tveir milljarðar króna. Þegar skilanefnd á vegum Fjármálaeftirlitsins tók lyklavöldin yfir í Kaupþingi í annarri viku október 2008 varð viðbótarlífeyrissparnaðurinn að engu. 19.5.2010 03:00
Framkvæmdarstjórar Arion banka sendir í leyfi Tveir framkvæmdastjórar Arion banka hafa verið sendir í leyfi þar sem þeir hafa réttarstöðu sakbornings í rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings. 18.5.2010 18:35
Greining MP Banka spáir 4% verðbólgu í árslok Greining MP Banka gerir ráð fyrir að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í um 4% í lok þessa árs. Hjöðnun verðbólgunnar haldi áfram fram á mitt næsta ár og verði hún þá um 3,5%. 18.5.2010 15:46
Rólegt á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 6,6 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,9 milljarðs kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 4,6 milljarða kr. viðskiptum. 18.5.2010 15:52
Malcolm Walker forstjóri Iceland kemur Jóni Ásgeiri til varnar Malcolm Walker forstjóri Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi hefur komið Jóni Ásgeiri Jóhannessyni til varnar og segir að stjórn og starfsfólk Iceland muni ætíð verða Jóni Ásgeiri verulega þakklát fyrir hlut hans í því að koma keðjunni til vegs og virðingar. 18.5.2010 15:30
Stjórn LV ætlar í mál við bankana vegna taps sjóðsins Stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna (LV) ætlar láta á það reyna fyrir dómstólum, hvort hægt verður að sækja bætur til bankanna vegna taps sjóðsins, sem stjórnarmenn vilja rekja til blekkinga bankanna. Þær hafi einkum birst í markaðsmisnotkun í hlutabréfaviðskiptum. 18.5.2010 12:15
Aðeins dregur úr verðbólgunni Verðbólgan hér á landi var 11,1% í apríl samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) birti nú í morgun. Lækkar verðbólgan milli mánaða en hún var 11,6% hér á landi í mars á kvarða samræmdrar vísitölu. 18.5.2010 11:41
Skuldatryggingaálag ríkissjóðs hækkar á ný Skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands til fimm ára stendur nú í 284 punktum (2,84%). Hefur álagið hækkað um 35 pkt. frá því fyrir viku síðan þegar það stóð í 249 pkt. og hafði þá ekki verið lægra síðan fyrir bankahrun. 18.5.2010 11:20
Tryggingasjóður kallar eftir upplýsingum Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta mun kalla eftir upplýsingum um greiðsluskyldu sína gagnvart Byr, Sparisjóðnum í Keflavík og VBS fjárfestingabanka. Þetta er gert í framhaldi af því áliti Fjármálaeftirlitsins að greiðsluskylda hafi skapast hjá sjóðnum gagnvart viðskiptavinum þessara fjármálafyrirtækja og greint er frá hér á síðunni. 18.5.2010 10:38
Lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs neikvæður um 13,8 milljarða Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins var hreinn lánsfjárjöfnuður ríkissjóðs neikvæður um 13,8 milljarða kr. Á sama tíma í fyrra var hreinn lánsfjárjöfnuður því sem næst í jafnvægi, eða neikvæður upp á aðeins 0,1 milljarð kr. og er því staðan nú 13,7 milljörðum kr. verri en á sama tíma í fyrra. 18.5.2010 10:24
Íslendingar jákvæðastir allra þjóða Íslendingar eru jákvæðasta þjóð í heimi samkvæmt mælingum Efnahags- og framfarastofnun, eða OECD. Í mælingunni er stuðst við gögn sem safnað var í fyrra, sem sagt eftir bankahrun. 18.5.2010 09:58
DataMarket opnar gagnatorg á netinu Fyrirtækið DataMarket hefur hleypt af stokkunum gagnatorgi sínu á vefslóðinni DataMarket.com. 18.5.2010 08:57
Tryggingasjóður greiði viðskiptavinum Byr, Spkef og VBS Það er álit Fjármálaeftirlitsins (FME) að stofnast hafi greiðsluskylda hjá Tryggingasjóði innistæðueigenda gagnvart viðskiptavinum Byrs, Sparisjóðsins í Keflavík (Spkef) og VBS fjárfestingabanka. 18.5.2010 08:50
Rannsókn sérstaks saksóknara á Exeter Holdings á lokastigum Rannsókn sérstaks saksóknar á viðskiptum Exeter Holdings ehf. með stofnfjárbréf í Byr er langt komin en það er þó óljóst hvenær og hvort ákærur verði gefnar út. 17.5.2010 17:37
Jóni vikið úr starfi hjá Stoðum Jóni Sigurðssyni hefur verið veitt lausn frá störfum sem framkvæmdastjóri Stoða samkvæmt tilkynningu sem Eiríkur Elís Þorláksson, stjórnarformaður Stoða, sendi frá sér í dag. 17.5.2010 17:15
Rifta niðurfellingu ábyrgða starfsmanna Kaupþings Slitastjórn Kaupþings banka sendi í morgun um 80 starfsmönnum gamla Kaupþings tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þáverandi stjórnendum og lykilstarfsmönnum til hlutabréfakaupa í Kaupþingi. 17.5.2010 14:32
Vill hækka raforkuverð til stórfyrirtækja Raforka til álvera hefur verið seld of ódýrt, hér á landi. Alltof ódýrt. Þetta segir Ross Beaty, forstjóri og stjórnarformaður kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy en það keypti í dag hlut Geysis Green Energy í HS Orku. Hann boðar hækkun á raforkuverði til stóriðju en ekki til heimila. 17.5.2010 18:54
Gengi hlutabréfa Össurar lækkaði um tæp 1,4 prósent Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,37 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Marels, sem fór niður um 0,24 prósent. 17.5.2010 16:37
Salan á Smáralind: Nærliggjandi lóðir líka til sölu Fasteignafélag Íslands ehf., eigandi verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar, hefur ákveðið að gefa fjárfestum sem áhuga hafa á að kaupa verslunarmiðstöðina, kost á því að kaupa einnig nærliggjandi lóðir í eigu félagsins. Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að lóðirnar séu sunnan Smáralindar við Hagasmára og Hæðasmára. „Þessar lóðir verða hvorki seldar sérstaklega sem heild né heldur stakar, heldur er ætlunin að gefa kaupanda verslunarmiðstöðvarinnar tækifæri á að eignast þær jafnhliða kaupum á Smáralindinni.“ 17.5.2010 16:31
Sigurður með mest undir eða 7,8 milljarða í riftuninni Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings, nú eftirlýstur af Interpol, er með mest undir af þeim 80 fyrrum starfsmönnum Kaupþings sem fengu í morgun tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þeim. Sigurði er gert að greiða rúmalega 7,8 milljarða kr. 17.5.2010 15:38
Sem betur fer ráða stjórnvöld ekki för í sölu HS Orku „Rétt er að rifja upp að þegar Magma Energy festi fyrst hlut í HS Orku fyrir nokkrum misserum tók hluti ríkisstjórnar og alþingismanna því afar illa og fann flest til foráttu. Enn eru þeir sömu við sitt heygarðshorn. Sem betur fer ráða þeir ekki för í þessu máli," segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í tilkynningu um kaup Magma Energy á HS Orku. 17.5.2010 14:05
Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni Jón Ásgeir Jóhannesson hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna afsagna hans úr stjórnum House of Fraser og Iceland Food en Fréttastofan greindi frá þessum afsögnum fyrir og um helgina. 17.5.2010 13:45
SA fagna sölunni á HS Orku Samtök atvinnulífsins fagna samkomulagi um kaup Magma Energy á stórum hlut í HS Orku. Í tilkynningu frá SA segir að með samkomulaginu hafi sterkt erlent fyrirtæki eignast ráðandi hlut í HS Orku og jafnframt lýst yfir áformum um að standa að öflugri uppbyggingu jarðvarmavirkjana hér á landi. 17.5.2010 13:44
BM Vallá óskar eftir gjaldþrotaskiptum Í dag, mánudaginn 17. maí, lagði stjórn BM Vallár hf. fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur beiðni um að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. 17.5.2010 13:33
Pundið er komið undir 190 krónur Gengisvísitalan hefur verið að styrkjast töluvert frá því í hádeginu og er pundið nú komið undir 190 kr. Hefur pundið veikst gagnvart krónunni um tæplega 1,5% frá því fyrir helgina. 17.5.2010 13:20
Vilja að Hampiðjan greiði 59,6 milljónir í arð Á aðalfundi Hampiðjunnar á föstudaginn kemur verður lög fram tillaga stjórnar um að fundurinn samþykki að greiddur verði 12% arður vegna ársins 2009, alls að fjárhæð tæpar 59,6 milljónir kr. 17.5.2010 12:32
Krónan ekki verið jafnsterk gagnvart evrunni í rúmt ár Gengi krónunnar gagnvart evru heldur áfram að styrkjast og kostar evran 162,4 krónur á innlendum millibankamarkaði þegar þetta er ritað (kl. 11:30). Um áramótin stóð evran í 179,9 krónum og hefur krónan því styrkst um 10,7% gagnvart evru frá þeim tíma, og í raun hefur krónan ekki verið jafn sterk gagnvart evru í rúmt ár. 17.5.2010 12:16
Meniga í samvinnu við Applicon á Norðurlöndum Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga, sem rekur samnefndan fjármálavef fyrir heimili, hefur valið Applicon í Svíþjóð, dótturfélag Nýherja hf, til þess að annast endursölu á lausnum félagsins til banka á Norðurlöndunum. 17.5.2010 11:13
Magma Energy eignast 98,5% hlut í HS Orku Dótturfyrirtæki kanadíska jarðhitafyrirtækisins Magma Energy og Geysir Green Energy hafa náð samkomulagi um að Magma kaupi öll hlutabréf Geysis í HS Orku og verður Magma þar með aðaleigandi félagsins með 98,5% hlut. 17.5.2010 10:36
Formaður stjórnar TM segir sig úr stjórninni Jón Sigurðsson, formaður stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM), hefur sagt sig úr stjórn félagsins. 17.5.2010 10:19
Kosið um stjórn Icelandair Group á hluthafafundi Kosið verður um stjórn Icelandair Group á komandi hluthafafundi félagsins. Eftirtaldir aðilar gefa kost á sér til stjórnar Icelandair Group á hluthafafundi sem haldinn verður föstudaginn 21. maí kl 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica. 17.5.2010 10:06
HS Orka skilar 1,2 milljarða hagnaði Hagnaður HS Orku á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 1,2 milljörðum kr. en á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn 800 milljónum kr. 17.5.2010 09:33
Heildaraflinn minnkaði um 16,5% milli ára í apríl Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum aprílmánuði, metinn á föstu verði, var 16,5% minni en í apríl 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. 17.5.2010 09:01
Ríkisstjórnin skoðar aðkomu að HS Orku Fulltrúar kanadíska fyrirtækisins Magma Energy munu ganga á fund ráðherra í dag þar sem möguleg aðkoma ríkisins að málum HS Orku verður rædd. Ekki var tekin ákvörðun um sölu á hlut Geysis Green í HS Orku til Magma í gær. Boðað verður til blaðamannafundar um málið í dag. 17.5.2010 06:30
Aldrei fleiri kaupmálar verið gerðir Aldrei hafa fleiri kaupmálar verið gerðir eins og strax eftir bankahrunið. Ekki verður hægt að rifta þeim öllum þrátt fyrir að fyrningarfrestur hafi verið lengdur. 16.5.2010 18:53
Tollstjóri getur krafist gjaldþrotaskipta Tollstjóri, fyrir hönd skattrannsóknarstjóra, getur krafist þess að fyrrverandi forsvarsmenn FL Group verði teknir til gjaldþrotaskipta. Enginn þeirra á eignir upp í kyrrsetningarkröfu skattrannsóknarstjóra vegna meintrar refsiverðar háttsemi þeirra á lögum um virðisaukaskatt. 16.5.2010 19:24